Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Blaðsíða 12

Vinnan - 01.06.1988, Blaðsíða 12
— niðurstaða könnunar innan prentiðnaðarins ,,Sá mikli fjöldi fólks, sem hefur líkamleg óþæg- indi, er þaö tengir vinnu sinni er athyglisverður. Einnig sú aukning sjúkdómseinkenna, sem kemur fram, þegar þau eru borin saman viö skjáviðveru. Slíkt veröur þó alltaf aö taka meö varúð, þar sem ekki er hægt að einangra þessa þætti.“ Petta er hluti niðurstaða úr skýrslu er Vinnunni barst fyrir skömmu og fjallar um vinnu- skilyrði skjávinnufólks. Örygg- isnefnd prentiðnaðarins gaf skýrsluna út en Sigríður Stefánsdóttir, réttarfélagsfræð- ingur samdi skýrsluna og framkvæmdi könnunina er hún byggir á, en þar var m.a. talað við 123 starfsmenn sem vinna meira eða minna við tölvuskjái. Markmið könnunarinnar var að fá fram vísbendingar um hvar helstu vandamál lægju og hvar helst væri þörf úrbóta hjá skjávinnufólki í prentiðnaði. í skýrslunni segir m.a.: „Óhætt er að segja að okkur hafi tekist þetta ætlunarverk á þann veg að mörg vandamál hafa komið mjög skýrt í ljós með sam- hljóða svörum mikils hluta við- mælenda, auk þess sem ein- stakar, en oft á tíðum mikil- vægar ábendingar hafa komið fram.“ Peir sem könnunin náði til svöruðu 70 spurningum og fóru viðtölin fram í bókasafni Félags bókagerðamanna. Spurningarnar fjölluðu aðal- lega, auk almennra spurninga, um vinnutíma, vinnuaðstöðu, heilsufar, fræðslumál og kjara- samninga. Skjávinnufólk er frekar ungt og reyndust langflestir vera á aldrinum 20-41 ára. Þá reynd- ust nær allir ófaglærðir starfs- menn vera konur en stærstur hluti faglærðra, sem í þessu til- felli eru setjarar, vera karlar. Stærstur hluti úrtaksins hefur unnið við skjávinnu í 2-10 ár. Langur vinnutími og aðstöduleysi Stærstur hluti fólksins, eða alls 92 vinna meira en 40 stunda vinnuviku og lengri eðat allt að 60 stundir á viku. Meðal- vinnutími karla reynist vera 51.3 klst.og kvenna 43.4 klst. A stórum hluta þeirra vinnu- staða sem þátttakendur könn- unarinnar vinna á, reynist að- staða fyrir starfsmenn vera af mjög skornum skammti og víða sögðust starfsmenn borða og hvíla sig sitjandi við skjáinn. Þó voru á flestum stöðum kaffi- stofur, en misjafnar að gæðum. í samningum prentiðnaðar- manna er kveðið á um hvíldar- tíma fyrir skjávinnufólk, og töldu flestir sig ná umsaminni hvíld. Samkvæmt skýrslunni er mjög mismunandi hvernig hvildartímar nýtast og kemur þar margt inn í. Bæði búa fyrir- tækin mjög mismunandi að starfsfólki sínu og síðan spila hlutir eins og reykingar, vinnu- fyrirkomulag og annað inn í. Sjúkdómar og heilsuleysi Rösk 40% töldu sig hafa orð- ið vör við heilsufarsbreytingar frá því þau hófu störf við skjá- vinnu. Svipaður fjöldi hafði leitað læknis á síðustu 12 mán- uðum, þó það hafi ekki einung- is verið vegna atvinnusjúk- dóma. Þegar spurt var hvort viðkomandi hefði einhverja líkamlega kvilla eða óþægindi sem tengdust vinnunni kom í ljós að mikill meirihluti, eða 85% svöruðu spurningunni játandi. Þegar nánar var spurt út þetta atriði komu 4 flokkar óþæginda í ljós sem varu afger- andi stæðstir. W V \sM 1IU« Líkamleg óþægindi af vinnu við tölvu Sumarsýning í Listasafni ASÍ Fjórar kynslóðir í íslenskri myndlist í Listasafni ASÍ stendur nú yfir málverkasýning, sem nefnist „Fjórar kynslóðir". Þar er um að ræða myndir í eigu safnsins, sem gróflega hefur verið skipt eftir höfuðtímabilunum í íslenskri nútímalist. Fyrst ber að telja frumherjana Þórarin B. Þorláks- son, Ásgrím Jónsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson og fyrstu konuna sem fór utan til list- náms, Júlíönu Sveinsdóttur. Siðan kemur tímabil milli- stríðsáranna. þegar menn á borð við Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts og Þorvald Skúlason komu á sjónarsviðið. Þriðja tímabilið mætti e.t.v. kalla abstraktskeiðið í íslenskri myndlist, en því tilheyra menn sem létu að sér kveða eftir seinni heimsstyrjöldina og eru sumir enn í fullu fjöri. Þar á meðal eru Karl Kvaran, Nína Tfyggvadóttir. Svavar Guðna- son og Valtýr Pétursson, sem nú er nýlátinn. Síðasta tímabilið telst siðan frá sjöunda áratugnum fram til dagsins í dag. íslensk myndlist er ung að árum Þessari sýningu er ekki ætlað að vera tæmandi úttekt á is- lenskri listasögu 20. aldarinn- ar, en vonandi gefur hún ein- hverja hugmynd um megin- strauma og einnig um það aíl, sem býr í íslenskri myndlist þegar hún er sem best. Sýning þessi er opin alla virka daga kl. 16-20, en um helgar kl. 14-20. Henni lýkur 17. júlí n.k. Saga íslenskrar myndlistar er ung að árum. Sköpunarþörf íslendinga hefur löngum fyrst og fremst