Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.06.1988, Blaðsíða 9
Sræn- “ (að mun bðvilj- Jóni Jikla- lokkr- þeirri slsín- 41% 30% >rauð rkex 25% hakk þýðu- enda- íjúkl- a frá verð- minn i þeir 20% rjalds urinn könn- var :stum iborg- ekkað kjum :kkert Morg- íari á hafa )% en sölu- tt að kkun tröfðu fc. Þá > virð- mráð m. Á sem kom i ASÍ, ilags- lu til- rgun- Páls- fi far- nund hann fisk- kum. idiað bræö- enda- u þar a eru arum emur ískur mín- rauði ðeins auta- m að ur til með- sitt í astað sinn aður tíma il að her- Bret- Iverk ðvilj- hafi ætur nuði, ækk- hafi dag- 'undi ' sem Mega ráðu- tjórn Sam- til að á því haft :la að ssara leið- sam- ikara 29. janúar er fréff i Tíman- um þess efnis að Verðlagsráð hafi ákveðið að lækka verð á ýsu í 280 kr. kílóið eða um 8%. Pessi ákvörðun var tekin eftir að verðlagsgrundvöllur fisk- búða hafði verið skoðaður vendilega en rétt áður en mat- arskatturinn skall á höfðu fisk- salar fengið samþykkta 15% hækkun með tilvísun til hækk- unar á fiskmörkuðum. Pær upplýsingar reyndust byggðar á veikum grunni. Sama dag er greint frá því að Landssamband bakarameist- ara hafi fallist á að draga til baka hækkanir umfram 10.4% sem matarskatturinn gefi til- efni til, gegn því að einstakir bakarar fái að hækka vöru sína í samráði við Verðlagsstofnun, hafi þeir tilefni til. 30. Janúat greindi Morgun- blaðið frá þvi að samkvæmt verðkönnum Verðlagsstofnun- ar er 25-37% verðmunur á kjöti milli verslana. Dýrasta verslunin, bæði með óunnið og unnið kjöt var SS í Glæsibæ. en ódýrustu unnu kjötvörurnar voru í Hagkaup og óunna kjötið var ódýrast í Kjötmiðstöðinni í Garðabæ. óskuðu samtök alifuglabænda og kartöflu- bænda eftir því að hin svokall- aða ,,sexmannanefnd“ verð- legði afurðir þeirra og frjáls samkeppni legðist af. 4. febrúar seSir Tíminn frá þvi að sala á kjúklingum hafi dregist saman um 15% 1987 miðað við 1986. Á sama tíma hafi neysla lambakjöts aukist um 12% og nautakjöts um 30%. Sama dag greinir blaðið frá mótmælum Félags islenskra bifreiðaeigenda í tilefni hug- mynda stjórnvalda um að hækka bensíngjald til að standa straum af endur- greiðslu uppsafnaðs söluskatts til ákveðinnar atvinnugreinar. 5. febrúar hófustléttardeil- ur milli Sláturfélags Suður- lands og annarra kjötkaup- manna, aðallega Kjötmið- stöðvarinnar, þegar Steinþór Skúlason, hjá Sláturfélaginu hélt því fram að SS notaði betra og nýrra kjöt en aðrir. Kjötmið- stöðin birti yfirlýsingar frá þeim sláturhúsum er þeir skipta við, sem staðfesta áttu að Kjötmiðstöðin selur aðeins nýtt kjöt. Sama dag ákvað Verðlags- nefnd búvara, „sexmanna- nefndin" að verða við beiðni kartöflu og alifuglabænda um verðákvörðun. Fulltrúar neyt- enda í nefndinni lögðu fram bókun þar sem þeir hörmuðu beiðni bændanna og fóru auk þess fram á að fá að kaupa sér- fræðiaðstoð áður en til verð- ákvörðunar kemur. 6. febrúar Isekkaði bensín- verð um 1.80 eða 5.3% vegna verðlækkana á heimsmarkaði. Eins og fram kemur að ofan höfðu stjórnvöld íhugað að láta þessa lækkun ekki koma fram heldur hækka bensíngjald sem henni nam. Mótmælti þá FÍB harðlega. 12. febrúar greindi Tíminn frá nýjum útreikningi fram- færsluvísitölunnar þar sem fram kemur að helstu matvör- ur hafa höfðu hækkað í verði frá áramótum um 15-18% og allt upp í 22%. Áætlaðar hækk- anir vegna matarskatts voru 7%. Sama dag greinir Pjóðviljinn frá allt 67% verðmun á fiski eftir því hvar hann er keyptur. Að sögn blaðsins eru fiskbúð- irnar mun hagstæðari en stór- markaðir og mun muna að meðaltali um 20% á nýjum ýsuflökum. 