Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Side 15

Vinnan - 01.06.1988, Side 15
Kcmur oftar fram hjá vakta- vinnufólki en hjá þeim sem vinna aðeins á daginn, en enn er verið að skoða af hvaða orsökum það kann að stafa. í rannsókn nokkurri þar sem starfsfóik í vefjariðnaði var undir smásjánni, kom í ljós, að því var 5 til 15 sinnum hættara við að fá einkenni kvíða og þunglyndis en dagvinnufólki. Þetta voru starfsmenn sem unnu næturvinnu og tauga- veiklun þeirra varð annað hvort að mæta með taugalyfj- um eða sjúkrahúsvist. Þegar þessar niðurstöður eru metnar, verður einnig að skoða aðra þætti sem geta leitt til aukinn- ar tíðni geðsjúkdóma. Vakta- vinnufólk er oft minna mennt- að en davinnufólk, býr við verri félagslega stöðu í þjóðfélaginu, vinnur oft einhæfari störf við meira álag. Allt þetta getur leitt til geðsjúkdóma þegar allir þessir þættir koma saman. Vaktavinna og hjartaáföll Menn hafa getað tengt saman hjartasjúkdóma og vakta- vinnu. í Svíþjóð kom í ljós við rannsókn, að sænskir kari- menn sem höfðu fengið hjarta- áfall voru mun líklegar úr hópi vaktavinnumanna en úr öðr- um störfum. í rannsókn sem Orth og Gomer unnu 1983 kom í ljós að ýmsir sjúkdómsþættir, sem leiða til hjartasjúkdóma voru fyrir hendi hjá lögreglu- mönnum, sem unnu á breyti- legum vöktum eftir sólar- hringnum. Þá kemur í ljós að breytt meðhöndlun, matartímar og svefntími sem háður er vakta- vinnu getur virkað örvandi á ólæknandi sjúkdóma eins og sykursýki, flogaveiki, asma og spennu. Vaktavinnufólk, sem á við sjúkdóma af þessu tagi að stríða hefur oft fengið sérstaka meðhöndlun hjá heilbrigðis- stofnunum sem sinna atvinnu- sjúkdómum. í sumum tilfell- um hefur náðst árangur með lyfjagjöf og breyttum matar- tímum, en oftast hefur þessum einstaklingum verið ráðlagt að halda sér frá vaktavinnu eða að vera þá undir sérstöku eftirliti ef nauðsynlegt er að gegna störfum eftir vaktafyrirkomu- lagi. Vaktavinna og starfshæfni Það hefur reynst erfitt að meta áhrif vaktavinnu á hæfni í starfi og vinnuframlag. Það hefur þegar verið rakið hvernig ýmsir þættir m.a. í starfsvali valda því að ekki er auðvelt að meta áhrif vaktavinnu á heilsu- far. Aðrar ástæður valda því að erfitt er að meta áhrif hennar á starfshæfni manna. Mest er það vegna þess að verkalýðsfé- lög og stjórnir fyrirtækja eru ófús að vinna með rannsóknar- mönnum, því ræður ótti við að niðurstöðurnar verði gerðar opinberar. Þrátt fyrir þennan vanda eru til gögn sem benda til þess að vaktavinna hafi slæm áhrif á starfshæfni. Ljóst er að mjög dregur úr árverkni á næturvöktum. Símaverðir eru seinni til svara, nákvæmni minnkar hjá þeim sem eiga að lesa af mælum, lestarstjórar taka síður eftir að ljósmerki breytast og slysa- tíðni eykst hjá vörubílstjórum sem eru eins síns liðs í bílun- um. Dæmi um alvarlegt tilvik, þar sem starfshæfni minnkaði og olli stórslysi er kjarnorku- slysið á Three Mile Island. Rannsóknir á því slysi, sem varð kl. 4 að morgni, hafa bent til þess að þreyta starfsmanna sem unnu á breytilegum vökt- um eftir vikuáætlunum, eigi sinn þátt í þeim mistökum sem leiddu til slyssins. Það er áhyggjuefni að margir verka- menn eru enn á sams konar vöktum, en einmitt þetta fyrir- komulag er talið hafa slæm áhrif á líkamsryþmann og minnka starfshæfni og öryggi á vinnustað. Nýlega kom fram í rannsókn á sólarhringsryþma hjá hjúkrunarfólki, sem vann á næturvöktum að nokkur hóp- ur þess varð fyrir fáeinna mín- útna ..lömun" þ.e. gat ekki unn- ið störf sín meðan á henni stóð. í rannsókninni kom í ljós að 12% hjúkrunarfólksins hafði upplifað þessi einkenni sem komu fram í algerri hreyfilöm- un í u.