Vinnan - 01.04.1992, Page 20
20
Þegar unga fólkið fer út á vinnumarkað-
inn birtist launþegahreyfingin því eins og
gjaldheimta.
Eins og Tófuvinafélagið?
-Það þarf að taka á til að efla og
styrkja verkalýðshreyfinguna. Þar er
fræðslan áhrifamesta tækið. Skilningur
stjómmálamanna á hreyfingunni og gildi
hennar er líka takmarkaður. Stundum
finnst mér margir líta hana sömu augum
og Tófuvinafélagið.
Verkalýðshreyfingin er víða sem
stofnun. Skipulagslega á hún mjög erfitt
með að takast á við verkefni sín. Hún
þarf að breytast verulega í takt við tím-
ann. Þjóðfélagsbreytingar kalla á nýja
hugsun. Fólk svalar ekki félagsþörf sinni
í verkalýðshreyfingunni eða tekur virkan
þátt í störfum hennar til að hafa áhrif á
að þjóðfélagið breytist.
Kom viti i efnahagsumræðuna
Á seinni árum hafa einstaka raddir
heyrst innan verkalýðshreyfingarinnar
sem eru verkalýðsformanninum að skapi.
En forseti ASÍ fær þá einkunn.
-Ásmundur hefur komið viti í efna-
hagsumræðuna í verkalýðshreyfinguna.
Hann hefur hvatt til þess að launþega-
Verkalýðshreyfingin er alls ekkert batterí.
hreyfingin víkki sjóndeildarhringinn og
skipti sér af þjóðmálum á víðari grunni
en við höfum gert. Fyrir bragðið hefur
Ásmundur ekki átt upp á pallborðið hjá
ýmsum verkalýðsfrömuðum. Hann hefur
jafnvel verið sakaður um að vilja taka
höndum saman við andstæðinginn.
Og samflokksmenn hans í pólitíkinni
hafa úthúðað honum. Það er samvisku-
spurning hvernig á því stendur að þeir
sem hafa verið í fremstu víglínu í verka-
lýðshreyfingunni komast fæstir áfram í
pólitík. Það er af sem áður var.
Eg er sannfærður um að menn munu
sjá að Ásmundur var góður leiðtogi. Það
væri illa komið fyrir okkar hreyfingu, ef
hann hættir bráðlega. segir Karl Steinar.
Hvaða einkunn fær Guðmundur J,
sem Karl Steinar segist hafa haft mest
samstarf við í verkalýðshreyfingunni?
-Hann er óumdeilanlega stórveldi í
verkalýðshreyfingunni. Við höfum starf-
að saman og margt brallað saman. Helsti
styrkur hans er hve næma tilfinningu
hann hefur fyrir hugsun og hagsmunum
láglaunafólks.
Miklu meiri mióstýringu
-Verkalýðshreyfingin er alls ekkert
batterí. Það er mesti misskilningur þegar
fólk heldur því fram. Hreyfingin er
einmitt allt of veik því kraftamir eru svo
dreifðir. Valdið liggur hjá allt of litlum
verkalýðsfélögum, þar sem hver gætir
sinna þrengstu hagsmuna. Verkalýðs-
hreyfingin þarf að vera miklu miðstýrð-
ari en hún er nú. Ef ASI félögin inn-
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttaro!
Traustir umboösmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaöarhóli 25.
Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stj'kkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., AÖalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauöárkrókur: Rafsjá hf„ Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgið hf„ Aðalgötu 32.
Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavik: ðryggi sf„ Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaður: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24.
• Reyðarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egiisstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29.
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
c co
0*0
3 (Q
|8
3 g«
3 Q
c <
3°:
oS
Q Q'
3R-
Q =
q"<°
3
Q.
VINNAN