Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Page 19

Vinnan - 01.04.1992, Page 19
19 miklar vonir við þá samninga. Ef við kunnum að nýta okkur þá komumst við milliliðalaust inn á markaðina erlendis. Þá getum við selt fisk svo að segja á matarborðið í stað eins og að nú við lát- um Bretum og Dönum eftir að fullvinna fiskinn okkar. EES samningamir munu verða sjávar- útveginum mikil lyftistöng. Atvinna mun aukast og tekjur fólks vaxa verulega. -Það er mögulegt að við verðum ein fátækasta þjóð Evrópu upp úr aldamót- um ef við látum reka á reiðanum. En við höfum alla burði til að takast á við erfið verkefni, segir Karl Steinar, og bætir við að þeir séu ófærir um það sem ekki við- urkenni vandann. -Eg er sannfærður um að það er rosa- leg umbylting framundan. Frystihúsin, sem voru undirstaða atvinnu, eru að verða úrelt. Heilu byggðarlögin munu gjalda þess. Sum stækka, önnur smækka, hverfa jafnvel. Þessari þróun. sem óhjá- kvæmilega mun eiga sér stað, verður að stjórna og það verður að hafa velferð fólksins í öndvegi. Byggðastefna unfarinna ára er einfald- lega röng. Ef við hefðum beitt þessari stefnu á tímabilinu 1920-1950 hefðum við bannað fólki að flytja t.d. frá Aðalvík og öðrum erfiðum búskaparstöðum. Rómantísk byggðastefna -Fólk á ekki að þurfa að búa við ein- angrun og sultarkjör svo rómantísk byggðastefna geti gengið upp. Við verð- um að byggja upp sterka byggðakjama á nokkrum stöðum á landinu, þar sem hægt er að veita þá þjónustu sem fólk kýs og búa því viðunandi lífskjör. Það er skynsamlegt að breyta byggðastefnunni og það er fjölmargt gott fólk í verkalýðs- hreyfingunni sem vill taka til hendinni. Við okkur blasir svipaður vandi og áður hefur komið upp. Ef við hefðum auðveldað bændum að bregða búi á sín- um tíma hefðum við komist hjá offram- leiðslu í landbúnaði og stórkostlega skertum lífskjörum eins og landbúnaðar- stefnan hefur fært okkur. Þá var ekki hlustað á þá sem fundu að. Vonandi ber- um við gæfu til að bregðast öðruvísi við nú. Eftirmáli verkalýðsleiðtogans sem lætur af trúnaðarstörfum er ekki alls kostar bjartur; verkalýðshreyfingin er ekki í takt við tímann. -I verkalýðshreyfingunni er mikið af góðu fólki, en ég óttast að hún eigi erfiða daga framundan, maður sér hvernig komið er víða um land. Verkalýðsfélög eru víða máttlítil og aðgerðarlaus. Fund- arsókn er léleg og þegar unga fólkið kemur út úr skóla veit það varla um til- vist verkalýðshreyfingarinnar. I skóla- kerfinu er allri fræðslu um þessa helstu félagsmálahreyfingu þjóðarinnar sleppt. „Frá þeirri stundu skynjaði ég að ég var á rangri leið. Mér leið illa. Verkafólkið hafði verið blekkt". verðbólgu voru gerðir, áður en slík sátt tókst. Hvarvetna mátti sjá afleiðingar óðaverðbólgu sem át upp launahækkan- imar. í samningunum 1990 tókst okkur að rata þá leið sem ég tel færa. Og hún verður farin aftur. Ekki á sömu nótum og áður, en sami skilningur mun liggja að baki við samningagerð í framtíðinni. Það er í raun þjóðarsátt um að fara leið þjóð- arsáttar. EES opnar nýja markaði -Það verða að vera til lífvænleg fyrir- tæki í landinu. Það skilur fólkið sem býr í hinum dreifðu byggðum landsins, þar sem fyrirtækin eru með hálfluktar dyr og framtíðin er í óvissu. Það hefur ekki mátt tala um þetta í verkalýðshreyfingunni. Menn hverfa alltaf aftur til 1916 eða til kreppuáranna og geta ekki hugsað þá hugsun til enda að fyrirtæki þurfi að græða. Atvinnufyrirtækin verða að vera arð- bær. Það skapar skilyrði fyrir kjarabætur og betra mannlíf. Byggingu álvers hefur verið frestað og annað sem við höfum reynt til ný- sköpunar hefur brugðist á síðustu árum. Nú er höfuðnauðsyn að samningar um Evrópska efnahagssvæðið náist. Eg bind VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.