Gisp! - 01.10.1999, Page 31

Gisp! - 01.10.1999, Page 31
SUSSI BECH Fædd 1958. Sussi Bech er svar Dana við Hergé. Líkt og höfundurTinna teiknar hún í tæra línu-stílnum og leiðir lesendur um framandi lönd en kvenpersónurnar eru öllu fyrirferðarmeiri hjá henni og þær þurfa oft að eiga við samvisku sína þegar þær standa frammi fyrir erfiðu vali. Fyrsta bók Sussi, ,,Zainab“, byggir á „Þúsund og einni nótt“. 1986 hóf hún gerð bókaraðar um „Nofret" sem segir frá ævintýrum samnefndar stúlku í Egyptalandi um þrettán öldum fyrir Kristsburð, á tímum Tutankamons. Þær sögur hafa náð miklum vinsældum og verið þýddar á önnur tungumál. Af öðrum verkum Sussi má nefna glæpasöguna „Alda Nur“ sem gerist í Egyptalandi á þriðja áratug þessarar aldar. Verk á sýningunni: „Nofret“ (síður 24, 34, 35, 37, 39). PETER SNEJBJERG Fæddur 1963. Peter Snejbjerg er einn þeirra dönsku teiknara sem náð hafa að festa sig í sessi á bandaríska mynda- sögumarkaðnum. Stíleinkenni hans eru áhrifamikil notkun skugga með grönnum útlínum og vel útfærð síðuhönnun, að ógleymdri góðri teikningu. Þetta prýðir góðar hryllingssögur enda finnst Peter skemmtilegast að teikna þær. Peter vakti fyrst athygli árið 1990 með 200 síðna fantasíu/vísindaskáldsögu, „Hypernauten". Eftir hina metnaðarfullu bók „Den skjulte protokoll“ teiknaði hann Tarsansögur fyrir Semic og komst þannig í samband við bandaríska útgefendur. Bækur: -„Hypernauten" 1990 -„Den skjulte protokoll" 1991 Erlend útgáfa: ma. sögur í blöðunum „Tarzan“ (Malibu Comics), „The Children Crusade“, „Books of Magic“ (DC) og „The Dreaming“(DC). Verk á sýningunni: 2 síður ( 36, 37) ; „Book of Magic“ (siður 5, 6). TEDDY KRISTIANSEN Fæddur 1964. Á síðustu árum hefurTeddy Kristiansen náð að skjóta sér upp á bandaríska stjörnuhimininn.Teddy er sjálflærður ef undan er skilið hálft ár í myndlistaskóla. Hann hóf feril sinn í teiknimyndum en árið 1990 teiknaði hann fyrstu Superman-söguna sem gerð hefur verið utan Bandaríkjanna, eftir handriti Niels Sondergaard. Því fylgdu Tarsansögur fyrir Malibu og tilnefning til bandarísku Eisner-verðlaun- anna. Síðan hefur hann unnið fyrir Dark Horse en mest þó fyrir DC. Teddy er undir áhrifum frá evrópsku nýbylgjunni sem endurnýjaði tæru línuna á níunda áratugnum. Aðra áhrifavalda má einnig greina, td. Egon Schiele, pönkið og Frank Miller. Erlend útgáfa: ma. sögur í blöðunum „Tarzan“ (Malibu Comics), „Sandman Mystery Theatre" (DC) og „House of Secrets" (DC). Verk á sýningunni: 3 síður ( 19, 31,63). Bjarni Hinriksson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.