Fréttablaðið - 19.02.2021, Side 36
Þegar blaðamaður Frétta-blaðsins fór á stúfana í leit að fjölskyldum sem fara alla leið á ösku-daginn þá kom sífellt upp sama nafnið; Guð-
mundur Þór Kárason. Hann byggir
á gífurlegri reynslu í búningagerð-
inni en hann hannaði brúður fyrir
Latabæ á sínum tíma og talsetti
karakterinn Sigga sæta á íslensku
og ensku ásamt því að leikstýra
brúðunni.
„Ég byrjaði að gera búninga á syni
mína fyrir um fimmtán árum, þegar
þeir voru tveggja og þriggja ára. Ég
hef alltaf verið að búa til hluti, alveg
frá því að ég var krakki. Ég man að
ég fékk mikið æði fyrir f lugvélum
og amma mín safnaði fyrir mig eld-
húsrúllum svo ég gæti búið til f lug-
vélar úr þeim. Svo þurfti að henda
fleiri fleiri plastpokum af flugvélum
gerðum úr seríóspökkum og eld-
húsrúllum,“ segir Guðmundur.
Hann segist því alltaf hafa haft
ótrúlega gaman að því að skapa,
þá oft mikið tengt kvikmyndum og
sjónvarpi.
„Þannig að þetta lá nú smá beint
við. Fyrstu búningarnir voru ein-
földustu búningarnir. Þá fór ég og
keypti f lísteppi í Ikea og saumaði
Súperman-búning og Spiderman-
búning. Þegar maður getur þetta og
á börn, þau hafa svo ótrúlega gaman
að þessu.“
Guðmundur segir strákana vera
vaxna upp úr því að fara í búninga
á öskudaginn og því hafi hann bara
þurft að gera búning á dóttur sína
Tinnu í ár.
„Það var bara „piece of cake“.
Áður þurfti maður alltaf að gera
tvenna búninga. Strákarnir mínir
hafa samt mjög gaman af þessu,
þótt það sé ekki kúl lengur að mæta
í búningi í skólann,“ segir Guð-
mundur og hlær.
Hann minnist sérstaklega þegar
hann gerði búninga á synina úr
Hobbitanum, en þeir fóru sem
Gand álfur og dvergurinn Dvalinn
„Svo mættu þeir á frumsýningu
myndarinnar í búningunum, sátu
þarna fremst í fullum skrúða.“
Tættust upp í leikgleði
Annar sonur Guðmundar hafði
mikinn áhuga á þórseðlum þegar
hann var yngri. Því kom ekki annað
til greina en að gera þórseðlubúning
það árið.
„Þetta var svolítið veigamikill og
þungur búningur með langan hala
og háls. Oft þegar krakkar mæta í
leikskólann í búningum fara þau úr
búningunum þegar líður á daginn,
sérstaklega ef þeir eru fyrirferðar-
miklir. En þegar við konan mín
komum að sækja hann þá hallaði
hann upp við vegg, enn í búningn-
um, alveg búinn á því.“
Sem barn hafði Guðmundur
gaman af því að smíða ýmis vopn
til að leika sér með.
„Strákarnir mínir höfðu ótrúlega
gaman af öllum þessum aukahlut-
um. Smíðaði axir og sverð. Síðan
gátu þeir leikið sér með þetta. Fólk
spyr mig oft hvort ég eigi þetta ekki
ennþá en ég leyfði þeim bara að
djöflast með þetta, þeir voru bara
að lemja hvorn annan með þessu,
þetta tættist upp í leikgleði,“ segir
hann hlæjandi.
Pældi mikið í smáatriðum
Undirbúningurinn fyrir hvern bún-
Heillandi að gera
eitthvað úr engu
sem lifnar síðan við
Það eru eflaust fáir sem leggja jafn mikinn metnað í búningagerð
fyrir öskudaginn og Guðmundur Þór. Í ár var dóttir hans Tinna
engin önnur en Wonder Woman. Hann starfaði við brúðugerð hjá
Latabæ og byrjaði að gera búninga á synina fyrir fimmtán árum.
Tinna vildi
endilega
vera Wonder
Woman
eftir að hafa
farið með
foreldrum
sínum á
nýjustu
myndina um
ofurhetjuna.
MYNDIR/
GUÐMUNDUR
ÞÓR KÁRASON
Bjartur
var Gandálfur
eitt árið og Orri
var dvergurinn
Dvalinn.
Guðmundur Þór og dóttir hans Tinna hjálpast að við að klára Wonder Woman búninginn
fyrir öskudaginn í ár. Guðmundur segir að Tinna hafi hugað vel að smáatriðunum.
Guðmundur byrjaði að gera brúður þegar hann var fjórtán ára gamall og
vann við brúðugerð hjá Latabæ, sú reynsla nýttist vel í búningagerðina.
ing tekur mislangan tíma.
„Stundum hef ég verið alveg
á síðustu stundu, kannski verið
spreyjandi bara nóttinni áður. Enn
þá spreylykt af búningnum daginn
eftir. Ég byrjaði að gera Wonder
Woman búninginn á föstudaginn.
Konan mín Sigrún var að mála með
mér, hún er mjög handlagin, ég vil
ekki gleyma að minnast á það.“
Guðmundur segist eiga auðvelt
með að móta hluti í þrívídd.
„Ég byrjaði að smíða brúður um
fjórtán ára aldur. Ég er alinn upp í
leikhúsi. Þetta tengist samt alltaf
kvikmyndagerð meira hjá mér, ég
hef aldrei verið í einhverju brúðu-
leikhúsi beint. Ég hef mest verið að
búa til fyrir sjónvarp. Það er eitt-
hvað við galdurinn að búa eitthvað
til sem lifnar við í sjónvarpi sem er
heillandi. Þú tekur eitthvert efni,
eins og til dæmis svamp, og þetta
verður allt í einu járn eða brynja og
eins og þetta sé þúsund ára gamalt.
Ég elska þennan galdur að gera eitt-
hvað úr engu sem lifnar síðan við.“
Líkt og áður kom fram var dóttir
Guðmundar, Tinna, Wonder
Woman í ár.
„Í hitteðfyrra var hún til
dæmis hestaprinsessa, hún er
svo mikil hestamanneskja af
því við eigum tvo hesta. Við
mamma hennar fórum með
hana á Wonder Woman í bíó.
Hún var svo rosalega hrifin af
karakternum þannig hana lang-
aði mikið að vera Wonder Woman
á öskudaginn. Hún hefur verið í
Hjallastefnunni og þar er lögð svo
mikil áhersla á sterkar stelpur,
kraftmiklar og duglegar. Þannig
að hún vildi fara alla leið, vera með
sverðið og skjöldinn. Svo pældi hún
mikið í smáatriðunum.“
Mun f leiri myndir og skemmti-
leg myndbönd af búningunum í
gegnum árin er hægt að finna á
frettabladid.is
steingerdur@frettabladid.is
Guðmundur
var snemma mjög
handlaginn. Hann
þakkar ömmu sinni
sérstaklega fyrir að hafa
verið dugleg að styðja
hann í áhugamálinu
og skaffa honum
efnivið
FYRSTU BÚNINGARN-
IR VORU EINFÖLD-
USTU BÚNINGARNIR. ÞÁ FÓR ÉG
OG KEYPTI FLÍSTEPPI Í IKEA OG
SAUMAÐI SÚPERMAN-BÚNING
OG SPIDERMAN-BÚNING.
1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