þ.b. fjórar mínútur. Löm- unin átti sér venjulega stað snemma morguns þegar setið var að lestri eða skrift við skrif- borðið. Nauðsynlegt er að kanna þetta fyrirbæri betur, en augljóst er hvaða áhrif það get- ur haft á allt öryggi á vinnu- stað. Nú stendur til að rann- saka einnig hvort þetta fyrir- bæri kemur víðar fram t.d. hjá flugumferðarstjórum. Vaktavinna og vellíðan Mat vaktavinnumannsins á vellíðan sinni skiptir miklu þegar heildaráhrif vaktavinnu eru metin, þar sem tilfinning hans fyrir vellíðan hefur áhrif á aðra þætti, heilsu, hæfni og þol gagnvart vinnunni. Fram hefur komið í könnunum, að í stað þess að meta ákveðna vanlíðan til sjúkdóma, beinir vaktvinnu- maðurinn sjónum sínum að ýmsum þáttum, sem hann metur persónulega. Þar má nefna svefn. félagslíf, gremju, álag og geðrænar truflanir. Eitt af algengustu umkvört- unarefnum vaktavinnufólks er að vinnan, vinnutíminn sem slíkur. skaði félagslíf þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að vakta- vinnufólk sinnir síður félags- málastarfi en aðrir, ver frí- stundum sínum frekar í ein- veru, það á oftar við fjölskyldu- vandamál og vandamál í kyn- lífi aö stríða en aðrir, auk þess sem hjónaskilnaðir eru algeng- ari hjá vaktavinnufólki en í samanburðarhópum. Einnig hefur komið í ljós, að vaktavinnufólk á við fleiri geð- ræn vandamál að stríða og kvartar helmingi meira en dag- vinnufólk undan pirringi og álagi. Oft eru þessi umkvörtun- arefni í þessum dúr: „Þjáist af höfuðverk, magaverkjum, er þreytt/ur og uppgefin/n allan vinnudaginn, er eins og tauga- hrúga, á erfitt með að stilla skap mitt“. Ofdrykkja Vanlíðan vaktavinnumanna og það hversu erfitt þeim reyn- ist mörgum að aðlagast þessu vinnuformi, getur einnig kom- ið fram í aukinni áfengisneyslu þessa hóps. í kanadískri könn- un kom í ljós, að ofdrykkja var tvöfalt meira vandamál hjá vaktavinnumönnum en öðrum sambærilegum hópum, sem ekki unnu á vöktum. Mikið er undir því komið að starfsfólkið sé ánægt með starfið og vakta- fyrirkomulagið. Sannað er að þetta fólk er óánægðara í starfi og kvartar meira yfir vinnu- tíma en aðrir.TVær nýlegar kannanir sýna einnig, að vaktavinnufólk tekur breyti- legar vaktir sem fylgja líkams- ryþmanum fram yfir vaktir sem ekki taka mið af líffræði- legum þáttum. Þættir sem hafa áhrif á aðlögun að vaktavinnu Margir þættir virðast hafa áhrif á það hve vel vaktavinnu- fólk aðlagast þessu vinnu- formi. Meiri háttar áhrifavaldar eru: tegund vaktaáætlunar, röð og tíðni breytinga á vaktaáætl- un, hvernig starfsmönnum tekst að aðlaga svefntíma, mat- arvenjur og félagslíf að vakta- töflunni. Einnig skiptir aldur nokkru máli. Venjulega á vaktavinnufólk ekki erfitt með að aðlagast kvöldvöktum eða því þegar skipt er milli dag og kvöldvakta með reglulegum hætti. Það er vegna þess að þessar vaktir hafa mjög lítil áhrif á líkams- ryþma starfsmannanna. Sú vaktavinna sem veldur mestri röskun er stöðug vaktavinna á nóttunni og vaktavinna sem róterar og næturvaktir eru hluti vaktahringsins. Einnig hefur komið í ljós, að röð og tíðni breytinga á vakta- fyrirkomulagi hefur mikil áhrif á aðlögun starfsmanna að vaktavinnuforminu. Rann- sóknir hafa sýnt að vakta- vinnufólk, sem er á róterandi vöktum, getur ekki aðlagast vaktaáætlunum, sem breytast meira en einu sinni á tveggja til þriggja vikna fresti. Ef þessi tími er styttri þá nær sólar- hringsryþmi einstaklingsins ekki að aðlagast nýrri vakta- töflu. Þvi miður eru róterandi vaktatöflur á vikugrunni enn- þá algengar í bandarískum iðnaði. Rannsóknir hafa sýnt að vaktir sem breytast eftir klukk'- unni, fara mun betur með vaktavinnufólk en vaktir sem færast á móti klukkunni. Ástæðan fyrir þessu er sú, að það á betur við sólarhrings- ryþma mannslíkamans að hreyfast eftir klukkunni fram á við en aftur á bak. Þegar vaktatöflur breytast mjög ört eftir sólarhringnum jafnvel á hverjum degi eða annan hvern dag, þá nær sólar- hringsryþmi líkamans ekki að aðlagast breyttum tímasetn- ingum og starfsmenn halda því oft við þessar aðstæður uppi venjubundnum daglegum athöfnum. Þó að vaktatöflur af þessu tagi minnki greinilega starfshæfni, þá virðist jafnvel minni röskun af þeim að öðru leyti og þess vegna taka vakta- vinnumenn þær jafnvel fram yfir önnur vaktaform. Þó ber að gjalda varhug við að