Bæjarins besta - 14.01.1998, Side 1
Bæjarins besta
Miðvikudagur 14. janúar 1998 2. tbl. 15. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Sálfræðingurinn
á bekknum hjá BB...
Ísafjörður
Gæsluvellinum
við Túngötu lokað
Stjórnendur Ísafjarðarbæjar
hafa ákveðið að loka gæslu-
vellinum við Túngötu um
næstu mánaðamót vegna lítill-
ar aðsóknar. Til að byrja með
verður vellinum lokað til vors
en þá verður tekin ákvörðun
um frekari framhald á þessari
þjónustu.
,,Það er rétt að við höfum
tekið ákvörðun um að loka
gæsluvellinum til vors vegna
lítillar aðsóknar. Þarna hafa
tvær konur starfað og marga
daga í röð hefur engin aðsókn
verið að vellinum. Þær munu
fara til starfa við nýjan leik-
skóla og síðan munum við
taka ákvörðun um framhaldið
í vor, hvort völlurinn verður
opnaður að nýju eða hvort
hann verður gerður að deild
innan Eyrarskjóls," sagði Jón
Tynes, félagsmálastjóri Ísa-
fjarðarbæjar í samali við
blaðið.
Sjónvarpstöðin Sýn
Útsendingar á Ísa-
firði innan tíðar?
Mikillar óánægju hefur gætt
á Ísafirði með þann seinagang
hjá forsvarsmönnum Íslenska
útvarpsfélagsins, um að svara
því hvort félagið hyggist hefja
útsendingar á sjónvarpsstöð-
inni Sýn á svæðinu. Hefur
óánægjan magnast eftir að
Íslenska útvarpsfélagið gerði
samning um einkarétt á sýn-
ingum frá enska boltanum
fram yfir aldamót, en eins og
kunnugt er hafa flestir leikir
þar verið sýndir beint á Sýn.
Blaðið hefur heimildir fyrir
því að nokkrir harðir áhuga-
menn um ensku knattspyrn-
una og aðrar íþróttagreinar
sem sýndar eru beint á Sýn
séu farnir af stað með undir-
skriftarlista til að mótamæla
seinaganginum og að þeir
hyggist segja upp Stöð 2, verði
ekki af útsendingum Sýnar
innan skamms tíma. Þá má
geta þess að á annað hundrað
þreyttir íþróttaáhugamenn
hafa nú þegar fengið sér
gervihnattadisk til að ná
útsendingum þeirra erlendu
sjónvarpsstöðva sem sýna
íþróttaviðburði beint.
Hannes Jóhannsson, tækni-
stjóri Íslenska útvarpsfélags-
ins, sagði í samtali við blaðið
að félagið stæði enn í samn-
ingum við forsvarsmenn
Landssíma Íslands hf., um
gjaldtöku á flutningi sjón-
varpsefnis með ljósleiðara, en
forsvarsmenn þess fyrirtækis-
ins munu hafa verið ófáanlegir
til að lækka gjaldið til þessa.
,,Ég held að Ísafjörður sé
það stór staður að við ráðum
við hann. Við getum ekki
endalaust beðið eftir svörum
frá stjórnendum Landssíma
Íslands. Ef þeir bjóða okkur
ekkert betur, þá verðum við
að taka afstöðu af eða á, mjög
fljótlega og þegar ég segi
fljótlega, þá meina ég í þess-
um mánuði,” sagði Hannes
Jóhannsson, tæknistjóri Ís-
lenska útvarpsfélagsins í
samtali við blaðið.
Hann ítrekaði að fátt annað
stæði í veginum fyrir útsend-
ingum á Ísafirði en kostnaður-
inn við flutning á efni stöðvar-
innar sem og á aðra staði.