Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Page 2

Vinnan - 01.06.1988, Page 2
 FORMANNAFUNDUK ASI: Þungt hljóð í formónnunum — aðeins byrjunin á aðgerðum ríkisstjórnarinnar; stöndum frammi fyrir óðaverðbólgu; undirbúum harðar aðgerðir; þurfum að treysta samstöðu launafólks í kjölfar setningu bráðabirgðalaga ríkisstjórnar- innar (og bráðabirgðabráðabirgðalaganna) og gengisfellingarinnar sem í kjölfar fór, boðaði mið- stjórn Alþýðusambands íslands til formannafundar 30. maí sl. Allgóð mæting var á fundinum og mættu yfir 100 formenn verkalýðsfélaga víðsvegar að af landinu. Ari Skúlason, hagfræð- ingur ASÍ, tók l'yrstur til máls og fjallaði um gengisfellinguna og áhrif hennar á kaupmátt. Hann dreifði til fundarmanna töllu eins og þeirri scm birt cr hcr til hliðar og sýnir áhrif gcngisfellingarinnar á al- mennan kauptaxta VMSÍ. Eins og l'ram kemur í töfl- unni er gert ráð lyrir að kaup- máttur í desember vcrði 6% lakari en fulltrúar VMSÍ töldu sig hafa verið að scmja um, áður en samningsrctturinn var afnuminn með bráðræðislög- unum. Þessi 6% kaupmáttar- rýrnun miðar við að vcrð- bólguspá haldi. cn þar sem rauðu strikin hafa verið af- numin með lögum. verða laun- þegar að bera frekari verðbólgu sjálfir, óbætl. Að loknum skýringum Ara tók Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ lil máls. Hann fór yfir atburðarráös samskipta verkalýðshrcyfingarinnar og ríkisstjórnarinnar í kringum setningu bráðabirgðalaganna og gengisfellingarinnar. Nýtt hljóð í strokkinn Þar kom m.a. fram að 13. maí, cða þrcmur dögum fyrir gengisfellingu, héldu formenn landssambanda innan ASÍ fund þar sem þeir samþykktu að senda Þorsteini Pálssyni, forsætisráðherra, skeyti þar sem fyrirhugaðri gengisfell- ingu var mótmælt. I skeytinu sagði m.a.: ,,Frá því að samn- ingar vora gerðir í desember 1986 hefur alvarlegt misgengi orðið í efnahagskerfinu. Ástæðurnar má rekja til að- gerða og þó frekar aðgerða- leysis stjórnvalda. Pað er óhjákvæmilegt að benda á fjárlagahallann. miklar er- lendar lántökur. stórfelldar óarðbærarfjárfestingar. okur- vexti og skipulagsleysi í flest- um greinum." í skeytinu er minnt á reynsl- una frá 1983 um það hverjir beri lögskipaðar kjaraskerð- ingar, en það eru þeir sem búa við samningsbundna taxta. Landssambandaformennirnir leggja á það áherslu í skeyti sínu, að staðið verði við gerða samninga og þeir ekki skertir, slíkt leysi engan vanda heldur muni óréttlætið enn magnast. Það næsta sem gerðist, sagði Ásmundur, eftir að gengisfell- ingin var orðin að veruleika, var að ríkisstjórnin ákvað að eiga viðræður við verkalýðs- hreyfinguna. 17. maí átti mið- stjórn ASÍ ásamt formönnum landssambanda fund með þremur ráðherrum þar sem farið var yfir málin og var það mat ASÍ fulltrúa að þeim l'undi loknum, að báðir aðilar væru- reiðubúnir til viðræðna um þau vandamál í efnahagslífi og víðar, sem við blöstu. Okurvextir og skipnlagsleysi Daginn eftir, er formenn landssambanda mættu til framhaldsviðræðna, var komið annað hljóð í strokkinn. Þá mælti Þorsteinn Pálsson einn fyrir sig og ríkisstjórn sina og aðrir ráðherrar sátu þöglir hjá. Þorsteinn neitaði alfarið að ræða annað en kaupliði og skerðingu þeirra. Eftir þennan fund með Þorsteini og aðstoð- armönnum hans gáfu formenn landssambanda út yfirlýsingu þar sem m.a. segir að ríkis- stjórnin hafi alfarið hafnað við- ræðum við verkalýðshreyfing- una um annað en kaupliði. ..Alþýðusambandið harmar þessa afstöðu ríkisstjórnar- innar því öll eigum við mikið undir því að vel takist til og breið samstaða náist í þjóðfé- laginu um þær aðgerðir sem gripið verður til." Eftir að yfirlýsingin hafði birst í flestum fjölmiðlum hóf Þorsteinn Pálsson að veitast að verkalýðshreyfingunni á ósvíf- inn og óheiðarlegan hátt. Ásak- anir Þorsteins urðu til þess að ASÍ sendi frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem m.a. segir: ,.AJ framansögðu er Ijóst að það TÍMARIT ALÞÝDUSAMBANDS ÍSLANDS Bananalýðveldið ísland Rltstjóri: Sverrir Albertsson afgreiösla: Grensásvegur 16, 108 Reykjavík. Simi:83044 Auglýsingar: Áslaug Nielsen, sími: 621615 setning: Alprent prentun: Blaöaprent. RitnefmkÁsmundur Stefánsson, ábyrgö- armaður, Helgi Guðmundsson, Kristin Mántylá, Lára V. Júliusdóttir, Þráinn Hallgrimsson. Starfsfólk stofnana ASÍ: Alþýðusamband íslands: Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, Kristín Mántylá, skrifstofu- stjóri, Ari Skúlason, hagfræðingur, Ásmundur