Fréttablaðið - 19.02.2021, Qupperneq 16
Elenora Rós hefur brenn-andi áhuga á bakstri og var smástelpa þegar hún ákvað
að verða bakari og hefur að eigin
sögn fengið að blómstra í faginu.
Í lok síðasta árs gaf hún út bókina
Bakað með Elenoru Rós sem flaug
inn á metsölulista með glæsibrag.
Elenora Rós vinnur á Deig um
helgar og er á samningi hjá Bláa
lóninu samhliða náminu. Við
máttum til að kasta fram þessari
klassísku spurningu, kanntu
brauð að baka? Og það stóð ekki
að svari. „Já, heldur betur, eins
hlédræg og ég get verið þá er þetta
spurning sem ég get klárlega
svarað játandi. Súrdeigbrauð er
skemmtilegasta brauð sem ég baka
og er súrdeigsbakstur algjörlega
mín hugleiðsla. Ég hef unnið í
nokkrum bakaríum þar sem mikið
er lagt upp úr því að gera góð og
flott brauð úr gæða hráefnum. Það
var samt ekki fyrr en í COVID fyrir
ári síðan sem ég fór á fullt í brauð-
bakstur. Mér finnst ekkert fallegra
en góð, mjúk og bragðmikil brauð
sem er búið að skera fallega í og
hafa lyft sér vel. Ég vann besta
brauðið í nemakeppninni í bakstri
árið 2019 en þá bjó ég til súrdeigs-
brauð með lakkrís og trönuberjum
sem er eitt mest spennandi brauð
sem ég hef búið til og slær alltaf í
gegn. Ég gaf einnig út bók síðasta
haust sem inniheldur allskyns
skemmtileg brauð, rúgbrauð,
beyglur, súrdeigsbrauð, focaccia,
brauðrétti, samlokur og fleira.“
Ást og tilfinningar
bak við brauðin
Þegar kemur að því að spyrja
Elenoru Rós hvort hún eigi sér sitt
uppáhalds brauð og hvort einhver
saga fylgi því á hún mjög erfitt
með að gera upp á milli. „Ég átti
svakalega erfitt með að gera upp
á milli brauðanna minna. Það er
alltaf saga, mikil ást og sterkar
tilfinningar á bak við öll brauðin
mín. Trönuberja- og lakkrís-
brauðið mitt var til dæmis búið til
fyrir fyrstu keppnina sem ég tók
þátt í. Beikonsultubrauðið mitt var
búið til rétt áður en COVID skall
á og bakararnir í vinnunni minni
hjálpuðu mér, sýndu mér tækni og
aðferðir þegar ég var að búa það til.
Ég elska að búa til öðruvísi brauð
og koma fólki á óvart þegar bragð-
ið á brauðinu leikur við bragð-
laukana. En uppáhaldsbrauðið
mitt þessa dagana er súrdeigs-
brauð með eplum og kanil. Ég er
sjúk í allt með eplum og kanil núna
og hef sett það ofan á marengs, inn
í snúða og núna ofan á brauð. Það
er svo lokkandi að finna ilminn á
meðan brauðið bakast og lygilega
gott að fá sér brauðið heitt þannig
smjörið bráðnar ofan í brauðið.“
Ylvolgt smjör ávallt best
Aðspurð segist Elenora Rós vilja
njóta brauðsins til fulls án áleggs.
„Án þess að hljóma ótrúleg klisju-
kennd þá er það rosalega misjafnt
en mér finnst brauðið alltaf eiga
að vera það gott að þú viljir njóta
þess að finna bragðið af brauðinu
en ekki stútfylla það með áleggi.
Þegar ég til dæmis geri súrdeigs-
brauð vil ég einungis borða það
með smjöri, helst ylvolgt svo
smjörið bráðni inn í brauðið. Ég
geri yfirleitt súrdeigsbrauð með
miklu og góðu bragði eins og með
sesam og graslauk, chili og havarti
osti, lakkrís og trönuberjum,
beikonsultu eða epli og kanil. Þá
finnst mér ég ekki þurfa mikið
álegg. Annars finnst mér virkilega
gott að fá mér ost og gúrku, pestó
eða einhvers konar salat eins og
ostasalat eða túnfisksalat á brauð.
