Vinnan - 01.04.1992, Qupperneq 26
26
Fiárfestingaræði Bifreiðaskoðunar
utan skynsemismarka
Karl Ragnars forstöðumaður Bl: „Ovandaðir sleggjudómar"
Megin meinsemdin í núverandi fyr-
irkomulagi bifreiöaskoðunar á Is-
landi er skortur á aðhaldi við verð-
lagningu þjónustu Bifreiðaskoðunar
íslands og afrakstrinum hefur verið
varið til að standa undir fjárfest-
ingaræði sfyrirtækisins. Svo geyst
hefur verið farið í uppbyggingu að
það hlýtur að teljast vera utan skyn-
semismarka.
Þetta er ein af megin niðurstöðum
vinnuhóps ASI og VSI sem skipuð var til
að meta horfur í verðlagsþróun hvað
varðar rekstur á bifreiðum og þá þætti
sem mest hafa áhrif á bifreiðakostnað.
-Þetta eru óvandaðir sleggjudómar, og
það veldur mér vonbrigðum að tveir há-
skólaborgarar, sem sæti áttu í vinnu-
hópnum, skuli vinna svona ófaglega,
segir Karl Ragnars forstöðumaður Bif-
reiðaskoðunar.
Skömmu eftir að skýrslan kom út á-
kvað stjórn Bifreiðaskoðunar að falla frá
einkarétti fyrirtækisins til bifreiðaskoð-
unar, sem átti að gilda til aldamóta,
þannig að aðrir en Bifreiðaskoðun megi
skoða bíla frá árinu 1994. Karl Ragnars
segir að sú ákvörðun sé ekki viðbrögð
við skýrslunni, heldur svar við bréfi
dómsmálaráðherra frá 27. janúar um ný
viðhorf í bifreiðaskoðun vegna evrópskra
staðla sem nýlega hafi verið teknir upp.
-Stjórn Bifreiðaskoðunar og starfs-
fólki er einnig kappsmál að reka af sér
það slyðruorð að þetta sé einokunarfyrir-
tæki, segir Karl Ragnars.
I skýrslu verðlagshópsins er einkum
gagnrýnd sú ákvörðun að reisa níu skoð-
unarstöðvar á aðeins fimm árum þótt
einkaréttur Bifreiðaskoðunar sé til 12 ára
og hægt hefði verið að dreifa kostnaðin-
um á þann tíma. Bent er á að þessar
framkvæmdir séu fjármagnaðar með
þeim gífurlega hagnaði sem fyrirtækið
hafi haft af umsjón með bifreiðaskrá og
sölu númeraplatna. Tekjur BÍ af gjaldi
fyrir eigendaskipti og nýskráningu voru
um 153 milljónir króna á síðasta ári og
hækkuðu verulega frá fyrra ári. Tekjur af
sölu númeraplatna, sem keyptar eru af
fangelsinu á Litla-Hrauni og seldar með
.210 prósenta álagningu, voru 32 milljón-
ir.
Vinnuhópurinn telur að afnema þurfi
einokun Bifreiðaskoðunar og fela hana
bifreiðaverkstæðum. Einnig að nýir bílar
skuli skoðaðir í fyrsta sinn eftir tjögur ár
en síðan annað hvert ár í stað þess að nú
eru bflar skoðaðir eftir þrjú ár og síðan á
hverju ári. Þá er bent á að einungis verk-
stæði á höfuðborgrasvæðinu og ef til vill
á Akureyri gætu uppfyllt evrópska staðla
um bifreiðaskoðun yrðu þeir teknir upp
hér. Landsbyggðin mundi því ekki njóta
góðs af aukinni samkeppni vegna þess að
ekki er rekstrargrundvöllur fyrir sérstök-
um skoðunarfyrirtækjum þar. Af þeim
sökum telur vinnuhópurinn að leita þurfi
annarra leiða til að tryggja óhlutdrægni
við bifreiðaskoðun.
Karl Ragnars segir að dómsmálaráðu-
neytið muni setja nýjar reglur um frjálsa
samkeppni í bifreiðaskoðun en telur það
rétt vera að verkstæði á landsbyggðinni
geti ekki sett upp fullnægjandi skoðunar-
stöðvar, það sé of dýrt. Sem dæmi um
það nefnir hann að verið sé að reisa
skoðunarstöð á Húsavík, sem kosti 25
milljónir króna, fyrir utan þjálfun starfs-
fólks og kostnað við mannahald. En
hann bætir því við að um 60 af hundraði
allra bíla á Islandi séu á höfuðborgar-
svæðinu.
-En það er fráleitt að ætla að bjarga at-
vinnulífi á landsbyggðinni með því að
kasta fyrir róða þeirri uppbyggingu sem
Bifreiðaskoðun Islands hefur staðið fyrir,
segir hann.
Vinnuhópur ASÍ og VSÍ hefur lagt til
ákveðnar úrbætur, sem reiknað hefur
verið út að hefðu sparað nærri 167 millj-
ónir króna á síðasta ári hefðu þær verið
komnar til framkvæmda. Lagt er til að
notendur bifreiðaskrár séu aðeins látnir
greiða fyrir afnot í samræmi við raun-
kostnað, nýjar reglur um tíðni bifreiða-
skoðunar teknar upp, svonefnd gerðar-
skoðun afnumin nema á bifreiðum sem
eru ekki framleiddar fyrir Vestur-Evr-
ópu, gjald á skráningarplötum lækkað
verulega, heimilt verði að sérpanta
skráningarplötur sem verði seldar á háu
verði, bifreiðaverkstæðum verði heimilt
að skoða bíla undir eftirliti óháðs aðila
og skipuð verði nefnd hagsmunaaðila til
að yfirfæra og aðlaga breyttar reglur EB
um bifreiðaskoðun.
I vinnuhópi um verðlagsmál áttu sæti:
Bjöm Grétar Sveinsson, Leifur Guðjóns-
son og Gylfi Arnbjörnsson hagfræðing-
ur, af hálfu ASÍ og Pétur Óli Pétursson,
Ragnar Ragnarsson og Kristján Jóhanns-
son hagfræðingur af hálfu VSÍ.
Þg-
VINNAN