skipu- leggja vaktir með þessum hætti þar sem starfið byggist á flóknum verkum, sem byggja á mikilli þekkingu eða þar sem sérstakrar aðgæslu er þörf. Oft spyr vaktavinnufólk þeirrar spurningar, sérstak- lega ef það vinnur mikið á næt- urvöktum eða á breytilegum vöktum, hvernig það eigi að haga föstum daglegum venj- um við þessar aðstæður, s.s. svefntíma, matartíma og þátt- töku í félagslifi. Reynslan sýnir að best er að koma sér upp föstum dagleg- um reglum í þessu efni því þær hjálpa okkur að aðlagast vakta- vinnu. Sérstaklega er þetta mikilvægt á frídögum, þvi þá hættir vaktavinnufólkinu til að hverfa til fyrri lífshátta eða taka upp daglega háttu fjölskyldu og vina. Að lokum skal þess getið að aldur er vegamikill þáttur þeg- ar rætt er um áhrif vaktavinnu og aðlögun að þessu vinnu- formi. Aðferðir til •ad’-' ’ ’» aðlagast vaktavinnu Fyllyrða má að mikill meiri- hluti fólks líti á vaktvinnu sem óþægilegt vinnuform, sem það þó tekur sem hverri annari skyldu sem fylgir starfinu. Hjúkrunarfólk, sem fæst við að leysa ýmsan vanda af þessu tagi í atvinnulífinu, verður að líta á það hve mjög þessi vandi getur haft áhrif á hæfileika manna til að gegna starfi sínu með góðum árangri. Eitt af því fyrsta sem hjúkr- unarfólk ætti að skoða þegar það stendur frammi fyrir verk- efnum af þessu tagi, er að meta vaktatöflur viðkomandi starfs- manna, skoða hve oft vaktir breytast í tíma og í hvaða röð. Ef vaktirnar breytast vikulega eða á móti klukkunni, ætti að byrja á því að breyta kerfinu sjálfu. Einnig ætti hjúkrunarfólk sem fæst við þessi mál að kynna sér hina ýmsu heilsu- farslegu áhættuþætti, sem fylgja breytilegum vöktum og næturvöktum svo þeir geti beint sjónum sínum að mikil- vægustu atriðum vandans hverju sinni. Þessi atriði varða m.a. ýmsa röskun á meltingu, hjartakvilla og taugaveiklun. Annað sem huga þarf að er mögulegt svefnleysi, vandi í fjölskyldu og félagslifi , hjóna- bandi og kynlili og erfiðleikar við að halda reglulegum matarvenjum þegar unnið er á kvöld og næturvöktum. Sérstaklega þarf að huga að þeim slarfsmönnum í vakta- vinnu, sem hafa ált við heilsu- farslegan vanda að stríða frá fyrri tíð og þeirra sem þarfnast lyfjameðferðar eða sérstaks mataræðis. Starfsmenn með alvarlega sjúkdóma, s.s. sykur- sýki, asma llogaveiki, of- spennu o.s. frv., ættu að halda sig við dagvinnu, eða kvöld- vinnu cða að öðrum kosti að vera undir eftirliti sérfræðings, sem veitir ráðgjöf um matar- æði og lyfjagjöf sem hentar vaktformi og lífsháttum að öðru leyti. Einnig ætti að sinna eldri starfsmönnum í vakta- vinnu sérstaklega, því líklegl er að þeir aðlagist síður vakta- vinnunni en yngra fólk. Daglegar venjur mikilvægar Fyrir utan þessar leiðbein- ingar, getur hjúkrunarfólk á þessu sviði veitt ýmsar ábend- ingar sem að gagni koma til að aðlagast vaktavinnu. í hverri vaktalotu, ætti að hvetja vakta- vinnufólk til að halda uppi af fremsta megni daglegum venj- um um hreyfingu og svefn- tíma, sérstaklega á frídögum. Máltíða á að neyta á sama tíma dags og fæða á að vera alhliða. Vegna þess hve vaktavinna er í raun lýjandi, ætti að hvetja allt vaktavinnufólk til að gæta heilsu sinnar í hvívetna og taka upp lífsháttu sem markast af mikilli hreyfingu, góðu mataræði og góðum svefntíma. Hjúkrunarfólk mun með þessum hætti geta betur með- höndlað ýmis einkenni' sem koma fram hjá vaktavinnu- fólki, ef það lærir að hagnýta sér þá þekkingu sem til er um áhrif þessa vinnuforms á starfsfólk. Það fylgir ætíð álag vaktavinnu, en daga má úr því með því að brjóta upp vakta- áætlanir þannig að þær fylgi sólarhringsryþmanum og með því að kenna starfsmönnum sjálfum aðferðir sem þeir geta sjálfir notað til að aðlagast vinnunni. Með þvi að nota þessar aðferðir, getur fólk í heil- brigðisstéttum, sem sinnir heilsuvernd á vinnustöðum og meðal starfsmanna almennt, bætt heilsu starfsmanna, starfshæfni þeirra og velíiðan. VINNAN — JÚNÍ 1988 — 15

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.