Vinnan - 01.12.1974, Side 18
FRÁ LIÐNUM DÖGUM
Frá liðnum dögum
í þættinum frá liðnum dögum birtir
Vinnan að þessu sinni mynd frá Al-
þýðusambandsþingi, sem háð var upp
úr 1930. Myndina gaf Sigrún Hjartar-
dóttir Sögusafni verkalýðshreyfingar-
innar, en hún er dóttir Hjartar Cýrus-
sonar, sem var á sínum tíma formaður
verkalýðsfélagsins á Sandi. Þetta þing
er haldið áður en aðskilnaður verður á
milli faglegu og pólitísku hreyfingarinn-
ar og Alþýðusambandið og Alþýðu-
flokkurinn voru eitt.
Svo langt er nú liðið síðan myndin
var tekin, að varla mun nokkur einn
maður þekkja alla þá 85, sem á mynd-
inni eru, en meiri hluti þess fólks er nú
íátinn.
Vinnan hefur fengið nokkra eldri
menn, einkum Alþýðuflokksfólk til þess
að líta á myndina og hafa þeir þekkt þá
sem að neðan eru greindir.
Nú viljum við biðja lesendur blaðs-
ins að koma til hjálpar og senda blað-
inu upplýsingar um þá sem enn vantar,
ennfremur að leiðrétta ef rangt er til
getið um það fólk, sem hér er skráð.
Við munum svo á næstunni hirta nöfn
þeirra, sem berast.
Um leið og við þökkum þessa góðu
gjöf til Sögusafnsins, viljum við biðja
alla þá sem kynnu að eiga slíkar mynd-
ir eða aðrar verðmætar minjar að senda
Sögusafninu til eignar eða eftirtöku.
Við megum engan tíma missa, ef ekki
eiga að glatast óbætanleg verðmæti um
sögu verkalýðshreyf. á íslandi.
Þeir sem þekkjast:
1 Agúst Jósefsson prentari. 2 Jens Pálsson
sjóm. 3 Árni Guðmundsson Dagsbrún. 4 Ás-
grímur Gíslason Dagsbr. 5 Sigurbjörn Björns-
son Dagsbrún. 6 Árni Ágústsson Dagsbrún. 7
Guðmundur lllugason Dagsbrún. 8 Sigurður
Ólafsson sjóm. 9 Símon Bjarnason Dagsbr. 10
Jón Magnússon. 11 Páll Þorbjörnsson. 12
Brynjólfur Eiríksson. 13 ? 14 Valgeir Magnús-
son sjóm. 15 Vilhjálmur S. Vilhjálmsson 16 ?
17 Guðjón Gunnarsson Hlíf. 18 Guðmundur
Gissurarson Hlíf. 19 Ágúst Hólm sjóm. 20 Osk-
ar Jónsson Hafnarf. 21 Nikulás Friðriksson
Dagsbrún. 22 Jón Guðlaugsson. 23 Sigurður
Sœmundsson. 24 Jón Arason. 25 Ingimar Jóns-
son. 26 Lúther Grímsson sjóm. 27 Guðmundur
Einarsson sjóm. 28 Sigurður Gíslason. 29 ?
30 Guðmundur Jónsson Narfeyri. 31 Erlingur
Friðjónsson. 32 Jóhanna Egilsdóttir Framsókn.
33 Finnur Jónson. 34 Stefán Jóh. Stefánsson.
35 Héðinn Valdimarsson. 36 Jón Baldvinsson.
37 Kjartan Ólafsson. 38 Guðmundur R. Odds-
son. 39 Ólafur Friðriksson. 40 Jón Axel Pét-
ursson. 41 Felix Guðmundsson. 42 Sigurjón Á.
Ólafsson. 43 Björn Blöndal. 44 Skarphéðinn
18
VINNAN