Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.04.1992, Blaðsíða 9
Straumsvík 9 kröfum um beinar launlækkanir skeið og læri að varast hættumar. Ekki síst ungir menn sem ekki eru alltaf jafn varkárir og þeir sem eldri eru hér. Hann benti jafnframt á, að þótt búið væri að loka keri með nýrri þekju þyrfti það jafnan að vera opið við áltöku og skautskipti. Þegar gömlu hlerarnir voru opnaðir með handafli var hægt að opna þá aðeins til hálfs. En með nýja fjar- stýrða búnaðinum er öll hliðin opnuð við áltöku og skautskipti. Þeir Gylfi og Eyjólfur sögðu að með ýmsum tækni- breytingum, nýjum áltökubílum og fleiri nýjungum, óttuðust menn að of langt yrði gengið í fækkun starfsmanna. Það yrði að gæta þess að fækka ekki mönn- um á kostnað öryggis. Aukin framleiósla - færri starfsmenn Talið barst að kjaramálum starfsmanna og ýmsu sem tengist þeim. Gylfi Ingvars- son sagði að um þessar mundir væri aðallega deilt um tvö atriði: -Þegar starfsmenn fengu svokallaða „eingreiðslu” árið 1989 sögðum við strax að lit- ið yrði á hana sem hluta af launum enda var hún fram- leiðslutengd. I síðustu samn- ingum var þessi greiðsla tengd hagræðingarmálum og málið fór í þá hörku að verk- fall var boðað. Það tókust hins vegar samningar án þess að til verkfalls kæmi. Nú stöndum við frammi fyrir því að umrædd greiðsla fyrir síðasta ár hefur ekki verið innt af hendi. Þá sögðum við: Gott og vel, grundvallarkrafa okkar í samningun- um núna er að þessar greiðslur eða ígildi þeirra verði inni eftir sem áður. Gylfi sagði ennfremur að við síðustu samninga hefði náðst samkomulag um ýmiss konar hagræðingu hjá fyrirtækinu. Starfsmönnum hefði fækkað og dregið úr yfirvinnu. Starfsmenn hefðu átt að njóta þess í launum að þeir tækju þátt í hag- ræðingunni sem hafði að markmiði aukna framleiðslu með færri starfsmönn- um. -ÍSAL hefur náð þessum innanhúss- markmiðum sínum hvað við kemur auk- inni framleiðslu. Miðað við árangurinn í fyrra teljum við ekki vafa á að við eigum þessa eingreiðslu inni og auðvitað tengist þetta hagræðingarmálunum. En strax á fyrsta samningafundi með Vinnuveit- endasambandinu núna var okkur sagt að þessum hagræðingarmálum yrði hent út af borðinu. Það á þó ekki að hætta hag- ræðingu hjá ÍSAL, heldur vilja þeir ekki lengur borga fyrir hana. Það hefur komið skýrt fram hjá forráðamönnum VSI að lykillinn að samningum nú sé núllsátt. Ekki verði um neinar beinar launahækk- anir að ræða. En núllsátt þýðir mínussátt fyrir okkur ef það á að taka af okkur ein- greiðsluna og þann kaupauka sem hag- ræðingin átti að færa okkur. Við getum illa unað því að semja um launalækkanir, sagði Gylfi Ingvarsson. Af og til berast fréttir af deilum milli stjómenda ISAL og starfsmanna. A sín- um tíma spruttu deilur um það hvort starfsmenn færu nokkrum mínútum of snemma í sturtu í lok vinnutíma eða ekki og ekki alls fyrir löngu fréttist af óá- nægju vegna breytingar á meðlæti með kaffinu. Gylfi var spurður hvort sam- komulag stjómenda fyrirtækisins og full- trúa starfsmanna væri stirt. Ágreiningsmál -Þegar ég tók við sem aðaltrúnaðar- maður starfsmanna hér var fyrir mitt til- stilli komið á vikulegum fundum með stjórnendum þar sem tekið var á flestöll- um málum sem upp komu. Yfirleitt höf- um við getað leyst öll slík mál hér innan girðingar í góðu. En það hafa safnast upp það sem við höfum kallað ágreiningsmál og varða viss ákvæði í samningum. Við höfum nýlega vísað málum til umsagnar lögfræðinga og það gerðum við ein- göngu vegna þess að við teljum ákvæði samninga ekki haldin. Þegar svo er kom- ið er eitthvað að. -Nú heyrðust þær raddir, þegar Ragn- ar Halldórsson hætti sem forstjón ÍSAL, að ein af ástæðum þess hefði verið sú að honurn hefði lynt illa við starfsfólkið. -Þetta er ekki rétt, segir Eyjólfur Bjarnason. -Þegar Ragnar hætti sem for- stjóri var búið að ganga mjög illa á álmörkuðum og miklar niðursveiflur orð- ið á álverði, en sú niðursveifla sem varð áður en Ragnar hætti var mest. Maður sá allt upp í hálfsárs framleiðslu liggja hér á svæðinu vegna þess hve illa gekk að selja. Nýi forstjórinn tók við þegar fór að rofa til og ástandið að lagast. Eg vil líka taka fram að fyrirtækið hefur gert margt mjög gott fyrir starfsmenn og hér eru margir með mjög langan starfsaldur. Þótt ágreiningur komi upp eru menn ekki í sjálfu sér að hatast neitt út í ISAL. Menn eru bara að verja kjör sín og hagsmuni. Það er unnið allan sólarhringinn á átta tíma vöktum í álverinu. Vaktirnar eru þrískiptar, hefjast á miðnætti, klukkan átta að morgni og fjögur síðdegis. -Menn hafa yfirleitt þann metnað að vera mættir til starfa laust fyrir tilsettan tíma. Ef þeir stimpla sig inn einni eða tveimur mínútum of seint kemur það strax fram á launaseðli og þótt þetta sé ekki dregið af launum þykir mönnum leiðinlegt að fá svona athugasemdir. Hins vegar er það aldrei skráð þegar menn stimpla sig inn fyrir tilskilinn tíma, sagði Eyjólfur. Gylfi Ingvarsson sagði að hann von- aðist til að hægt yrði að ná samkomulagi um lausn á þeim ágreiningi sem uppi er varðandi kjaramálin. -Við höfum eins og aðrir launþegar orðið fyrir almennri kjaraskerðingu með minnkandi kaupmætti og tekjutapi vegna minni yfirvinnu. Okkur finnst því hart þegar við stöndum frammi fyrir kröfum um beinar launalækkanir til viðbótar. / kerskála eitt hefur öllum kerum verið lokað og mjög dregið úr mengun í kjölfarið. Kerskálarnir eru sein- farnir áfæti og því eru reiðhjól notuð til fara um þá endilanga. ViNNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.