Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Side 7

Vinnan - 01.06.1988, Side 7
Vísitölu— stig Vfsitölur Tölur úrsins 1980 eru settar ó 100 & Kaupmóttur atvinnutekna launþega -+- Fjöldi íbúöa sem byrjaö er ó Fasteigna— verö TfmaritiÖ VINNAN um og lánar þá áfram á 3.5% vöxtum. Þetta er mikill vaxta- munur og dýr. það er rétt. Vextir eru stjórntæki En í þessu sambandi er rétt að gera sér í fyrsta lagi grein fyrir því að vextir eru háðir ákvörðun stjórnvalda. Núna er það ákvörðun stjórnvalda að hafa vexti frjálsa og ýmsar efnahagslegar ástæður hafa valdið því að raunvextir eru mjög háir hér á landi. Hár fjármagnskostnaður er talinn mikið böl hér á landi, fyrir fyrirtæki og ekki síst fyrir heimilin. Það eru þegar uppi háværar kröfur um að vextir verði lækkaðir. Og jafnvel þó svo vextir verði frjálsir áfram er margt sem bendir til þess að vextir munu lækka á komandi árum. Vinnuhópur ráðherra dregur ályktanir sínar af vöxtum síð- ustu 3-4 ár, en vextir hafa aldrei verið jafnháir á íslandi og einmitt þessi ár. Forsendur vinnuhópsins er semsé þær að í fyrsta lagi verði vextir alltaf frjálsir og háðir duttlungum markaðarins og jafnframt að vaxtamunurinn verði alltaf svona mikill. (í framhjáhlaupi má geta þess að á næstu árum mun ráðstöfunarfé lífeyrissjóð- anna aukast mjög mikið og þar með framboð af lánsfé. Slíkt ætti að framkalla vaxtalækk- un). Verða vextir alltaf háir Og það eru ekki aðeins þess- ar hagfræðilegu forsendur sem eru hæpnar heldur og þær fé- lagslegu. í álitsgerð vinnu- hópsins vantar félagslega stefnumótun. Er það ósk þjóð- arinnar að húsnæðismál verði fullkomlega ofurseld markaðs- lögmálum? Er æskilegt að um leið og áhvílandi lán á húsnæði verða hærra hlutfall íbúða- verðsins, að vextir geti sveiílast frá einu ári til annars? Áður en miklar breytingar verða gerðar á húsnæðiskerf- inu þarf Alþingi að leggja niður fyrir sér félagsleg markmið þess að stjórnvöld hafi yfir höfuð afskipti af húsnæðismál- ^ um. Ef stefnan er sú að tryggja öllum landsmönnum jafnan möguleika á tryggu og öruggu húsnæði, án þess að það krefj- ist þeirra miklu vinnu og skammtímaskuldasúpu sem lengi hefur einkennt íslenska húsbyggjendur, þá er það ekki hægt öðruvísi en með því að veita fólki tækifæri til að fá lán sem nemur háu hlutfalli af íbúðaverði til langs tíma á till- tölulega lágum vöxtum. Það er einfaldlega ekki önnur leið til. Með því að allir hafi rétt á þessari fyrirgreiðslu en tak- markað fé er til ráðstöfunar er fyrirsjáanlegt að biðröð skap- ast. Og biðröðin verður ekki afnumin nema lán séu lækkuð, lánsréttur takmarkaður eða fjármagn aukið. Kerfið er ekki sprungið Núverandi kerfi er ekki galla- laust. Nokkrir gallanna hafa þegar verið lagfærðir og unnt er að lagfæra aðra. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, sem sæti á i nefnd er ráðherra skip- aði til að starfa milli þinga og skila tillögum að nýju húsnæð- iskerfi í haust, hefur m.a. sett fram hugmyndir um hvernig unnt er að stytta biðtíma veru- lega og auka tekjur Bygginga- sjóðs ríkisins, en samt halda fé- lagslegum markmiðum kerfis- ins. í tillögunum er gert ráð fyrir að við lánveitingu verði tekið tillit til eigna fólks og þá einnig í öðru en í húsnæði, eins og kerfið er í dag getur stóreigna- maður fengið hámarkslán, ef hann ekki á íbúð fyrir. Hann gæti þess vegna átt stórfyrir- tæki, sportbáta og sumarbúst- aði. í öðru lagi gerir Ásmundur ráð fyrir því að lán til þeirra sem íbúðir eiga fyrir verði ein upphæð, ekki mismunandi eftir því hvort viðkomandi ætl- ar að byggja nýtt eða kaupa aðra gamla íbúð. í þriðja lagi gerir hann ráð fyrir þvi að einstaklingum verði veitt hálf lán, þannig að hjón eða fólk í sambúð fái fullt lán, en einstaklingur helming. Þá gera tillögur Ásmundar ráð fyrir því að endurgreiðslur verði hraðari hjá tekjuháu fólki, með því að greitt verði í aukaafborgun 3.5% tekna um- fram skattgreiðslumörk. Ásmundur áætlar að það myndi í raun stytta meðal- endurgreiðslutímann niður í 30 ár. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að leysa íjárhagsvandamál liúsnæðiskerfisins með þvi að fækka lánum, lækka þau og hækka vexti. En húsnæðiskerf- ið er ekki bara peningadæmi heldur einnig félagsleg stcfna. Eina lausnin á vanda húsnæðis- kerfisins sem lclagslega þenkj- andi fólk getur sætt sig við. er lausn scm ekki einblinir á pcningahliðina heldur slendur vörð um félagsleg markmið. FAGMENNSKAIFYRIRRUMI Innlend verksmíð hefur sannað sig bæði í gæðum og endingu. __________Hafðu okkur með í ráðum._ Skrifstofan er opin frá kl. 09:00 til kl. 17:00 virka daga. mæmmm hosmmm SKIPHOLTI 70 - REYKJAVÍK SÍMAR: 31277 OG 36977 I

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.