Vinnan - 01.04.1992, Síða 21
21
heimtu þá fjármuni sem til þeirra eiga að
falla gerði það samtals 1200 milljónir
króna. Þá væri margt hægt að gera, en
það er bara ekki gert. Stærri félög geta
veitt betri þjónustu og gætt hagsmuna
launafólks betur. Hjá þeim þarf að starfa
fleira fólk, sem hefur því hlutverki að
gegna að fara út á vinnustaðina - nálgast
fólkið sem kemur ekki á fundina.
Atvinnurekendur hafa fyrir löngu átt-
að sig á gildi þess að efla fræðslu og
koma upp sterkum talsmönnum sem láta
sig þjóðfélagið varða og eru öllum stund-
um að hafa áhrif. Hjá Vinnuveitenda-
sambandinu og félögum þess starfar her
manna sem býr yfir hvers konar sér-
fræðikunnáttu. Aðeins einstaka félög
innan verkalýðshreyfingarinnar hafa
skynjað breytta tíma. Verslunarmannafé-
lag Reykjavíkur er eitt þeirra og hefur
meðal annars beitt lífeyrissjóði sínum
markvisst til að hafa bein áhrif á atvinnu
með því að fjárfesta í arðvænlegum fyr-
irtækjum.
Verkalýðshreyfingin hefur sakað
stjómvöld um að að vera skerða velferð-
arkerfið. Getur ríkisstjórnin ekki leitt
skoðanir launþega hjá sér, ef samtök
þeirra eru hvort eð er utan garðs í þjóðfé-
lagsumræðunni, eins og Karl Steinar lýs-
ir ástandinu? Því er þingmaðurinn og
verkalýðsleiðtoginn ekki sammála.
-Nei. Það skapar óöryggi á vinnu-
markaðnum. Það er heldur ekkert vit í að
ríkisstjórn vaði yfir verkalýðshreyfing-
una. Sjálfur kallar Karl Steinar sig sér-
vitring á vettvangi verkalýðsfélaganna.
-Hinir sem einhver töggur er í fara
burt. Við höfum verið haldnir þeirri
áráttu að vilja ekki greiða almennileg
laun þeim sem ráðast til starfa fyrir sam-
tök okkar. Fyrir bragðið missum við þá
sem geta betur. Það er atgervisflótti úr
launþegahreyfingunni. Örfáir hugsjóna-
menn í besta skilningi sitja eftir - láta
bjóða sér verri launakjör en þeir gætu
fengið annars staðar.
Karl Steinar segir að heiti stjórnmála-
flokka og hátíðlegar yfirlýsingar um
stuðning við verkalýðshreyfinguna segi
lítið um velviljann þegar til kastanna
komi. Það sýni bitur reynslan. Hann
styðji núverandi ríkisstjórn vegna þess
að hún ætli sér að taka á erfiðum málum.
Atvinnuleysið verði erfiðasta mál henn-
ar, en hún þori og ætli sér að vinna verk
sem séu bráðnauðsynleg fyrir þjóðarbú-
ið, einkum launafólkið í landinu. Hann
sé sannfærður um að hún sé á réttri leið.
-Ég tala af sannfæringu. Ef menn vilja
hins vegar trúa óábyrgum stjórnmála-
mönnum hafa þeir auðvitað frelsi til
þess. Ef við fylgdum óbreyttum kúrsi
drægist atvinna enn meir saman og lífs-
kjörin versnuðu.
Þá bjarga þeir sér sem búa við góðan
hag fyrir. Okkar minnstu bræður sitja
eftir.
Karl Steinar fullyrðir að mikill vandi
stafi af glæstum en innantómum loforð-
um stjórnmálamanna.
-Það er helsti vandinn hversu miklu er
logið að fólki. Stjórnmálamenn, sem
jafnvel hafa stjórnað í 20 ár, umhverfast
við valdamissinn. Allt sem þeir áður
töldu hvítt sjá þeir nú svart. Menn kom-
ast upp með það á Alþingi að tala eins og
enginn vandi steðji að í þjóðfélaginu.
Hér sé allt fullt af peningum. Allt sem
horfi til spamaðar og niðurskurðar sé að-
eins illgjömum og ósanngjömum mönn-
um að kenna. Ég játa fúslega að mér
blöskrar sá æsingaáróður og þær blekk-
ingar sem valdasjúkir stjórnmálamenn,
hlaðnir vonbrigðum, hafa beitt undanfar-
in ár.
Komið að leiðarlokum
Karl Steinar er á því að leiðin sé á
enda runnin.
-Helsti vandi okkar er óstjóm, gífurleg
eyðsla og óráðsía, sem einkennt hafa rík-
isstjórnir síðustu tvo áratugi. Við erum
að gjalda þess núna. Það er komið að
leiðarlokum. Ef stjórnvöld spyrna ekki
við fótum hrynur velferðarkerfið sem
verkalýðshreyfingin og jafnaðarmenn
vilja alls ekki að gerist. Þá missum við
líka efnhagaslegt sjálfstæði og fátæktin
blasir við.
Ríkisstjórnir koma og fara, en verka-
lýðshreyfingin heldur velli. Ég tel mjög
brýnt að hún leggi sitt lóð á vogarskál-
arnar til að skýra fyrir almenningi hver
efnahagsleg staða okkar er. Það eru
hagsmunir launþega að verkalýðshreyf-
ingin horfi á ástand landsmála af víðsýni
og skilningi. I raun er verkalýðshreyfing-
in í eðli sínu andstöðuafl gegn ríkjandi
kerfi. Virðing hreyfingarinnar og mögu-
leikar til áhrifa byggjast hins vegar á því
að hún skilgreini vandann á sjálfstæðan
hátt og bendi á ábyrgar og raunhæfar
lausnir hverju sinni. Það þjónar hags-
munum launþega. Það er þáttur í að gera
þjóðfélagið réttlátara, segir Karl Steinar,
en hann segist vera svartsýnn á þessa
stöðu verkalýðshreyfingarinnar.
-Já, ef ekki verða breytingar á skipu-
lagsmálum og innra starfi. Þetta segi ég
vegna þess að mér er annt um hreyfing-
una. Hún hefur alla möguleika á að snúa
sér að því verkefni að breyta þessu. Mest
alla ævi hef ég verið starfandi í verka-
lýðshreyfingunni. Hugsjónir hennar eru
mér afar kærar, segir Karl Steinar
Guðnason og bætir við: Sá er vinur sem
til vamms segir.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Símar 18519 og 689212
Fætur okkar eru grunnur að vellíðun okknr,
arað f ítness heilsuskórnir stuðla að þvi.
LoflbólstraSur sóli
fró hæl oð tóbergi
Laut fyrir hæl sem
veitir stuðning.
Ekta korkblanda
(einangrar).
Tógrip sem
örvar
blóðrósina.
Ilstuðningur
sem hvílir.
FJOLBREYTT URVAL TEGUNDA
Stamur innsóli.
Microcellu sóli, sem dregur úr þreytu,
virkar dempandi.
YerndiS fæturna
andið skóvalið
VINNAN