24. febrúar greindi Þjóð- viljinn frá því að mikill mis- brestur virðist hafa orðið á því að verð á snyrtivörum hafi lækkað, en eins og menn muna átti verðlækkun varalita og ilm- vatna að vera neytendum huggun harmi gegn er matar- skatturinn skall á. Þessi hugg- un virðist hafa verið skamm- vinn. 2. mars fjallaði DV um 190% jöfnunargjald er Jón Helgason dembdi á innfluttar franskar kartöflur og unnar kartöíluafurðir. Sama dag skýrði Timinn frá 9.7% hækkun á nautakjöti og 5.4% hækkun á kindakjöti. samkvæmtákvörðun Verðlags- nefndar búvara. Pá hækkaði mjólk um 6.3%, smjör um 9.5% og rjómi um 4.5% 5.mars birti Tíminn athygl- isverða umfjöllun Heiðar Helgadóttur, blaðamanns. þar sem hún fjallar um mismun á verði á matvöru. annars vegar í ódýrustu stórmörkuðum höf- uðborgarsvæðisins og hins vegar í Verslunarfélagi Austur- lands á Egilstöðum. Heiður fær út að fjölskylda sem í Reykjavík getur látið 25.000 kr. nægja í matarkaup á mánuði þyrfti að borga 68.400 kr. meira á hverju ári ef hún verslaði á Austfjörðum. En mismunurinn er ekki aðeins álagning Verslunarfélagsins, því söluskattur leggst ofaná smásöluverð og því greiðir þetta fólk 13.680 kr. meira í söluskatt en fjölskyldan í Reykjavík. Ef gengið er eitt skref í viðbót og reiknað með því að fjöl- skyldan þurfi að vinna auka- vinnu fyrir þessum 68.000 kr. má reikna með því að greiða þurfi tekjuskatt. Aukatekjur fjölskyldunnar þyrftu að nema 106.000 kr. því 37.300 færu í skatta og þar með er ríkissjóð- ur búinn að fá 51.000 krónum meira i skatta af fjölskyldunni á Egilstöðum en þeirri í Reykja- vík þótt svo báðar hafi í raun keypt það sama og þannig eytt sömu verðmætum. Sama dag greinir Alþýðu- blaðið frá verðkönnun sinni sem leiðir i ljós mikla sam- keppni milli verslana á Reykjíj- víkursvæðinu og töluvert hærra vöruverð á landsbyggð- inni. Blaðið segir t.d. vöruverð í Kaupfélagi Árnesinga röskum 13% hærra en i Fjarðarkaup- um í Hafnarfirði. voru landsmenn í óðaönn að ná sér eflir það álall er innheimtuseðlar bifreiða- trygginga voru. Alls varð hækkun á ábyrgðartrygging- um tæp 100%. en samkvæmt fréttum varð innheimta mjög góð. 11. mars fjallar Þjóðviljinn um væntanlegan „Verðvísi" frá FÍB sem félagið hyggst gefa út eftir að verðkönnun Verðlags- stofnunar leiðir í ljós mjög mik- inn verðmun á varahlutum í bíla. í frétt blaðsins er nefnt sem dæmi að kveikjulok í Hondabíl kostar í Blossa 163 kr. en i umboðinu 695 kr. 12. mars brá Alþýðublaðið sér í hársnyrtingu. Niðurstaða blaðsins var að 140% verð- munur væri á klippingunni. Sem dæmi má nefna að hár- og skeggsnyrting hjá Aristokrat- anum í Reykjavík kostar 1.585 kr. en hjá Rakarastofunni Höfn, Hornafirði 650 kr. Ódýr- ust á Reykjavíkursvæðinu var þessi þjónusta á Rakarastofu Þórðar Helgasonar, Skóla- vörðustíg, á 800 kr. 12. apríl vekur DV athygli á nokkru sem neytendur ættu að hafa í huga þegar verðkannanir eru skoðaðar. I verðkönnunum er. til að samræmi sé milli verslana, yfirleitt aðeins borin saman vörumerki sem fást í nánast öllum verslunum. Það eru yfirleitt vörur sem fluttar eru inn af íslenskum heildsöl- um sem taka sína þóknun fyrir. Stórmarkaðirnir flytja hins vegar talsvert mikið inn beint og þá önnur vörumerki og óþekktari og eru þessar vörur í mörgum tilfellum miklu ódýr- ari, en koma sjaldan fram í verðkönnunum þvi oft fást þær aðeins í einni verslun svo samanburður við aðrar er erfið- ur. 21. apríl greinir Alþýðu- blaðið frá því að kartöflubænd- ur vinni við að skipuleggja framleiðslustýringu. Jónas Bjarnason. hjá Neytenda- samtökunum, segir í samtali við blaðið að ef af slíku verði, sé það nánast eins og stríðsyfir- lýsing við neytendur. 30. apríl birtir Þjóðviljinn varnaðarorð Verðlagsstofnun- ar gegn óprúttinni sölu- mennsku, villandi upplýsing- um og ólöglegum viðskipta- háttum. Nefnt er sem dæmi að húsgögn hafi verið auglýst sem „Leður-lúx" á meðan áklæðið hafi verið rétt og slétt leðurlíki. Fleiri dæmi eru tckin. VINNAN — JÚNÍ 1988 — 9

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.