Vinnan - 01.06.1988, Blaðsíða 16
í málmiðnaði
Vinnuvernd:
*
Ofremdarástand
í samráði við hagsmunaaðila.
Síðan voru 53 fyrirtæki skoðuð
og sagði Guðmundur að þetta
hefði verið mjög ítarleg skoðun
og hjá sumum fyrirtækjum
hefði listinn yfir nauðsynlegar
endurbætur verið nokkuð
langur eða allt að 20-30 atriði.
Frestur þar til í
haust
,,Að skoðuninni lokinni skrif-
uðum við fyrirtækjunum
ábyrgðarbréf og skoruðum á
þau að láta lagfæra það sem til-
tekið var. Við eru búnir að
hringja í fyrirtækin og þá kom
í ljós að 37 þeirra eru ekki búin
að láta lagfæra allt. Við vorum
því að senda siðari aðvörun
núna og gefum í henni frest
fram í september. Þá lenda
þessi fyrirtæki i þvingunarað-
gerðum."
En hvað er það sem helst er
ábótavant i aðbúnaði hjá fyrir-
tækjum í málmiðnaði? I skýrsl-
unni segir að skoðunin hafi
beinst aðallega að þremur
þáttum: Vinnurými, tækjum
og vélum, starfsmannaað-
stöðu.
Þegar vinnurými voru skoð-
uð kom í ljós að algengasta og
hættulegasta brotalömin var
loftræsting. í 85% tilfella
reyndist loftræsting ófullnægj-
andi eða ábótavant, og þetta er
því alvarlegra sem þekkt er að
við t.d. suðu á málmum mynd-
ast hættuleg efni sem valdið
geta alvarlegum öndunarfæra-
sjúkdómum.
Þá reyndist hávaðamengun
mikil og hávaðahlífar og hljóð-
einangrun lítið notuð. Þó var
notkun persónuhlífa nokkuð
almenn, en þyrfti að vera alger.
Lýsing í vinnurými reyndist
vandamál á helmingi vinnu-
staða, hiti í ólagi á fjórðungi
vinnustaða og á helmingi
vinnustaða var umgengni og
þrif á vinnurými viðunandi eða
betri.
Þegar litið er yfir niðurstöður
skoðunar á tækjum og vélum
er eitt atriði sem sker sig
nokkuð út, og það er að i all-
ilestum tilfellum er það hlífðar-
búnaður sem kom lakast út.
Þannig er t.d. farið með plötu-
klippur að þar er hlífðarbúnaði
áfátt í 35% tilfella á meðan
staðsetning og stjórnbúnaður
er í góðu lagi í 95% tilfella.
I niðurstöðum skýrslunnar
segir m.a. að smergelskífur og
slipirokkar hafi skorið sig úr
hvað varðar lélegan hlífðar-
búnað og einnig er vakin at-
hygli á þvi að öryggisfestingum
við gastæki sé áfátt og að sjald-
Sjá blaðsíðu 2
37 fyrirtæki í málmiðnaði eru þessa dagana að fá
lokaaðvörun frá Vinnueftirliti ríkisins, þar sem kraf-
ist er úrbóta á öryggismálum, hollustu- og aðbún-
aðarmálum fyrirtækjanna. í haust munu síðan
eftirlitsmenn Vinnueftirlitsins heimsækja þessi
fyrirtæki og beita trassana þvingunaraðgerðum ef
þörf verður á.
Þessar aðgerðir Vinnueftir- sem Vinnueftirlitið gaf út fyrir
litsins eru í framhaldi af sér- skömmu, og fjallar um niður-
stöku eftirlitsátaki stofnunar- stöður þessa átaks, segir að
innar á 53 fyrirtækjum á ástæður þess að málmiðnaður-
höfuðborgarsvæðinu. í skýrslu inn varð fyrir valinu, séu upp-
lýsingarum „allháá' slysatíðni
í greininni.
Vinnan ræddi lítillega við
Guðmund Eiríksson, um-
dæmisstjóra Vinnueftirlitsins í
Reykjavík, en hann hafði um-
sjón með framkvæmd verks-
ins. Guðmundur sagði að
Málm- og skipasmíðasamband
íslands hefði þrýst mjög á
Vinnueftirlitið að framkvæma
þetta verk og sagði að MSÍ ætl-
aði greinilega ekki að sleppa
Vinnueftirlitinu frá þessu verki
fyrr en því væri að fullu lokið.
Undirbúningur verksins
hófst 1987 og var það skipulagt
!