Vinnan - 01.04.1992, Blaðsíða 4
4
yiNi#N
Útgefandi:
Alþýðusamband íslands
Ritnefnd:
Lára V. Júlíusdóttir
Snorri S. Konráðsson
Þráinn Hallgrímsson
Ritstjóri:
Þorgrímur Gestsson
Ljósm.:
Róbert G. Ágústsson
Útlit:
Sævar Guðbjömsson
Afgreiðsla:
Grensásvegi 16A,
108 Reykjavík
Sími: 91-813044
Fax: 680093
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen og
Guðmundur Jóhannesson
Símar: 641895/641816
Fax:641525
Filmuvinnsla, prentun og
umbrot:
Borgarprent
Alþýðusamband ísiands:
Ásmundur Stefánsson. forseti,
Lára V. Júlíusdóttir lögfræð-
ingur ASI og framkvæmdastjóri,
Þráinn Hallgrímsson
skrifstofustjóri,
Ari Skúlason, Guðmundur Gylfi
Guðmundsson og Gylfi
Ambjömsson hagfræðingar,
Ásmundur Hilmarsson, fulltrúi,
Bolli B. Thoroddsen og Sigur-
þór Sigurðsson hagræðingar,
Ingibjörg Haraldsdóttir
gjaldkeri, Sif Olafsdóttir og
Aníta Pálsdóttir fulltrúar.
Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu:
Snorri S. Konráðsson
framkvæmdastjóri, Ingibjörg
Elsa Guðmundsdóttir og
Finnbjöm A. Hermannsson
fræðslufulltrúar, Bergþóra
Ingólfsdóttir gjaldkeri.
Listasafn
Alþýðusambandsins:
Ólafur Jónsson forstöðumaður,
Gísli Þór Sigurðsson umsjónar-
maður.
TÓM5TUNDA
SKOUNN
Tómstundaskólinn:
Vilborg Harðardóttir skólastjóri,
Sign'ður Einarsdóttir ritari.
Leiðari
Asmundur Stefqnsson
forseti ASI
Engir samningar
án kauphækkana
Samningar ASÍ félaganna runnu út í
september á liðnu hausti og hafa því ver-
ið lausir í meira en sex mánuði. Samn-
ingaviðræður félaga og sambanda í
haust og vetur skiluðu afar litlum árapgri
og nú er slitnað upp úr viðræðum ASÍ og
atvinnurekenda sem staðið hafa í tæpa
tvo mánuði.
Við viðræðuslitin er Ijóst að verkalýðs-
samtökin hafa góðan málstað.
Samstaðan^hefur verð traust ekki^að-
eins innan ASÍ heldur einnig milli ASÍ og
félaga okkar í BSRB og Kennarasam-
bandi íslands. Það hefur aldrei fyrr verið
jafn náið samstarf á milli samtakanna.
Kröfur samtakanna um kaupmátt júní-
mánaðar á síðasta ári og sérstakar
greiðslur til lágtekjufólks sýna samnings-
vilja.
Barátta samtakanna í vörn fyrir ís-
lenska velferðarkerfið endurspeglar al-
menna afstöðu landsmanna.
Atlaga ríkisstjórnarinnar að lífskjörum
almennings ógnar þeirri samheldni sem
hefur verið einkenni okkar þjóðfélags. Við
viljum þjóðfélag samábyrgðar þar sem
sjúklingar, aldraðir og börn eiga vísan
stuðning.
Viðræður samtakanna við stjórnvöld
hafa ekki staðið um nýja landvinninga í
velferðarkerfinu. Það hefur verið tekist á
um niðurskurðarstefnu ríkisstjórnarinnar.
Það hefur verið tekist á um rétt fólks
við gjaldþrot fyrirtækja.
Það hefur verið tekist á um áform ríkis-
stjórnarinnar um skerðingu atvinnuleysis-
bóta og greiðsluna í fæðingarorlofi.
Það hefur verið tekist á um gjaldtöku
og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu.
Fyrir viðræðuslitin hafði ríkisstjórnin
gengið til móts við ákveðin mikilvæg at-
riði í okkar kröfum þó verulega vantaði á
að svör hennar væru ásættanleg. Staða
verkalýðshreyfingarinnar er óhjákvæmi-
lega erfið þegar umræðan snýst um það
að fá ríkisstjórnina til að hætta við eða
draga til baka ákvarðanir um félagslegar
skerðingar. En vörnin er ekki síður mikil-
væg en sóknin.
Atvinnurekendur hafa ekki gefið nein
launahækkunartilboð í samningalotunni.
Þeirra eina tilboð er boðið um fast gengi.
Vissulega er fast gengi mikilvægt. Kaup-
hækkun sem strax er étin upp í gengis-
fellingum og verðbólgu kemur að engu
gangi. Atvinnurekendum á hins vegar að
vera Ijóst að engir samningar takast án
kauphækkana. Vilji þeir halda friðinn
verða þeir að koma til móts við kröfur
samtakanna.
Þegar til viðræðuslitanna kom höfðum
við lagt okkur öll fram um að finna lausn.
í formlegum og óformlegum viðræðum
reyndum við að draga fram hvort engin
smuga fyndist, hvort atvinnurekendur
væru í raun í engu tilbúnir til þess að
koma til móts við okkar kröfur. Að þeim
viðræðum loknum dró ég fram hvað ég
teldi að atvinnurekendur mundu lengst
ganga í launahækkunum. Ég lagði þetta
mat mitt fyrir hina stóru samninganefnd
ASÍ og félag okkar í BSRB og Kennara-
sambandinu. Vitað var að ágreiningur var
um þetta efni í hópi atvinnurekenda.
Því fór fjarri að allir einstaklingar og
hópar hefðu sama stöðumat. Það kom
fljótt í Ijós að ekki yrði samstaða um við-
ræður á þeim grunni. Viðræður gátu því
ekki haldið áfram.
í erfiðu árferði og ótraustu atvinnuá-
standi verða ákvarðanir um átök á vinnu-
markaði ekki teknar umhugsunarlaust.
Nú þegar viðræður hafa slitnað hlýtur
fyrsta skrefið að vera að fara yfir málin í
félögunum, vega þau og meta af raun-
sæi.
Verkalýðshreyfingin hefur staðið vel
saman í viðræðunum að undanförnu.
Þeirri samstöðu verður að halda.
VINNAN