Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1975, Blaðsíða 127
125
úrdrAttur ur Arsskýrslu
HEILBRIGÐISEFTIRLITS RÍKISINS
Á árlnu komu út eftirfarandi lög og reglugerðir, sem varða störf
Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
a. Lög nr. 10 frá 26. apríl 1975 um Járnblendiverksmiðju í Hvalfirði.
b. Reglugerð um Náttúruverndarþing nr. 65 frá 2. apríl 1975.
c. Reglugerð um húsnæði vinnustaða nr. 25 frá 14. maí 1975.
d. Reglugerð nr. 6 frá 9. janúar 1975 um breytingu á reglugerð um
flokkun eiturefna og hættulegra efna nr. 93 frá 1. mars 1974.
e. Auglýsing nr. 204 frá 6. maí 1975 um merkingu unninnar kjötvöru,
sem seld er í smásölu.
f. Reglugerð nr. 540 frá 16. desember 1975 um breytingu á reglugerð
nr. 269 frá 1973 um mjólk og mjólkurvörur.
g. Starfsreglur nr. 359 frá 1. nóvember 1975 fyrir Heilbrigðiseftirlit
ríkisins, forstöðumann (yfirlækni) þess og heilbrigðisráðunauta.
Þá voru birtar 31 reglugerð um neysluvatnsmál, 15 reglugerðir um hunda-
hald, 11 reglugerðir og auglýsingar um skipulag og byggingasamþykktir,
ný auglýsing um friðlýsingu, 6 auglýsingar um skolp og í þremur tilvik-
um voru lögreglusamþykktir gefnar út ýmist í heilu lagi eða með breyt-
ingum.
Almennt heilbrigðiseftirlit
Yfirumsjón með heilbrigðiseftirlitinu í landinu fór fram með hefðbundn-
um hætti í samræmi við lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit,
heilbrigðisreglugerð svo og önnur lög og reglur, sem heilbrigðisnefndum
er falin framkvæmd á. Lögð var áhersla á ráðningu heilbrigðisfulltrúa
um landið og að heilbrigðisnefndir sameinuðust um slíkan starfsmann.
Þá var í samvinnu við heilbrigðisnefndir og sveitarfélög unnið að lausn
neysluvatns-, frárennslis- og sorpmála og lögð áhersla á byggingu rot-
þróa til hreinsunar á frárennsli og byggingu brennsluofna til brennslu
á sorpi.
Haldið var áfram að hanna hentuga aðferð til að mæla hávaða við flug-
völlinn í Reykjavík, og var í því sambandl haft samband við Laboratoriet
for Akustik,Danmarks Tekniske Höjskole i Lyngby. Aflað var "hávaðafót-
spora” fyrir Fokker Friendship og Boeing 727, en víða erlendis er gerð
flugbrauta við það miðuð, að hávaði í hávaðafótspori flugvéla fari ekki
yfir 95 desibil yfir byggðu bóli. Ljóst er,að veruleg óþægindi vegna
hávaðamengunar eru í næsta nágrenni Reykjavíkurflugvallar, í íbúðar-
hverfum og sérstaklega við stærsta sjúkrahús landsins, Landspítalann,
en Borgarspítalinn fer ekki varhluta af þessari hávaðamengun heldur,
frekar en nágrannabyggðir eins og Kópavogur. Er ætlunin að setja upp
á næsta ári sjálfritandi hávaðamælitæki í nágrenni Reykjavíkurflugvall-
ar og á þann hátt reynt að fylgjast með hávaðamenguninni.