Vinnan - 01.04.1992, Qupperneq 29
29
Formanna-
skipti hjá
Einingu á
Akureyri
Stjórnarkjör stendur fyrir dyrum hjá
verkalýðsfélaginu Einingu á Akureyri.
Þá verður skipt um formann, því Sævar
Frímannsson, sem hefur verið formaður
Einingar frá árinu 1986, gefur ekki kost á
sér til endurkjörs. Sævar segir í samtali
við Vinnuna að hann hafi ákveðið þegar
síðastliðið haust að draga sig út úr stjórn
Einingar og þá þegar beðist undan kjöri
til hvers konar trúnaðarstarfa á vegum
verkalýðshreyfingarinnar.
Sœvar Frímannsson formaður Einingar.
Sævar réðst til starfa hjá Einingu árið
1977 og var starfsmaður félagsins næstu
árin. Árið 1980 var hann kosinn varafor-
maður félagsins og formaður sex árum
síðar. Hann átti sæti í framkvæmdastjórn
Verkamannasambandsins frá 1985 til
1989 og á nú sæti í sambandsstjóm Al-
þýðusambandsins og miðstjórn. Sævar
segir í samtali við Vinnuna að hann
hyggist ganga úr miðstjórn á Alþýðu-
sambandsþingi næsta haust.
f vetur sendi verkalýðsfélagið Eining
stjórnar- og trúnaðarmönnum bréf þar
sem könnuð var afstaða þeirra til ýmissa
þátta í starfi félagsins, en þeir jafnframt
beðnir að segja hug sinn um það hverja
þeir vildu sjá í forystu þess eftir stjómar-
kjör. Heimtur voru ákaflega slæmar, en
innan við helmingur sendi svör til baka.
Niðurstaða þessarar skoðanakönnunar er
því varla marktæk.
Aðalfundur Einingar verður að líkind-
um haldinn í apríl eða maí.
Flutningar - Fyllingarefni
Vörubílar, litlir og stórir • Kranabílar, litlir og stórir.# Dráttar-
bílar með malar- eða flatvagna • Vatnsbílar • Grjótbílar
• Salt- og sanddreifingarbílar • Malbikskassar • Alls kon-
ar möl, fyllingarefni og mold • Tímavinna
• Ákvæðisvinna • ðdýr og góð þjónusta.
Vörubílastöðin Þróttur
25300 - Borgartúni 33 - 25300
L UHBSmUM
HELGII
HÖFUÐBORGINNI
r ekki kominn tími til að
skreppa suður og gera eitthvað
fyrir sjálfan sig. Kíkja í búðir,
fara í leikhús,koma við á krá
njóta skemmtunar á Hótel
íslandi og fullkomna ferðina
með dvöl á fyrsta flokks hóteli.
Láttu þetta eftir þér, þú átt það
skilið.
Pantanasími 688999.
Grœnt símanúmer 996099
H Ó T E L
ÍSLAND
Ármúli 9, 108 Reykjavík.
VINNAN