Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1925, Síða 9

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1925, Síða 9
143* 1924 af svona meSferö, þegar sjúkdómurinn er kominn svo langt, að farið er að bera á lömunum, en í byrjun. Þrisvar voru reynd guajacolsmyrsl, árang- ur mjög vafasamur. Lutnbal.punktio var einu sinni gerð, á fyrsta sjúk- iingnum, sem jeg fjekk til meðferðar. Ástungan var gerð á sjúkl. liggj- andi og aðeins 20 ccm. tæmd út. Ekki ljetti sjúkl. við ástunguna, heldur þvert á móti, ef nokkuð var, dó ekki fullum sólarhring síðar. Áræddi jeg því ekki að reyna þetta oftar, enda gerði þessa tilraun aðeins út úr vandræðum heldur en að reyna ekki neitt.' Sú eina lækningatilraun af þeim, sem jeg hefi gert við mænusóttina, er jeg hefi þótst sjá greinileg- an árangur af, er intravenös CaCl2-injectio gegn andfæralömun, yfirvof- andi eða í byrjun. Jeg var fyrstu 10 dagana búinn að sjá 5 sjúklinga deyja úr bulbærparalysis, er vanalega byrjaði með máttleysi í koki, tungu og vörum, svo að munnurinn fyltist af seigu slími, er sjúkl. gat ekki hrækt nje losnað við, og endaði með andfæralömun. Fyrsta sinn hafði jeg reynt lumbalpunktio, eins og áður er sagt, hin skiftin áræddi jeg" ekki eða sá mjer til neins að reyna neitt, er teljandi væri eða búist yrði við árangri af, enda varð sjúkl. ekki gefið inn, er svona var komið. Altaf fór á sötnu leið: eftir að greinileg kok-, tungu- og varalö'mun var komin, dó sjúkl. á næsta sólarhring. Nú datt mjer í hug, að reyna CaCl2 intravenöst; skaðað gat það tæpast, því að þegar bulbærlömun var byrjuð á annað borð, var prognosis pessima hvort sem var, og óhugsanlegt var ekki, að það kynni að geta varnað andfæralömun, a. m. k. um tíma, svo að líkam- anum gæfist ráðrúm til að safna vörnum gegn sótteitrinu, sem lötnun- unum veldur. En þess vegna gat jeg hugsað rnjer, að CaCl2 gerði þetta að verkum, að það er fullreynt, að það læknar andfæralömun, er stafar af MgS04-eitrun. Nú var hjer að vísu ekki um MgS04-eitrun að ræða, en eitrun var það samt; er hvorttveggja, að mjer er ekki kunnugt um, að menn viti, á hvern hátt CaCl2 læknar andfæralömun af völdum MgS04 — ágiskanir um það hefi jeg sjeð — og að það læknar líka fleiri eitranir, svo sem oxalsýrueitrun, og var því ekki fyrirfram unt að fortaka, að lyf þetta kynni að hafa læknandi áhrif á andfæralöinun af völdum mænu- sóttareitursins, sem líka er ókunnugt um hvernig verkar; gæti hugsast, að ])að skaðaði frymi mænukerfisins á þann hátt að breyta kalksöltum þess í óleysanleg kalksölt og fella þau, eins og oxalsýran gerir að líkind- um, og ef svo væri, væri ekki óhugsanlegt, að nægilegt af uppleystuin kalk- söltum í blóðinu gæti varnað því. Sjálfsagt veldur mænusóttareitrið bólgu í hinni sjúku mænu og bulbus, og sennilega háræðaskemdum, en tilraunir hafa sýnt, að CaCl2 getur oft varnað bólgu og háræðaskemdum eða lækn- að þær. Hvað sem um þetta er, sýndist ekkert í hættu, þótt þetta væri reynt. En þótt ekki sje meiri aðgerð en þetta, er ótrúlega erfitt að koma því við í sveitapraxis, að gera hana á rjettum tírna. Jeg vildi sem sje ekki nota CaCl2 nema i allra þyngstu tilfellunum, með byrjandi eða yfir- vofandi andfæralömun. Fyrst og fremst þótti mjer líklegt, í „analogi“ við verkun lyfsins við MgS04-eitrun, að það hefði ,,eklektiva“ verkun á andfæralamanir og væri gagnslaust eða gagnslítið við lömunum annars- staðar. 1 öðru lagi var ómögulegt að fá svo mikið sem hugboð um, hvort sjúkl. batnaði „propter“ eða eingöngu „post“, ef lyfið hefði verið notað við ljett haldna sjúklinga. í þriðja lagi hefði því farið fjarri að unnist hefði tími til að nota það í stórum stíl og ferðast til þess langar leiðir,

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.