Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1975, Blaðsíða 128
126
en það var þó mest að kenna einu fyrirtæki, sem framleiddi gjörspillta
vöru,og var rekstur þess stöðvaður. Þeytikrem,sem slæmt var á fyrra
ári,hefur versnað verulega í gæðaflokkuninni og fallið úr 22,2% í 8,7%
og sker þetta sig úr skýrslunni,og eru líkur á,að þeytikremið verði
bannað. Hvað varðar sýnatökur er hlutur Reykjavíkur að venju lang-
stærstur, eða 66%, og mættu heilbrigðisnefndir úti á landi auka sinn
hlut.
Mjólkureftirlit var framkvaant með hefðbundnum hætti og farið í eftir-
litsferðir um landið og heimsótt öll mjólkurbúin 18. Mjólkurframleiðsl-
an fór minnkandi sl. vetur og lítur út fyrir að dragast enn meira saman
vegna óþurrka víðast hvar um landið. Er um kennt gömlum og ótryggum
heyskaparaðferðum,sem bændur nota enn og eru því ekki viðbúnir að mæta
langvarandi óþurrkum. Af mjólkurfélögum landsins eru 4 komin með nær
algera tankvæðingu, Selfoss, Reykjavík, Borgarnes og Hornafjörður, og
Akureyri það 5. að hálfu leyti. Þau stærstu af hinum eru að undirbúa
tankvæðingu, sem þó gengur hægt vegna mikils fjárfestingakostnaðar, og
sama er að segja um nýbyggingar og breytingar á mjólkurstöðvum um landið.
Tafla II sýnir yfirlit um innvegna mjólk og flokkun hennar eftir lita-
prófi Bartels og Orla Jensen, svokallað reduktosapróf eða eftir beinni
gerlatalningu, en bein gerlatalning,sem er öruggari prófun,hefur verið
tekin upp við stærstu mjólkurbúin,og er svo komið,að helmingur af inn-
veginni mjólk í landinu er flokkaður eftir beinni gerlatalningu. Fram
að þessum tíma hefur ávallt verið um aukningu mjólkurframleiðslunnar
að ræða, en nú er svo komið, að framleiðslan hefur minnkað um 4,3 milljón
kíló, eða 3,72% miðað við fyrra ár, og er hinu mlkla óþurrkasumri 1975
kennt um þessa minnkun. Aðeins 4 af 18 mjólkurbúum hafa haldið áfram
að auka framleiðslu sína . Mest hefur mjólkurframleiðslan orðið 1974,
en þá reyndist hún vera tæp 116 milljón kg. 1 ár er mjólk flokkuð x 3
flokka,en ekki 4 eins og áður,og er tankvæðingin farin að hafa sín
áhrif til bóta við mjólkurflokkun, eins og sjá má á heildarflokkun yfir
árið og samanburði fyrir einstakar mjólkurstöðvar fyrir árið 1970 - 1975
í töflu III og töflu IV.
Sumarið 1975 fóru fram gerlarannsóknir á neyslumjólk £ sambandi við und-
anþágu um lengdan sölufrest mjólkur og mjólkurvara, sem veitt hefur
verið vegna lokunar búða á laugardögum. Voru sýnin tekin í júní til
ágústmánaðar á Akranesi og í Reykjavík, alls 97 sýni. Samanlagt reynd-
ust 22,68% sýnanna vera slæm eða gölluð,sem er óverulega hærra en niður-
stöður gerlarannsókna á mjólk fyrir árið 1975, en þá reyndust 21,27%
sýna vera slæm eða gölluð. 1 nær öllum tilvikum var mjólkin deand slæm
eða óhæf, ef hún var fjögurra daga gömul eða eldri, og í öllum tilvikum
var hún dæmd slæm eða óhæf, ef hún var 5 daga gömul eða eldri. ályktað
er, að eigi að vera verjandi að leyfa undanþágu frá ákvæðum mjólkurreglu-
gerðar um lengdan sölufrest, verði að herða eftirlit með hreinlæti og
heimta umbætur á kælibúnaði og annarri meðferð mjólkur og mjólkurvara
hjá framleiðendum, mjólkurstöðvum og sölubúðum.
1 töflu V má sjá yfirlit um rannsóknir fúkkalyfja í mjólk fyrir árin
1967 - 1975, en þetta er fyrsta árið,sem öll helstu mjólkurframleiðslu-
svæði skila skýrslum um fúkkalyfjarannsókn. Eins og taflan ber með
sér, eru enn nokkur brögð að því, að fúkkalyf finnist í sölumjólk,þó að
bannað sé að selja slíka mjólk samkv. mjólkurreglugerð. ÞÓ fer til-
fellum fækkandi.