Ef ég er að fá mér hvítt franskbrauð
er þó í miklu uppáhaldi að fá
skólakæfu á brauðið mitt því þrátt
fyrir að vera gömul sál þá er ég enn
þá bara fimm ára í anda.“
Við fengum Elenoru Rós til að
gefa uppskriftina að súrdeigs-
brauðinu með eplum og kanil sem
allir sælkerar eiga eftir að elska.
Súrdeigsbrauð með
eplum og kanil
500 g sterkt hveiti
400 g vatn
150 g súr
15 g salt
hálft epli
15 g kanill
Aðferð
1. Sterku hveiti, vatni og súr
blandað hægt saman í 12
mínútur með krók.
2. Salti bætt saman við og hrært
hratt í 3 mínútur.
3. Deigið er látið standa í klukku-
stund með viskustykki yfir
skálinni.
4. Á meðan er gott að skera eplið
niður í mjög smáa teninga.
5. Þegar deigið hefur staðið í
klukkustund er komið að því að
toga og brjóta það í fyrsta skipti.
Stráið eplunum og kanilnum
yfir deigið, togið og brjótið
deigið og látið eplin og kanilinn
enda innan í deiginu.
6. Síðan er deigið togað og brotið
á hálftíma fresti í tvö skipti til
viðbótar.
7. Þegar deigið hefur verið togað og
brotið í þrjú skipti fær deigið að
hvíla í annan hálftíma í skálinni.
8. Síðan er deigið sett á hveitistráð
borð og léttmótað í litla kúlu.
9. Deigið fær svo að standa með
viskustykki yfir og hvíla á borð-
inu í hálftíma.
10. Deigið er síðan fullmótað,
sett í hveitistráða hefunarkörfu
og inn á kæli yfir nóttina eða í
a.m.k. 10-12 klukkutíma.
11. Eftir nóttina er ofninn for-
hitaður í klukkustund áður en
brauðið fer inn.
12. Ofninn er hitaður á eins háum
hita og ofninn þolir eða a.m.k. í
250°C. Steypujárnspotturinn er
látinn sitja inni í ofninum í þessa
klukkustund á meðan ofninn
er að hitna svo að hann hitni vel
líka og brauðið bakist rétt.
13. Eftir klukkutímann er
brauðinu hvolft úr körfunni og
á bökunarpappír, hérna er besti
tíminn til að skera í brauðið ef
það er eitthvað sem þið viljið
gera. Þetta er sett snögglega ofan
í pottinn og beint inn í ofninn.
14. Ofninn lækkaður strax niður í
235°C um leið og brauðið fer inn
og bakað í 25 mínútur.
15. Svo er lokið tekið af og þá
er brauðið bakað á 210°C í 20
mínútur eða þar til það er orðið
fallegt á litinn og tómahljóð
heyrist þegar bankað er undir
það.
Kælið vel áður en skorið er í það.
Súrdeigsbrauð með eplum og kanil
Elenora Rós Georgesdóttir, sem einungis er tvítug að aldri, er orðin fræg fyrir hæfileika sína í
bakstri og er þessa dagana að ljúka síðasta ári í námi sínu sem bakaranemi.
Elenora Rós
Georgesdóttir
bakaranemi
er snillingur
í súrdeigs-
bakstri og
hefur gaman
af því að búa
til eitthvað
nýtt og spenn-
andi. MYNDIR/
AÐSENDAR
Súrdeigsbrauð með eplum og kanil.
„Þegar ég til
dæmis geri
súrdeigsbrauð
vil ég einungis
borða það
með smjöri,
helst ylvolgt
svo smjörið
bráðni inn
í brauðið,“
segir bakara-
neminn.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Matarást
Sjafnar
100% nátt
úruleg
hvannarró
t
60 HYLKI
FÆÐUBÓT
AREFNI
hvannarró
t
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F Ö S T U DAG U R