Stefnir - 01.04.1994, Page 38

Stefnir - 01.04.1994, Page 38
Kvótakerfið er hagkvæmt og réttlátt! Eftir Hannes Hólmstein Gissurasson að er samdóma álit þeirra sérfræð- inga, sem kynnt hafa sér skipulag fisk- veiða á íslandsmiðum af einhverju viti, til dæmis dr. Ragnars Árnasonar, prófessors í fiskihagfræði í Háskóla íslands, dr. Rögnvaldar Hannessonar, prófessors í fiskihagfræði í Björgynjarháskóla í Nor- egi, og Jónasar H. Haralz, fyrrverandi bankastjóra, að þetta skipulag sé eitt hið besta, sem vestræn þjóð hafi komið upp hjá sér. íslendingar séu í fararbroddi í selningu leikreglna uni fiskveiðar. Ég tek undir með þessum ágætu sérfræðingum. Kvótakerfið svonefnda, sem hér hefur smám saman verið að þróast síðustu tíu árin, er í senn hagkvæmt og réttlátt kerfi. Kvótakerfið er í fæstum orðum kerfi varanlegra og seljanlegra veiðiheimilda, svonefndra kvóta. Veiðiheimildirnar eru í raun aflahlutdeild: Kvótaeign eins fyrir- tækis veitir því rétt á að veiða 1,5% heildaraflans, kvótaeign annars veitir því rétt til að veiða 2% aflans, svo að dæmi séu tekin. Ástæðurnar til þess, að þetta kerfi er hagkvæmt. eru aðallega þrjár. í fyrsta lagi lenda kvótarnir smám saman í frjálsum viðskiptum í höndum þeirra, sem best kunna með þá að fara, því að þeir geta boðið hæsta verð fyrir þá. í öðru lagi myndast við þessi viðskipti með kvótana eðlilegt verð á auðlindinni, en áður fyrr var hún ofnýtt, því að aðgangur var ókeypis að henni. í þriðja lagi leiðir ssú staðreynd, að kvótarnir eru varanlegir, e. ótímabundnir, til þess, að óvissa um arnar minnkar; útgerðarfyrirtækin

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.