Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Qupperneq 23

Vinnan - 01.04.1992, Qupperneq 23
23 Eftirspurn eftir handflökurum eykst sífellt. Fleiri námskeið íhandflökun eru fyrihuguð. (Myndir: Víkurfréttir) skeið, segir Guðmundur Bjarnason fiskverkandi í samtali við Vinnuna. Hjá honum starfa fjórir handflakarar, tveir útlend- ingar og tvær íslenskar kon- ur. Önnur þeirra lærði einmitt handtökin á fyrr- nefndu námskeiði. -Okkur Guðrúnu Ólafs- dóttur hjá Verkalýðsfélaginu samdist svo um að yrði nýt- ingin á flökunarnámskeiðinu minni en eðlilegt mætti telj- ast yrði mér bætt það upp. En til þess kom ekki, nýting- in var allt að því frábær, seg- ir Guðmundur Bjamason og hlýtur þar með að vera á- nægður með þann flakara sem hann réð til sín að nám- skeiðinu loknu. Guðrún Ólafsdóttir segir að eftirspurn eftir handflök- urum sé sífellt að aukast og í ráði sé að halda fleiri nám- skeið á Suðumesjum. -Þetta fyrirkomulag reyndist ágætlega: Fólkið leggur fram vinnu í tvo daga og fær kennslu í staðinn, segir Guðrún í samali við Vinnuna. Starfsfræðslunefndin hélt síðan annað námskeið í handflökun í febrúar í Fisk- vinnsluskólanum í Hafnar- firði. Þangað komu átta manns, sem hver um sig var reiðubúinn að greiða 8000 króna námskeiðsgjald. Ekki var það þó verkafólk, heldur mætti nefna það “tómstunda- flakara”, fólk sem rær til fiskjar á sumrin sér til hress- ingar og dægrastyttingar en átti eftir að læra almennilega að flaka. Þg- GOÐ DEKK A GÓÐU VERÐI RÉTTARHÁLS 2. S. 814008 & 814009 - SKIPHOLTI 35. S. 31055 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.