Hilmarsson, félagslegur fulltrúi, Ingibjörg Haraldsdóttir, gjald- keri, Bolli Thoroddsen, hagræðingur, Sigurþór Sigurðsson, hagræðingur, Ragnhildur Ingólfsdóttir, fulltrúi, Berg- þóra Ingólfsdóttir, fulltrúi, Áslaug Ásmundsdóttir, ræstir. ■VFA Menningar- og fræðslusamband Alþýðu: Tryggvi Þór Aðalsteinsson, framkvæmda- stjóri, Snorri Konráðsson, fræðslufull- trúi, Þráinn Hallgrímsson, Guðlaug Halldórsdóttir. Lístasafi AIRýðosambandsins: Sólveig Georgsdóttir, forstöðumaður, Gísli Þór Sigurðsson, umsjónarmaður. „Til að þessu markmiði verði náð ber brýna nauðsyn til að tryggja samræmi í launaþróun, verja kaupmátt lægstu launa..,“ segir m.a. í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar frá 20. maí sl. Og sjaldan hefur jafnmikil hræsni komið fram í svo efnisrlitlum lög- um. Hverjar voru þessar efnahags- aðgerðir sem ætlað var að „verja kaupmátt lægstu lauha“ eins og segir í lögunum? Jú, að svipta verkalýðsfélögin samningsrétti sínum og ekki aðeins það, heldur og að afnema rauðu strik þeirra samninga sem þegar höfðu verið gerðir. Nú vita allir að gengisfell- ingum fylgja verðhækkanir, og því höfðu verkalýðsfélögin samið um rauð strik, sem gáfu þeim rétt til að endurskoða samninginn með vissu millibili til að semja um hækkanir vegna verðhækkana sem orðið höfðu á tímabilinu. Þessar endurskoðanir eru úr sögunni. Þökk sé bráðabirgðalög- um Þorsteins Pálssonar. Þannig ver hann kaupmátt lægstu launa að launþegar verða að bem verð- hækkanir óbættar. Hvort er þetta Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri VSÍ, eða Þorsteinn Pálsson, fulltrúi fólks- ins í flokki allra stétta, sem stýrir aðgerðum. Eins og fram kemur á forsíðu þessa blaðs og í viðtali við Ásmund Stefánsson, hefur ríkis- stjórnin ekki sýnt neinn vilja til aðhalds í verðlagsmálum. I raun hefur ríkisstjórnin ekki tekið á neinu máli nema kjörum almenn- ings. Samt höfðu fulltrúar ríkis- stjórnarinnar viðurkennt á fundi með fulltrúum ASÍ, að launin í landinu væru ekki orsök efnahags- vandans. Lögin ná ekki yfir vaxtaokur, ekki yfir verslunarálagningu. Þau taka ekki til verðtrygginga lána né hárra vaxta. Ekki er minnst á niðurgreiðslur landbúnaðarafurða, auknar barnabætur né nokkurn þann hlut sem bætt gæti laun- þegum að einhverju leyti kjara- skerðingu laganna. Það kátlegasta við þetta allt saman er, ef hægt er að kalla þetta kátlegt, að það er ekki nema eitt ár síðan þessi ríkisstjórn stóð í kosningabaráttu þar sem inntak- ið var að hún hefði treyst efnahag ríkisins, komið á jafnvægi og minnkað verðbólgu. Klettinn í haf- inu, kallaði hún sig. Og nú tekur hún sjálfsögðustu mannréttindi af þegnum sínum. Hvar eru nú þeir stjórnmála- menn íslenskir sem barið hafa sér á brjóst og fordæmt mannrétt- indabrot annara ríkja. Hvar eru lýð- ræðisfyrirlestrar Sjálfstæðisflokk- ins, sem lesnir eru yfir þegar t.d. - yfirvöld í Póllandi kúga verkalýðs- félögin. Hvar eru allar stuðnings- yfirlýsingarnar við Solidarity. Nú eiga þær við hér. Er nema von að Alþýðusam- bandið kæri til Alþjóða vinnumála- sambandsins. Annars værum .við að lýða misvitrum og ráðalausum ráðherrum, sem ekki einu sinni þorðu að leggja úrræði sín fyrir alþingi heldur sendu það heim að bjórnum samþykktum, að gera ísland að bananalýðveldi þar sem samningar manna í millum eru gerðir marklausir og fólk réttlaust. Og áður en blekið var þornað á bráðræðislögum ríkisstjórnarinnar voru áhrif aðgerðanna horfin, að sögn atvinnuveganna. Við þurfum frekari gengisfellingu, frekari kjaraskerðingu, sögðu þeir. Alþýðusambandið benti á fyrir setningu laganna og eftir, að þessar aðgerðir myndu á engan hátt bæta efnahagsvandann. Sú hefur orðið raunin. Það er því ekki að fyrirsynju að menn óttast að bráðlátir og fljótfærir ráðherrar rjúki til í aðrar bráðræðislagasetn- ingar með haustinu, treystandi á að almenningur hlýði gerræðis- skipunum þeirra. En því er ekki að treysta. Þegar lög ganga út yfir allt sið- ferði, ræna fólki mannréttindum, hefur almenningur allan rétt á að berjast fyrir réttindum sínum. Þennan rétt hefur fólk út um allan heim tekið sér þegar á hefur þurft að halda, það hefur síðan farið eftir siðferði stjórnvalda hvort þau siga lögreglu á þjóðina eða láta undan vilja hennar. Það fer enginn í grafgötur með siðferðisþrek íslensku ríkisstjórn- arinnar, það hefur hún þegar sýnt. Spurningin er því hvort þeir þora að stíga næsta skref. 2 — VÍNNAN — JÚNÍ 1988

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.