fengið útrás í list orðsins. auk þess sem hag- leiksmenn fengust einkum við að skreyta hversdagslega brúkshluti. Hér voru engir listaskólar, engin listaverk á opinberum stöðum og engin gróin borgarastétt sem skapaði markað fyrir listaverk. Um síð- ustu aldamót voru aðstæður þannig. að einu myndirnar sem allur þorri manna hafði séð, voru utan á umbúðum utan um kaffi og aðrar vörur. í stuttu máli má segja, að hér á landi hafi löngum skort flest það, sem mátti verða til þess að hvetja menn til að helga sig list- sköpun. Með vaknandi sjálfstæðisvit- und þjóðarinnar skapaðist smám saman grundvöllur fyrir starfandi listamenn, en þó má teljast ótrúleg dirfska af braut- ryðjendum íslenskrar mynd- listar að varpa fyrir róða mögu- leikum á tryggri afkomu við hefðbundnari störf og leita á vit listagyðjunnar. Ekki skorti heldur úrtölumenn hér heima. En þessir verðandi listamenn létu slíkt eins og vind um eyru fjúka og á ótrúlega skömmum tíma brunaði íslensk myndlist alla leið aftan úr miðöldum inn í nútímann. Harður agi akademíunnar í fyrstu lá leið frumherjanna til Kaupmannahafnar. En þeg- ar hörðum aga listaskólanna sleppti, litu hinir ungu og leit- andí listamenn til meginlands- ins, og þá fyrst og fremst til Frakklandsog Þýskalands, þar sem byltingarkenndir hlutir voru að gerast upp úr aldamót- um í notkun lita og forms. Myndlistarmenn létu sér ekki lengur nægja að mála myndir sem voru frásagnir. ýmist af ytra útliti landslags, fólki við dagleg störf, eða af sögulegum atburðum. Nú tóku þeir til við að lvsa stemningum, tilfinn- ingum sínum gagnvart um- hverfinu, og jafnvel tilfinning- um sem ákveðnir litir vöktu innra með þeim. Smám saman fóru þeir einnig að sleppa öllu óviðkomandi úr myndunum, öllu sem gat hugsanlega trufl- að þau áhrif sem þeir vildu hafa á áhorfandann. Þessar hugmyndir áttu ekki upp á pallborðið hjá myndlist- arskólum, sem báru bagga aldagamalla hefða. Þar var enn nuddað í smá- atriðunum, og jafnvel var lögð áhersla á dimmt yfirbragð myndanna, eins og þeirra sí- gildu listaverka sem sjá mátti á söfnum. Skærir litir voru allt að því bannlýstir. Löngu seinna, þegar verk ýmissa gamalla meistara 17. og 18. aldar voru tekin til viðgerða og hreinsun- ar, kom hins vegar í ljós, að þau voru alls ekki dökk og musku- leg. Dökknandi fernisolía og reykur áttu sökina. Þannig má segja, að skortur á myndlistarhefð hér á landi hafi átt ríkan þátt í að auðga ís- lenska list þegar hún var kom- in á skrið. þar sem listamenn litu í allar áttir í senn, óbundnir af ákveðnum skólum. Þrátt fyrir nám í Kaupmannahöfn og náin kynni af fremstu lista- mönnum Norðurlandanna, skipuðu fyrstu íslensku málar- arnir sér á bekk með lista- mönnum meginlandsins frem- ur en hinum norrænu. Ekki bara gott fyrir sauðfé Heimkomnir byrjuðu braut- ryðjendurnir á að leggja til at- lögu við landslagið. Þar fetuðu þeir i fótspor hinna róman- tisku skálda þjóðernisvakning- arinnar. Skyndilega tók þjóðin að meta fegurð landslagsins eftir öðrum sjónarmiðum en hvort það væri gott fyrir sauðfé. Litírnir og birtan hér heima líktust engu sem menn höfðu áður séð á málverkum. Sá hópur, sem kom fram á sjónarsviðið á ár- unum eftirheimsstyrjöldina fyrri, boðaði nýja tíma i is- lenskri myndlist. Ekki áttu þeir alltaf auðvelt uppdráttar, né þær túlkunarleiðir, sem þeir völdu. Með því að taka að láni ýmsar aðferðir kúbismans og með einföldun á línum og flöt- um boðuðu þeir komu abstraktlistarinnar. Þetta tíma- bil einkennist e.t.v. meira af þýskum áhrifum millistriðsár- anna en nokkurt annað í skammri listasögu okkar. Menn tóku að lita á ákveðna liti sem tákn og samkvæmt þeim hugmyndum, sem þróuðust við Bauhaus-skólann, tengd- ust grunnlitirnir rauður, gulur og blár ákveðnum grunnform- um. Þessar hugmyndir tóku hinir íslensku málarar til sin og unnu út frá þeim. Abstraktveislan Síðan má segja, að um hart- nær þriggja áratuga skeið hafi staðið ein allsherjar abstrakt- veisla, með nokkrum undan- tekningum þó. Ef skilgreina á abstraktlist- ina, eins og hún birtist okkur hjá íslenskum listamönnum gróskutímabilsins eftir seinni heimsstyrjöld. má segja, að gróflega skiptist hún í þrennt. í fyrsta lagi er eins konar abstrakt expressjónismi, þar sem andstæðum litum og formum er teflt saman svo þeir mynda kraftmikla heild. Grunnformin eru oft fengin úr náttúrunni og þekkja má fyrir- bæri úr landslagi í myndunum. í öðru lagi má nefna geómetrískar myndir, án nokk- urrar skírskotunar til hlutveru- leikans, þar sem ströng skil- greining hreinna forma er und- 12 — VINNAN — JÚNl 1988

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.