Fréttablaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 12
1600 Perúska eldfjallið Huaynaputina springur, svo úr
verður mesta eldgos í sögu Suður-Ameríku.
1870 Ádeilukvæðið Íslendingabragur eftir Jón Ólafsson
ritstjóra birtist í blaði hans Baldri.
1878 Thomas Edison fær
einkaleyfi á grammófón-
inum.
1881 Kansas verður
fyrsta ríki Bandaríkjanna
til að leyfa sölu alkóhóls.
1886 Fyrstu hvalfriðunarlög sett á Íslandi. Hvalveiðar
voru þá taldar hafa neikvæð áhrif á fiskveiðar.
1968 Hæstiréttur Bretlands ákveður að 62 börn skuli fá
bætur frá lyfjafyrirtækinu sem framleiddi lyfið þalídómið
og gerði að verkum að þau fæddust vansköpuð.
1976 Ísland slítur
stjórnmálasambandi
við Bretland vegna
deilunnar um fiskveiði-
lögsögu Íslands. Sam-
band kemst aftur á eftir
rúma þrjá mánuði.
1992 Kvikmyndin Börn
náttúrunnar er tilnefnd
til Óskarsverðlaunanna
sem besta erlenda kvik-
myndin. Hún hlaut þó
ekki verðlaunin.
2008 Fídel Castro til-
kynnir að hann muni
láta af embætti.
Merkisatburðir
Félagarnir í furðulega nefndu hljómsveitinni hist og gáfu í desember út sína aðra plötu, hits of. Sökum samvisku og sóttvarna gátu þeir ekki fagnað plötunni fyrr en nú
og verða því haldnir síðbúnir útgáfu-
tónleikar í Mengi í kvöld.
„Orðagrínsaðdráttaraf lið er ansi
sterkt,“ svarar Eiríkur Orri Ólafsson,
trompet-, trommuheila- og hljóm-
borðsleikari sveitarinnar, aðspurður
um hvort ekki sé full snemmt að gefa
út 'Hits of ' plötu svo snemma í sögu
bandsins. „Pönnið tekur forgang.“
Ásamt Eiríki skipa sveitina Róbert
Sturla Reynisson sem leikur á gítar,
bassa og hljómborð og Mag nús
Tryggvason Eliassen sem leikur á
trommur og annað tilfallandi. Þeir hafa
í gegnum árin hist og starfað saman í
ýmsum hljómsveitum, svo sem múm,
amiinu og Sin Fang, sitt í hvoru lagi
hafa þeir auk þess starfað með hljóm-
sveitum á borð við Sigur Rós, Kiru Kiru,
Benna Hemm Hemm og Seabear.
hist og gáfu síðast út plötuna Days
of Tundra árið 2019 sem hlaut góðar
viðtökur hlustenda. Tónlistinni lýsir
sveitin sem innhverfri, úthverfri og
slagþrunginni blöndu af djass, raf-,
og spunatónlist sem kemur víða við.
Eiríkur segir að á nýju plötunni kenni
ýmissa grasa, bæði gamalla og nýrra.
„Nýja platan inniheldur lög sem samin
eru af öllum meðlimum hópsins og er
því kannski aðeins blandaðri heldur en
sú fyrri,“ útskýrir hann.
hits of var tekin upp síðasta sumar í
innsveitum Suðurlands, nánar tiltekið
í Kjarnholti í Biskupstungum sem er á
vegum Mengis. „Við settum upp smá
stúdíó í salnum hjá þeim,“ segir Eiríkur
og bætir við að sveitin hafi sett ákveð-
inn svip á plötuna. „Það voru þarna
nokkur lömb sem léttu okkur lundina.“
Fagurbleikt plötuumslagið hannaði
listamaðurinn Páll Ivan frá Eiðum og
á Eiríkur erfitt með að koma orðum að
því hvernig hann túlkar það. „Þetta eru
einhvers konar bleikbúðingsleg form
sem ég kann vel að meta,“ segir hann.
Páll Ivan verður sérstakur heiðursgest-
ur sveitarinnar og mun munda bassann
ásamt sveitinni á tónleikunum í kvöld.
Húsið opnar klukkan 20.30 í kvöld
og er takmarkaður sætafjöldi og grímu-
skylda. arnartomas@frettabladid.is
Bleikbúðingsleg plata
unnin í Biskupstungum
Hljómsveitin hist og heldur síðbúna útgáfutónleika í Mengi í kvöld fyrir aðra plötu
sína, hits of. Platan var tekin upp síðasta sumar í Kjarnholti í Biskupstungum.
Á nýrri plötu hist og sem kom út í desember eru lög sem samin eru af öllum meðlimum hópsins. MYND/AÐSEND
Bleikt og fallegt plötuumslagið gerði
listamaðurinn Páll Ivan frá Eiðum.
Orðagrínsaðdráttaraflið er ansi
sterkt.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpmóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Ingibjörg Guðmundsdóttir
sjúkraliði,
áður til heimilis að Brautarási 10,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu Boðaþingi mánudaginn 8. febrúar.
Útför hennar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Aðalsteinn Sigurgeirsson Lea Hjörbjörg Björnsdóttir
Sigríður Sigurgeirsdóttir Ragnar Jónasson
Hansína Sigurgeirsdóttir
Þorkatla Sigurgeirsdóttir Jón Þórhallur Sigurðsson
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
Bergdís Ósk, Gunnlaugur og Heimir Sigmarsbörn
barnabörn og aðrir afkomendur.
Ástkær eiginmaður minn, elskulegur
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Stefán Árnason
framhaldsskólakennari,
Markarflöt 41,
Garðabæ,
lést af slysförum miðvikudaginn
17. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 1. mars klukkan 13.
Marsibil Ólafsdóttir
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson
Vésteinn Stefánsson Kolbrún Hanna Jónasdóttir
Bryndís Stefánsdóttir Jens Jónsson
og barnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og mágur,
Jón Ólafur Skarphéðinsson
prófessor,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, fimmtudaginn 11. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
23. febrúar kl. 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu
ættingjar og vinir, sem munu fá boð, viðstaddir.
Útförinni verður streymt og má nálgast hlekkinn á
mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Landvernd, Votlendissjóð eða önnur félög sem standa að
uppgræðslu landsins eða endurheimt votlendis.
Hólmfríður Jónsdóttir
Una Björk Jónsdóttir
Ása Karen Jónsdóttir
Halla Oddný Jónsdóttir
Friðgeir Bjarni Skarphéðinsson Sigrún Rafnsdóttir
Karl Skarphéðinsson Sara Gylfadóttir
Hjálmar Skarphéðinsson Elín Ólafsdóttir
Óskar Bjarni Skarphéðinsson Dóra Bergrún Ólafsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Signý Ósk Ólafsdóttir
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
10. febrúar. Útförin fer fram frá Lindakirkju
mánudaginn 22. febrúar kl. 15. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
Ólafur Ragnar Elísson Hrafnhildur Bjarnadóttir
Sæmundur Bjarni Elísson Kristinn Sigurður Jónsson
Karen Mjöll Elísdóttir Rúnar Þór Björgvinsson
Vilborg Elísdóttir Ómar Björn Jensson
og ömmubörn.
Amal Rún Qase
lést laugardaginn 23. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Hún var drottning.
Skúli Isaaq Skúlason Qase.
1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT