Stefnir - 01.04.1994, Qupperneq 42

Stefnir - 01.04.1994, Qupperneq 42
Mark Almond: The Rise and Fall of El- ena and Nicolae Ceausescu, Chapmans 1992. Edward Behn Kiss the Hand you cannot bite. Hamish Hamilton 1991. I þjóðsögum segir frá fundi Magnúsar Steph- ensen og síra Snorra Bjömssonar á Húsa- felli. Þeir deildu fast og urðu ekki sammála um ýms- ar kenningar, m.a. um tilvist helvítis: “Lögmaður bað þá prest að sýna sér ein- hver lfkindi til sönnun- ar því að helvíti væri til... prestur tók því vel og síðan var haldið upp að Draugagili... sá lögmaður, að hver mikill opnaðist í gilinu, sem þeytti upp úr sér reykjarmekki og eldsí- um með ákaflegri brennisteinsfýlu. I mekkinum sveimuðu djöflar með ýlfri og óhljóðum, og varð lögmaður mjög hræddur við þessi undur” (Olafur Dav- íðsson: Islenskar þjóðsögur II. Rvk. 1978). Opinber lygavefur Mörgum brá ónotalega þegar Draugagil alþýðulýðveldanna og Sovétríkjanna luk- ust upp. A Vesturlöndum neituðu margir að trúa staðreyndum, en í alþýðulýðveld- unum þekktu menn hryllinginn af eigin raun. Fjörutíu ár eru langur tími, hvað þá sjötíu ár undir stjórn manna sem vinna að því að færa þjóðirnar í spennitreyju kúgunar og lyga. Menn urðu að lifa í lygafeninu, nauðugir viljugir, aðlagast falsaðri vitund og tala lygi, bindast hin- um opinbera lygavef. Öll saga þjóða og ríkja var aðlöguð nauðsyn flokksins. Listir og bókmenntir skyldu þjóna flokkshagsmunum og nýt- ast til áróðurs fyrir flokkinn og ráðandi stjómendur. Glæpaverk Ceausescus Mark Almond fór til Rúmeníu á eigin vegum og kynntist ekki “nomenklatúr- unni” heldur hinum eiginlegu andófs- mönnum. Ferðir Almonds til Rúmeníu voru því hættuspil. Hann átti nokkurn hlut að falli Ceausescus, með því að fá í hendur frá kunnri andófskonu, og opinbera, áætlanir hins rúmenska Stalíns um eyðingu. Af- staða Ceausescus til innrásarinnar í Tékkóslóvakíu var ágætt vítt um lönd, þessvegna heimsóknirnar. En afstaða hans skipti í rauninni engu máli, það breyttist ekkert í Rúmeníu, alls- leysið og terrorinn, njósnirn- ar og pyntingarnar voru iðkaðar eftir sem áður. Samsvörun annars staðar Almond telur að ferill Ceausescus hafi í engu verið frábrugðinn ferli flestra þeirra valdhafa sem unnu samkvæmt Marx-Lenínískri hug- myndafræði. Núverandi vald- hafar í Rúmeníu virðast samkvæmt skoð- unum Almonds vera svipaðrar gerðar og sá sem þeir tóku af lífi ‘89. Þeir reyna nú að hvítþvo sjálfa sig með því að sverta fóstrann sem mest. Misskilningur um fortíðina Edward Behr er fyrrum blaðamaður og stríðsfréttaritari. Hann hefur skrifað ýms- ar bækur og meðal þeirra er “Kiss the hand you cannot bite” - The Rise and Fall of the Ceausescus. Formálahöfund- urinn, Ryzard Kapuscinski, rekur ástæð- umar fyrir takmörkuðu andófi í Rúmeníu gegn kommúnistum og telur það hafa verið m.a. vegna frumstæðni samfélags- ins; engin millistétt og lítt uppfrædd lág- stétt. En það nægir ekki. Hér kemur til skefjalaus ógnarstjórn, stöðugar njósnir, fátækt og matarskortur. Rúmenía var eitt sinn nefnd matarforðabúr Balkanskaga. Minningar manna frá þeim tímum um Rúmeníu vitna um gnægð allskonar mat- fanga og maturinn var ódýr. Mönnum eru minnisstæði sveitaþorpin, litskreyt- ingar og litauðugir þjóðbúningar, al- þýðumúsikin og hjarðir vel alinna hús- dýra. Þýsk-frönsk menning var ríkjandi meðal yfirstéttanna. A þessu öllu varð hrikaleg með fullkomnun Rúmeníu sem leppríkis 1948 undir stjórn Ana Pauker, sem taldist til “forystusveitar verkalýðs- baráttunnar”, en þannig var henni lýst af íslenskum kommúnistum á sinni tíð og var hún meðal dáðustu persóna úr þeim sveitum með því liði. “Forystusueit verkalýðsbaráttunnar” Með valdatöku Ana Pauker og Gheorg- hiu-Dej hófst ógnaröldin. Tala þeirra sem voru teknir af lífi á árunum 1946-47 hefur verið áætluð um 60.000. Höfundurinn rekur valdabaráttuna innan kommúnista- flokksins mjög skilmerkilega og upp- komu Ceausescus sem áhrifamanns. Hér segir frá heimsókn Ceausescus og konu hans Elenu til Englands árið 1978. Þau höfðu áður heimsótt forseta Frakklands og höfðu gist í gestahúsi á móti Elysée- höllinni, aðsetursstað Frakklandsforseta. Reynslan af þeirri heimsókn var hroll- vekja. Gestirnir og fylgdarlið þeirra höfðu látið greipar sópa um ýmiskonar smámuni og listaverk og öll umgengni var eftir því. Þess vegna aðvaraði forsetinn Elísabetu II og Don Carlos Spánarkonung. Takmarkalaus spilling Smekkur þeirra hjóna var af lægstu gráðu, kits smekkur - lágsmekkur fyrir úl- sölulist og ómerkilegasta brikkabrakki. A- hugi Ceausescus fyrir byggingarlist hafði hrikalegar afleiðingar fyrir rúmenska menningararfleifð; fjöldi glæstra bygg- inga um allt landið var eyðilagður og hrikalegur óskapnaður reistur í staðinn, sem sló út óskapnaðinn sem reistur var í Sovétríkjunum á dögum Slalíns. Höfundurinn skrifar um spillinguna í Rúmeníu fyrir daga kommúnismans, spillta valdastétt og kjánalega hegðun, einkum Carols II konungs. En sú spilling er annars eðlis en spillingin á dögum Ceausescus. Fyrrum fékk fólk að vera nokkurn veginn í friði fyrir spilltum stjórnendum, en með kommúnismanum hófst sú spilling sem gegnsýrði alla þjóð- inna. Þeir gömlu sviku og lugu en vissu að til voru takmörk, hugmyndaheimur kommúnismans á sér engin takmörk. Fyrsta þætti lokið Behr byrjar sögu hjónanna skömmu fyr- ir jól 1989 og lýsir þriggja daga flækingi þeirra og tilraunum til flótta sem, mistók- ust og Iauk með aftöku þeirra. Þeir sem að henni stóðu voru kommúnistar, sem Elena kallaði “börnin sín” við sýndarréttarhöld- in. Sagan af Drakúla minnir um margt á feril Ceausescus. Hann mergsaug þjóðina, afmannaði hana og kom henni á vonarvöl, gerði hana sjálfum sér líka. Það tókst Dra- kúla aldrei. Stöðugar lygar í hálfa öld hafa áhrif á hugarheiminn, fölsuð heims- mynd verður ekki þvegin burt í einu vetfangi.

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.