Stefnir - 01.04.1994, Qupperneq 5

Stefnir - 01.04.1994, Qupperneq 5
Höfundar Efnisyfírlit Þór Sigfússon hefur lokið M.A. prófi í hagfræði. Hann starfar nú sem ráðgjafi fjármálaráðherra. Jónas Fr. Jónsson er lögfræðingur Verslunar-ráðs íslands. Viggó Hilmarsson stundar nám í stjórnmálafræði við Háskóla Islands. Hann situr f stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hannes Hólmsteinn Gissurarson er dósent í stjórnmálafræði við Háskóla íslands. Ólafur Örn Klemensson er hagfræðingur. Hann er formaður Landsmálafélagsins Varðar. Charles Moore skrifar fastan dálk í breska tímaritið “The Spectator” og er fyrrum ritstjóri þess. Stefnir mun áfram birta þýðingar á völdum greinum úr Spectator og hefur fengið leyfi ritstjóra til þess. Börkur Gunnarsson stundar nám í heimspeki við H.I. Hann situr í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna og er ritstjóri SUS- frétta. Börkur gaf út smásagnasafnið “X” fyrir síðustu jól. Ragnar Bjartur Guðmundsson stundar nám í hagfræði við H.I Siglaugur Brynleifsson er rithöfundur. O Áhersla á þjónustuhlutverkið Nýskipan í ríkisrekstri hefur verið áherslumál Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra frá því hann tók við embætti. Friðrik lýsir því í Stefnisviðtali hvað áunnist hefur með sölu ríkisfyrirtækja og útboðum. Einnig gerir hann grein fyrir aðgerðum sem nú eru í undirbúningi. Jafnframt er í viðtalinu farið í saumana á ýmsum pólitískum deilumálum sem upp hafa komið undanfarið. M.a. ræðir Friðrik ágreining um undirbúning að sölu SR-Mjöls og forsendur að baki tveggja þrepa virðisaukaskatti. O Nútímavæðing - nýr hornsteinn hagsældar Þór Sigfússon lýsir hugmyndinni að baki nútímavæðingu og þeim ávinningi sem hún getur skilað í rekstri ríkisins. o Ný hugsun í ríkisrekstri Jónas Friðrik Jónsson byggir þessa grein sína á vinnu sem unnin var á vegum Verslunarráðs íslands, en niðurstöðurnar voru kynntar á aðalfundi ráðsins 23. febrúar s.l. í grein Jónasar koma fram athygliverðar tillögur um endurskipulagningu í ríkisrekstrinum. O Nafta - bandalag án hafta Viggó Hilmarsson rekur meginhlutverk fríverslunarsamnings Norður-Ameríkuríkja og leiðir að því rök að hagstætt geti verið fyrir ísland að leita eftir aðild að Nafta. Von er á lokaskýrslu frá starfshópi um forkönnun á gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin von bráðar. Samkvæmt heimildum Stefnis mun hópurinn m.a. leggja til að þegar verði óskað formlega eftir viðræðum um gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin og jafnvel einnig Kanada og/eða Mexíkó. O Svarthvít framtíðarsýn í vor verða þáttaskil í Suður-Afríku þegar ný stjómarskrá tekur þar gildi og endir verður bundinn á stjórnmálalegt misrétti kynþátta. En hverjar verða afleiðingamar? Charles Moore spáir borgarastríði, sem að endingu muni lykta með því að ríkið skiptist upp. © Er markaðshyggjan að syngja sitt síðasta? Fyrr á öldinni vildu sósíalistar nota ríkisafskipti til að leysa öll félagsleg vandamál. Nú eiga þau að leysa umhverfismálin. Ragnar Bjartur Guðmundsson fer í saumana á umhverfishyggjunni og spyr hvort komið sé að endalokum kapítalismans. © Viðtal við Börk Gunnarsson Börkur segist, í viðtali við Stefni, telja íslenska lesendur hafa verið alda á konfekti um of. Með viðtalinu birtist saga úr nýju smásagnasafni Barkar, sem ber nafnið Líf. © Hver á kvótann? Deilur um fiskveiðistjórnun og eignarhald á veiðileyfum eru ekki nýjar af nálinni. Hannes Hólmsteinn Gissurarson færir hér rök að því að eignarhald útgerðarmanna á kvóta sé bæði hagkvæmt og réttlátt. Ólafur Örn Klemensson deildi hart á kvótakerfið á Varðarfundi fyrir skemmstu, þ.e. með núverandi fyrirkomulagi væru útgerðarmönnum færð veiðiréttindi endurgjaldslaust. Ólafur Ieggur til upptöku veiðileyfagjalds í grein sinni hér í blaðinu. © , Ur Draugagili Ceausescu leiðtogi Rúmeníu var á sinni tíð einn versti harðstjórinn í Austur-Evrópu. Siglaugur Brynleifsson skrifar. o

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.