Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Page 11

Vinnan - 01.04.1992, Page 11
ísal framleiðir gæöaál hagnast á lokunum álvera í Þýskalandi - samdráttur ekki á döfinni -Ágreiningur um vinnuaðstöðu og samningar verkalýðsfélaga við ísal koma ekki inn á borð hér hjá okkur í Ziirich. En sérstaða Islands að þessu leyti er að mínu viti sú að verkalýðsfé- lögin þar geri sér síður grein fyrir utanaðkomandi áhrif- um á svona rekstur en til dæmis starfsbræður þeirra í Þýskalandi, sem hafa langa reynslu af góðærum og hall- ærum í málmiðnaði, segir Edward Notter, fram- kvæmdastjóri álrekstrar hjá Alusuisse-samsteypunni, við Vinnuna. Hann segir að í iðnaðar- héruðum Ruhr, þar sem at- vinnuleysi er tíu af hundraði, skilji menn að deilur um smáatriði eru ekki besta að- ferðin til að leysa stór vandamál. Á síðastliðnu ári sagði Alusuisse upp hundruðum manna í Þýskalandi vegna þess að verð á áli hafði lækkað. Ál- bræðslunni í Rheinfelden var lokað og í Essen var framleiðsla dregin saman um þriðjung. Þýsku starfsmennirnir streymdu til Zúrich og efndu til mót- mæla við höfuðstöðvar Alusuisse, en allt kom fyrir ekki. En hvenær kemur röðin að Straums- vík? -Eins og er reynum við að kljást við vandann þar með eins miklu aðhaldi á öllurn sviðum og mögulegt er. Ég get hins vegar staðfest að það eru engin á- form uppi um að draga úr framleiðsl- unni. Straumsvík nýtur þess að vera ein hagkvæmasta verksmiðjan okkar. í Þýskalandi eru verksmiðjurnar eldri og orkan dýrari. Starfsfólkið gerir sér þetta ljóst og krafðist þess því í mótmælum sínum að verksmiðjurnar yrðu endur- nýjaðar og fjárfestingar auknar. En svigrúm til þess er vitan- lega lítið meðan álverð er lægra en það hefur verið í 40 ár. Sem betur fer fyrir Is- land vorum við nýlega búnir að fjárfesta þar áður en álverðið hrundi. Straumsvíkurverksmiðjan nýtur þess nú. Vegna end- urbóta á steypuskála gat hún tekið við verðmætustu framleiðslunni af verk- smiðjunni í Essen þegar dregið var úr framleiðsl- unni þar. Verð á unnu áli í Straumsvík er 100 til 150 dollurum hærra en verð á hráu áli, en breytingar á því fylgja sömu lögmálum. Þar hefur því verið reynt að auka verðmæti framleiðslunnar auk þess sem dregið hefur verið úr kostnaði. Þetta hrekkur þó skammt við núverandi aðstæður og það er ljóst að fyrr eða síð- ar verður að draga framleiðsluna saman ef ekki rofar til á álmörkuðum. En eins og stendur eru ekki uppi áform um slfkt. -En hvert þarf verðið að vera til að jafnvægi náist í rekstri í Straumsvík? -Keppinautar okkar hefðu áhuga á að vita það, og því vil ég ekki nefna þá tölu. Ég er hinsvegar ekkert feiminn við að lýsa því yfir að við erum víðáttufjarri því núna, segir Edward Notte, yfirmað- ur áldeildar Alusuisse, við Vinnuna. Edward Notcer, fram- kvœmdastjóri úilrekstmr Alusuisse samræmi við sett markmið og eiga starfsmenn ekki að njóta þess? -Nei, þar náðum við ekki settu marki, 700 tonn vantar uppá. Ástæðan er sú að í febrúar á síðasta ári varð verksmiðjan orkulaus í um átta klukkustundir sem þýddi að við töpuðum 700 tonna fram- leiðslu. Forsenda þess að við getum greitt kaupauka er að framleiðni aukist á hverja vinnustund Ifkt og tíðkast á ýms- um vinnustöðum hér á landi. En við get- um ekki greitt kaupauka til starfsmanna vegna framleiðniaukningar sem fjárfest- ing í tækjabúnaði skilar. Hér er um tvö aðskilin mál að ræða. -En hvað með eingreiðsluna sem mun vera framleiðslutengd greiðsla og starfs- menn vilja