Stefnir - 01.04.1994, Síða 15

Stefnir - 01.04.1994, Síða 15
haf sitt í Chicagoháskóla í Bandaríkjun- um. Þessum kenningum, sem hafa m.a. verið áberandi í stjórnmálahagfræði síð- ustu ára, má skipta upp í tvennt: í fyrsta lagi er það almannavalsfræðin, kenningar um skrifræði, viðskiptakostn- að og umboðsvandamálið. Þessar kenn- ingar voru notaðar til að byggja minna og einfaldara ríkiskerfi, til að skýra hvers vegna ríkið ætti ekki að standa í rekstri atvinnufyrirtækja og tii að svara algengum rökum um nauðsyn ríkisaf- skipta. í öðru lagi var framboðskenningin í hagfræði notuð til að skýra ruðningsáhrif ríkisafskipta og þar með mikilvægi þess að ríkið vasist ekki í greinum sem einstak- lingar geta alfarið séð um. Meginmarkmiðið með notk un þessara hagfræðilegu verkfæra var að auka hagkvæmni í hagkerfinu með því að draga úr opinberum afskipt- um. Skilningur á tilgangi og markmið- um þessara hugmynda er forsenda þess að framkvæmd nútímavæðingar verði heildstæð og í anda sjálfstæðisstefnunn- Frá hugmyndum til framkvæmda Ég hef áður fjallað nokkuð ítarlega um hvað aðrar þjóðir hafa gert í nútímavæð- ingu og hvernig árangurinn hefur verið. Ég vil nota seinni hluta þessarar greinar til að kynna hvernig hugsanlegt er að framkvæmd róttækrar nútímavæðingar verði háttað. I bók sem nýlega kom út í Bandaríkj- unum og nefnist “Reinventing Govern- ment” eru kynntar tillögur að breyttum vinnubrögðum og viðhorfum í opinber- um rekstri. Uppistöðunni í þessunt til- lögum svipar til hugmyndanna um nú- tímavæðingu t.d. á Nýja Sjálandi. Sér- staklega er rætt um hvernig starfsmenn opinberra stofnana þurfi að fara að hugsa eins og stofnanirnar væru einkafyrirtæki. Hugtök eins og arður af eigin fé, afköst o.fl. koma þar töluvert við sögu. I fram- haldi af því leggur David Osborne, annar höfundur bókarinnar, til að sett verði á laggirnar nefnd sem hafi það markmið að straumlínulaga og stokka upp ríkis- kerfið. Þessi nefnd hefði nægjanlegt vald til að loka stofnunum og breyta öðr- um. Auk þess hefði nefndin nægjanleg áhrif til að koma fram með breytingar á ríkiskerfinu í anda einkareksturs. Hér gæti verið um að ræða að auka möguleika stofnana á að verðiauna þá starfsmenn sem vinna góð störf og að segja t.d. upp þeim yfirmönnum stofnana sem ekki standa við gerðar áætlanir. Að sjálf- sögðu hefðu kjörnir fulltrúar vald til að segja af eða á um hvort að einstökum til- lögunt nefndarinnar verði farið. Mikil- vægt er þó, að mati Osbornes, að þingið segi einungis af eða á um einstakar tillög- ur, þ.e. kosning fari fram um einstakar til- lögur án verulegs málþófs, málamyndatil- lagna o.þ.h. Auðvitað eru hugmyndir sem þessar að nokkru leyti útópískar því erfitt er að segja kjörnum fulltrúum fyrir verkum og vandinn verður ávallt sá, að kjörnir full- trúar munu haga sér í takt við það sem þeir telja að hámarki atkvæði þeirra í kosningum. Hags- munahópar munu einnig halda áfram að þvinga stjórnmála- menn til að “kjósa rétt’". Einhverskonar yfirnefnd getur ekki breytt þeirri megin- reglu. Hinsvegar getur þessi aðferðafræði greitt fyrir hagræðing- artillögum þar sem leiðin frá hugmynd um hagræðingu til framkvæmdarinnar sjálfrar styttist verulega. Tæki en ekki byrði Nútímavæðing er einn af mikilvægustu hornsteinum hagsældar á komandi árum. Með því að hefja róttækar að- gerðir í einföldun ríkiskerfis- ins geta stjórnvöld betur farið að einblína á tiltekin mark- mið í rekstri þess og látið rík- ið hætta að vasast í þvt' sem aðrir geta sinnt. Þannig verð- ur ríkiskerfið tæki eigenda sinna til bættra lífsgæða fremur en byrði á þeirn. Stofnanirnar fá aukið svigrúm í launa- og ráðningarmálum, ráðstöfun sértekna o.s.frv. Um leið eru þeim sett ströng fjárhags- og þjónustutakmörk sem fyrir- svarsmenn þeirra taka fulla ábyrgð á. Hvert fyrirtæki, stofnun eða deild innan ríkiskerfisins er skoðað með tilliti til þess hvort þörf sé á þessari starfsemi.

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.