Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Síða 5

Vinnan - 01.04.1992, Síða 5
5 Hið lengsta sem VSI vildi ganga -a& mati forseta ASI Áöur en viðræðuslit urðu lagði forseti ASÍ fyrir það fréttist af ágreiningi í þeirra hópi. Áréttað er að samninganefndina mat sitt á því hvað atvinnurek- hér er eingöngu um mat að ræða og ekkert liggur endur mundu lengst vilja ganga. Það mat fengust fyrir um að atvinnurekendur séu tilbúnir til samninga atvinnurekendur ekki til að staðfesta með tilboði og á þessum forsendum. Meðaltekjur þess landverkafólks inn- an raða ASI sem er með tekjur undir 80 þ.kr. á mánuði eru u.þ.b. 66 þ.kr. Sam- kvæmt því yrði launabótin að meðaltali um 7.000 kr. í hvort sinn, samtals 14.000 kr. á samningstímabilinu. Miðað við upplýsingar Kjararannsóknamefndar má gera ráð fyrir því að um 25-30% af land- verkafólki innan raða ASÍ fengju ein- hverja launauppbót. Fyrir þennan hóp má meta launauppbótina sem ígildi 0,8% launahækkunar í hvort sinn m.v. 12 mán- aða tímabil og samtals 1,6% á samnings- tímanum. Þetta vilja stjórnvöld leggja að mörkum Ríkisstjórnin er reiðubúin til að beita sér fyrir stöðugu gengi á samningstímanum og að vextir lækki verulega. Forsætisráðherra ssegist munu beita sér fyrir því að réttur launafólks til launa og lífeyrisréttar við gjaldþrot yrði færð- ur til samræmis við þær hugmyndir sem aðiiar vinnumarkaðarins hafa kynnt. Oskertur réttur til atvinnuleysisbóta. Réttur til fæðingarorlofs verður ekki skertur á samningstímanum. Stjómvöld munu ekki hækka vexti í félagslega fbúðakerfinu á samningstímabiiinu. Þetta met- ur ríkisstjórnin á 350 milljónir. Til að létta greiðslubyrði barnafjölskyldna í heilbrigðis- kerfinu hyggst ríkisstjómin breyta reglum um greiðslur þannig að ekki verði tekið gjald fyrir börn að 6 ára aldri. Hámarksgreiðslur fyrir læknisheimsóknir barna undir 16 ára aldri verði 6 þúsund krónur í stað 12 þúsund. Böm sem njóta umönnunarbóta falli undir sömu reglur og öryrkjar vegna greiðslna í heilbrigð- iskerfinu. Stjórnvöld munu yfirfara reglur um gjaldtöku vegna hjálpartækja. Vegna ákvarð- ana um flatan niðurskurð á sjúkrahúsum hafa stjórnvöld verið reiðubúin að endurskoða á- form um lokanir á öldmnardeildum og bama- geðdeilum. Vegna lyfjakostnaðar og áforma um hlutfallsgjald í lyfjamálum vilja stjórnvöld samráð við aðila um þak á greiðslur einstak- linga og fjölskyldna. Staða leigjenda sem búa við lökust kjör verður skoðuð sérstaklega. Stjómvöld vilja herða skatteftirlit í samstarfi við verkalýðshreyfingunaRíkisstjórnin mun beita sér fyrir því að frumvarp um starfs- menntun, verði að lögum. Þess má vænta að settar verði reglur sem skerði rétt atvinnurek- enda til fjöldauppsagna starfsmanna. Auk þessara atriða hefur verið rætt um að breyta fyrirkomulagi bamabóta þannig að bæt- ur hækki til þeirra hópa sem hafa fjölskyldu- tekjur undir 230.000, en lækki til annarra, og þeir sem hafa fjölskyldutekjur yfir kr. 300.000 fái engar barnabætur. Verði þessi leið farin eykst kaupmáttur bamafólks með tekjur undir 100.000 verulega. Ríkisstjórnin metur þessi atriði á samtals rúmlega einn milljarð króna og ljóst er að for- senda þessara aðgerða er að kjarasamningar náist. Tafir á samningum hafa valdið því að engar greiðslur hafa verið inntar af hendi vegna gjaldþrota búa og halda menn að sér höndum meðan ósamið er. 1. apríl: 1,0% grunnkaupshækkun 1,00% 1. júní: Launabót; helming af því sem vantar á 80 þ.kr. Metið á 0,2% fyrir heild, en 0,8% fyrir þá sem eru undir við miðunarmörkum. 0,20% 1. júní -15. ágúst: Orlofsuppbót hækki úr 7.500 kr. í 8.000 kr. 0,03% 1. september: 0,5% grunnkaupshækkun 0,50% 1. desember: Launabót; helming af því sem vantar á 80 þ.kr. Metið á 0,2% fyrir heild, en 0,8% fyrir þá sem eru undir viðmiðunarmörkum. 0,20% 1. desember: Desemberuppbót hækki úr 10.000 kr. í 12.000 kr ,metið á 0,1%. 0,10% 1. apríl 1993: 1,25% grunnkaupshækkun, þó á valdi hvers félags að taka ákvörðun um framhald í Ijósi samningsstöðu um sérmál á þeim tíma. 1,25% 1. júní 1993: Launabót; helming af því sem vantar á 80 þ.kr. Metið á 0,2% fyrir heild, en 0,8% fyrir þá sem eru undir viðmiðunarmörkum. 0,20% Launabætur Launabætumar í júní og desember em reiknaðar á sama hátt og í síðasta samningi, þ.e. stiglækkandi upp að 80 þ.kr. viðmiðunarmörkum. Launabæturnar kæmu út á eft- irfarandi hátt: Dæmi: 50.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 50.000)/2 = 15.000 kr. tvisvar á samningstímanum. 55.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 55.000)/2 = 12.500 kr. tvisvar á samningstímanum. 60.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 60.000)/2 = 10.000 kr. tvisvar á samningstímanum. 65.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 65.000)/2 = 7.500 kr. tvisvar á samningstímanum. 70.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 70.000)/2 = 5.000 kr. tvisvar á samningstímanum. 75.000 kr. að meðaltali: (80.000 - 75.000)/2 = 2.500 kr. tvisvar á samningstímanum. VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.