Vinnan - 01.04.1992, Side 22
22
Islendingar
farnir ab læra
aó flaka á ný
Vís leið'til
áb fá vinnu
íslendingar eru farnir aö rifja upp
handtökin viö aö flaka handflaka
fisk. Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis hélt nám-
skeiö í handflökun skömmu fyrir jól
í samvinnu viö starfsfræöslunefnd
fiskvinnslunnar. Tíu manns, níu
konur og einn karl, sóttu námskeiö-
iö. Þau voru atvinnulaus, en hafa
nú öll fengið vinnu - viö aö flaka.
Vinnan skýrði frá því í maí að fisk-
verkendur á höfuðborgarsvæðinu hefðu
auglýst árangurslaust eftir flökurum og
loks gripið til þess ráðs að ráða fólk frá
Skotlandi til þeirra starfa. Þegar í ljós var
komið að vélvæðingin var orðin svo
mikil að fáir íslendingar kynnu orðið að
flaka var farið að huga að því að halda
námskeið í handflökun. Starfsfræðslu-
nefnd fiskvinnslunnar auglýsti námskeið
í haust, en engin þátttaka fékkst. Astæð-
an var talin sú að námskeiðsgjald átti að
vera 11 þúsund krónur og fólki hafi þótt
það of dýrt.
Arnar Sverrisson sýnir réttu handtökin við að
flaka.
Þá tók Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur af skarið, samdi við eiganda
fiskverkunar í N jarðvík um að hann legði
til húsnæði fyrir flökunarnámskeið og
keypti fiskinn sem flakaður yrði. Með
þessu móti var hægt að halda námskeiðið
þátttakendunum að kostnaðarlausu, en
fiskvinnslunefndin greiddi kennurunum
laun.
Frábær nýting
Námskeiðið stóð í tvo daga. Jörundur
Garðarsson kennari við Fiskvinnsluskól-
ann fór yfir undirstöðuatriði í hreinlæti
við meðferð fisks og kenndi gerlafræði.
Síðan var tekið til við að flaka undir
handleiðslu Amars Sverrissonar flakara,
en hann starfar sem verktaki í flökun.
Afköst flökunamemanna voru hálft ann-
að tonn á þessum tveimur dagpörtum.
-Það vantar handflakara og það kom
niður á mér þegar ég hóf starfsemi í nóv-
ember. Því var sjálfsagt að verða að liði
og leggja til húsnæði fyrir þetta nám-
ERT ÞU AÐ TAPA
RÉTTINDUM ?
LÍFEYRISSJÓÐUR Dagsbrúnar og Framsóknar hefur nú sent öllum félögum sínum yfirlit
yfir lífeyrissjóösiögjöld á árinu 1991. Allt verkafólk, sem vann á félagssvæði Dagsbrúnar og
Framsóknar á síöasta ári, á aö hafa fengið slíkt yfirlit.
HAFIR ÞÚ EKKI fengiö yfirlit eöa ef því ber ekki saman viö launaseöla og/eöa launamiöa
vegna skattframtals 1992, kunna iögjöld þín aö vera í vanskilum. Þá skaltu hafa samband
viö skrifstofu sjóösins eöa skrifstofur Dagsbrúnar eöa Framsóknar.
VIÐ VANSKIL á greiðslum iögjalda til lífeyrissjóðsins og sjóöa Dagsbrúnar og Framsóknar
geta menn átt á hættu aö tapa dýrmætum réttindum.
Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI LÍFTRYGGINGU
ÖRORKULÍFEYRI BARNALÍFEYRI BÆTUR ÚT SJÚKRASJÓÐI
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Suðurlandsbraut 30, Reykjavík
Sími 314399
Verkamannafélagið Dagsbrún
Lindargötu 9, Reykjavík
Sími 25633
Verkakvennafélagið Framsókn
Skipholti 50A, Reykjavík
S ími 688930
VINNAN