halda eða ígildi hennar? -Árið 1989 var ÍSAL mjög hagstætt og mín hugmynd var að auk kauphækk- ana, sem samið var um í almennum samningum, kæmi aukagreiðsla til starfs- manna í tilefni af góðri afkomu fyrirtæk- isins. Þetta tíðkast víða í fyrirtækjum á meginlandi Evrópu. En ég gerði mönn- um jafnframt grein fyrir því að þetta væri bundið afkomu fyrirtækisins það ár og þetta væri eingreiðsla, orðið sjálft segir nákvæmlega til um hvað það þýðir. Ári seinna vorum við enn í samningaviðræð- um og þá borguðum við aftur eingreiðslu þótt afkoman væri stórlega lakari. En við tengdum þessa greiðslu því að starfs- mönnum hafði fækkað um 22 á árinu. Ekki bónus fyrir tap Vegna tapsins síðastliðið ár er enginn grundvöllur fyrir því að halda áfram þessum eingreiðslum og ég hef lýst því yfir oftar en einu sinni við fulltrúa stétt- arfélaganna. Hins vegar er ég reiðubúinn að taka málið upp aftur þegar að því kemur að fyrirtækið fari að skila veruleg- um hagnaði á ný. En það hefur reynst erfitt að fá menn til að skilja að þessar greiðslur geta því aðeins farið fram að verulegur hagnaður sé af rekstrinum. Ég veit ekki um nokkurt fyrirtæki sem getur greitt starfsfólki sérstakan bónus þegar rekstrarhallinn er hátt á annan milljarð króna. Og raunar er það svo að ekki að- eins eingreiðslan heldur einnig kaupauki vegna hagræðingar verður ekki skilinn frá afkornu fyrirtækisins. Þetta hangir saman. ÍSAL hefur hins vegar reynt að gera vel við starfsmenn sína á margan hátt. Má þar nefna ókeypis akstur til og frá vinnustað, frítt fæði í mötuneyti fyrirtæk- isins, frían vinnufatnað og svonefndan öryggisbúnað. Enda hafa margir starfað hér í mjög langan tíma og það er jafnan langur biðlisti eftir störfum sem losna sem bendir til að þetta sé eftirsóttur vinnustaður. Þegar ágreiningur hefur komið upp milli verkalýðsfélaga og ÍSAL hefur í langflestum tilvikum verið hægt að leysa málin með viðræðum aðila hér innanhúss þótt einstaka mál hafi ver- ið blásin út í fjölmiðlum. Ég vil líka nefna að stór liður í hag- ræðingu var að semja við starfsmenn um að fella niður hefðbundinn kaffitíma sem sleit vinnutímann mjög í sundur. Á móti buðurn við 1,9% kauphækkun til allra starfsmanna. Þetta var árið 1989 en þá höfðu flest verkalýðsfélög lagt niður kaffitíma að morgni enda skjótast starfs- menn áfram í kaffi án þess að vinna leggist niður. Það eru þó um 160 starfs- menn sem ekki vilja fara þessa leið og halda sínum kaffitíma. Atlantal er velkomiö -Hvaða áhrif hefur það á rekstur ÍSAL ef Atlantal reisir hér verksmiðju? -Við bjóðum þá velkomna. Þá getum við skipst á skoðunum og eigum sameig- inlegra hagsmuna að gæta á ýmsum svið- um. Það er engin ástæða til að óttast samkeppni frá þeim. Heimsmarkaður fyrir ál er um 15 milljónir tonna á ári og framleiðslan hér er ekki nema lítið brot af því. -Hvað skilar rekstur álbræðslunnar hér miklum peningum inn í íslenska þjóðar- búið á ári? -Þumalputtareglan er sú að þriðjungur veltu verði hér eftir. Þar má nefna laun og launatengd gjöld, raforkukaup, fram- leiðslugjald og gífurlega verktakavinnu. Til dæmis eru allar nýju þekjurnar yfir kerin smíðaðar hér og þar er um mjög stórt verkefni að ræða. Velta fyrirtækis- ins dróst saman í fyrra vegna lækkunar á álverði en þó má áætla að starfsemi ÍSAL hafi skilað þjóðarbúinu röskum þremur milljörðum króna á síðasta ári, sagði Christian Roth, forstjóri Islenska álfélagsins. VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.