Stefnir - 01.04.1994, Side 40

Stefnir - 01.04.1994, Side 40
Þjóðin, sem er eigandi auðlindarinnar, hef- ur hvorki ráðstöfunarrétt né beinan arð af þessari eign sinni. í þessu felst óþolandi óréttlæti sem lagfæra verður taf- arlaust. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn miklu hlutverki að gegna. Kvótakerfið er pólitísk púðurtunna! Eftir Ólaf Öm Klemensson ú um nokkra hríð hefur fiskveiði- stjórnunin og kvótakerfið verið eitt mesta deilumál meðal þjóðarinnar. Ekki er að undra, þótt deilur standi um þennan málaflokk. Vægi sjávarútvegsins er svo yfirgnæfandi í efnahagslífinu að skipu- lag og fyrirkomulag í þessum málaflokki hlýtur að skipta alla landsmenn miklu. Spurningin hver á kvótann og hverjum hefur verið falið að nýta sameiginlegar sjávarauðlindir þjóðarinnar er grundvall- arspurning varðandi efnahagslega og stjórnmálalega þróun hér á landi um mörg komandi ár. En af hverju skyldu deilurnar vera heitastar um kvótamálið. Við því er ein- falt svar. Við Islendingar eigun fáar auðlindir aðrar en fiskimiðin umhverfis landið, fallvötnin og jarðhitann. Um fall- vötnin og jarðvarmann standa hins vegar engar deilur. Þessar auðlindir eru í eigu þjóðarinnar og nýttar sameiginiega. Öðru máli gegnir um fiskimiðin. Þjóð- in, sem er eigandi auðlindarinnar, hefur hvorki ráðstöfunarrétt né beinan arð af þessari eign sinni. í þessu felst óþolandi óréttlæti sem lagfæra verður tafarlaust. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn miklu hlutverki að gegna. Nauðsyn á fiskveiðistjórnun Fyrir margt löngu sáu ýmsir vísir menn að óheftur aðgangur að fiskimiðunum hlyti að leiða til sóunar og til ofnýtingar. Þessi staðreynd er reyndar ein af grund- vallaratriðum fiskihagfræðinnar. Ráðamenn hér á landi komu auga á að í óefni stefndi varðandi fiskveiðar okkar strax á áttunda áratugnum. Upp úr 1980 var alveg ljóst að komið var á ystu nöf hvað varðaði veiðarnar, auk þess sem ekkert var ráðið við stækkun í fiskiskipa- flotanum. Hann var orðinn allt of stór og stækkaði óðum með þeim afleiðing- um að sóknin varð alltof mikil. Flesti nytjastofnar voru ofveiddir eða í það stefndi. Tekin var upp heildstæð fiskveiði- stjómun árið 1983, sem jafnan hefur ver- ið kölluð "kvótakerfið", þótt margt sé þar fleira innanborðs. Fiskveiðistjórnun- in hefur bæði að geyma efnahagsleg og fiskifræðileg markmið. Kerfið á að stuðla að hámarksarðsemi af fiskistofn- unum með því að draga úr sókn og þar með úr heildartilkostnaði við veiðarnar, jafnhliða því að tryggja eðlilega og skynsamlega nýtingu fiskistofnanna. Hér skal tekið fram að ekki er um það deilt að nauðsynlegt hafi verið bæði út frá verndunarsjónarmiðum og efnahags- legum markmiðum að koma á slíkri fisk- veiðistefnu enda þykja Islendingar hafa skipað þessum málum betur en flestir aðrir. Sá böggull fylgdi skammrifi að tak- marka varð aðgang að fiskimiðunum í stað þess að áður gátu allir á sjó farið sem vildu. Skipta þurfti upp takmörkuð- um aflaheimildum milli aðila. Tekið var á það ráð að kvóta var útdeilt á allar þær útgerðir sem verið höfðu við fiskveiðar síðustu 3 árin áður en kvótakerfið var tekið upp. Á þessum tímapunkti hefðu ráðamenn þjóðarinnar þurft að gera sér grein fyrir hvaða afleiðingar þetta mundi hafa. En einmitt við það að skammta að- ganginn að fiskimiðunum urðu til verð- mæti. Kvótinn myndar sjálfstæð verð- mæti. Skortur getur nefnilega skapað verðmæti, sannindi sem flestum liggja í augum uppi, a.m.k. þeim sem einhverja nasasjón hafa af hagfræði eða velta þess- um málum fyrir sér af alvöru. Kvótakerfið á að leiða til hagræðingar, færri skip með minni tilkostnaði ná þeim hámarksafla sem ákveðinn er hverju

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.