Gisp! - 01.10.1999, Page 140

Gisp! - 01.10.1999, Page 140
allar eftir bandaríska höfunda en einnig með nokkru norsku efni. Bladkompaniet gefur einnig út nokkrar norskar bækur. Norsk Barneblad er tímarit fyrir börn, ýmist með myndasögum eða myndskreyttum sögum. Myndasögurnar verða æ ríkari þáttur í blaðinu, einn listamaðurinn er Inka Lill. No Comprendo Press er lítið fyrirtæki sem tveir áhugasamir Oslóbúar reka. Eins og Pyton er flaggskipið þeirra, Fidus, aðallega teiknað af norskum listamönnum en ætlað þroskaðri les- endum. Fidus er að auki ekki eins sveigt að markaðnum heldur gefur listamönnunum frjáls- ari hendur. Fyrirtækið gefur einnig út bækur og stök verk eftir listamenn eins og kaldranalega skopteiknarann Christopher Nielsen og frum- lega bókmenntaslátrarann Steffen Kverneland. Yngsta kynslóð norskra myndasagnahöfunda birtir verk sín helst í útgáfum áhugamanna (fanzines) og eru margar þeirra prentaðar hjá tímaritinu Gateavisa. Flestir norskir myndasagnahöfundar eru fél- agar í Grafill, samtökum myndskreyta og graf- ískra hönnuða. Frá því 1990 hefur norska menntamálaráðið úthlutað styrkjum bæði til gerðar myndasagna- bóka og styttri myndasagna. Finnland Finnland er ef til vill það land þar sem minnst hefur gætt heimskreppunnar í myndasögum. Mest selda myndasagan er Aku Ankka (Andrés önd) sem selst í hvorki meira né minna en 270.000 eintökum. Það er ekki aðeins að al- þjóðlegar sögur seljist vel, heldur njóta innlendir listamenn góðs af bjartsýni og dirfsku útgefenda. Sennilega hafa aldrei komið út eins margar myndasögubækur finnskra listamanna og eftir 1990. Finnskar myndasögur hafa örugglega aldrei verið eins fjölbreyttar og nú. Hefðbundin ævin- týri og gamansögur eru auðvitað ennþá til en margbreytni í efni og stíl hefur vaxið gríðarlega. Upplög þessara nýju framúrstefnusagna eru yfir- leitt ekki mjög stór en áhrif þeirra því meiri í fjölmiðlum og menningarumræðu. Til að gefa hugmynd um fjölbreytnina má nefna raunsæjar sögur Kari Leppánen, fantasíu- skrapmyndir Matti Hegelbergs og ofurvirkar kvenhetjur í spunakenndum sögum Kati Kovács. Tarmo Koivisto hefur skráð félagslegar, fjárhags- legar og pólitískar sviptingar í tuttugu ár í sögu sinni um litla finnska þorpið Mámmilá. Kivi Larmola gerir heilar bækur út frá persónulegum athugunum sínum og athugasemdum. Virtir smáútgefendur, Suuri Kurpitsa, Like og Jalava, gefa út nýjar og framúrstefnulegar finnsk- ar myndasögur í bókum ætlaðar þroskuðum lesendum. Like og Jalava eru að auka útgáfu sína á bandarískum myndasögum en halda samt áfram að gefa út margar evrópskar myndasögur. ÚtgáfurisarnirTammi og Otava beina einstöku sinnum athygli sinni að ungu kynslóðinni en gefa aðallega út hefðbundnara efni. Mest seldi höf- undur og teiknari á vegum Otava, Mauri Kunnas, semur bæði barnasögur og myndasögur. Finnski myndasagnamarkaðurinn skiptist aðal- lega á milli Helsinki Media og Semic. Helsinki Media gefur út Aku Ankka, sem áður var nefnt, auk margra annarra sagna, aðallega Disney- sögur frá Egmont þótt forlagið sé ekki dóttur- fyrirtæki Egmonts. Mest seldu bækur hjá keppi- nautnum Semic, í eigu Bonniers, eru ýmar bandarískar ofurhetjusögur, Muumin (Múmínálfarnir, aðallega eftir norræna listamenn) og Mustanaamio (Skuggi). Af þeim bókum, sem Semic gefur út, seljast best Lassi ja Leevi (Calvin and Hobbes) en Helsinki media gefur út Lukku- Láka og Ástrik. Finnska samtökin Laaki-sarjat hafa lengi séð um dreifingu myndasagna til finnskra blaða og einnig gefið út nokkrar safnbækur. Finnsk dag- blöð eru eins og norsk dagblöð vinsælt athvarf innlendra myndasagnahöfunda. Það vekur athygli að margir finnskir mynda- sagnahöfundar eru konur. Kvenhöfundar gáfu út eigið tímarit, Naarasarjat (Kven-myndasögur) árin 1992-94. A þeim stutta tíma birtu um það bil 50 konur myndasögur sínar í tímaritinu, bestu sögurnar hafa síðan birst í öðrum tíma- ritum og bókum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.