Bæjarins besta - 14.01.1998, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 9
Basil
Hafnarstræti 14 - Ísafirði
Sími 456 5210
Útsala!
Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi
Leigð Árna Baldurssyni
Sjö tilboð bárust í leigu
Laugardalsár í Ísafjarðar-
djúpi ásamt veiðihúsi en
áin var auglýst til leigu í
byrjun desember sl. Að
sögn Sigurjóns Samúels-
sonar, formanns Veiðifé-
lags Laugardalsár, þótti til-
boð Árna Baldurssonar,
laxveiðimanns með meiru
hagstæðast og hefur verið
ákveðið að ganga til samn-
inga við hann til eins árs.
Árni Baldursson var með
Langadalsá á leigu síðastliðið
sumar og mun svo einnig
verða í ár. Auk Árna buðu í
ána þeir Magnús Jónasson og
Ólafur Jóhannsson, Stanga-
veiðifélag Ísfirðinga, Sigurður
Þóroddsson, lögfræðingur,
fyrir hönd nokkurra Patreks-
firðinga, Gísli Ásgeirsson sem
var með tvö tilboð og Eiríkur
St. Eiríksson sem bauð í ána
fyrir hönd Stangaveiðifélags-
ins Stekks í Mosfellsbæ.
Frá árinu 1983 hafa bændur
í Laugardal séð sjálfir um út-
leigu árinnar en fram að þeim
tíma var hún leigð ýmsum að-
ilum. ,,Tilboð Árna var svipað
öðru tilboði hvað varðar
fjárhæð, en við töldum hag-
stæðast að leigja Árna ána,”
sagði Sigurjón. Frá Laugardalsá. Veiðimaður við veiðar í Brúarfljóti. Áin hefur nú verið leigð Árna
Baldurssyni, laxveiðimanni með meiru.
Rannsóknarnefnd flugslysa um flugóhapp Metró flugvélar Flugfélags Íslands
Flugvélin hrapaði um nærri
700 metra á 13 sekúndum
Metró-flugvél Flugfélags Íslands.
Í framhaldi af rannókn
Rannsóknarnefndar flugslysa
á flugóhappi Metró flugvélar
Flugfélags Íslands, sem lenti
í alvarlegri ókyrrð yfir Ísa-
fjarðardjúpi 16. ágúst sl.,
leggur nefndin til að Flug-
málastjórn skyldi flugrekend-
ur til að nota flugherma við
þjálfun flugmanna þessara
véla í slæmum veðurskilyrð-
um. Þá leggur nefndin til að
Veðurstofa Íslands athugi með
hvaða hætti unnt sé að endur-
bæta veðurskeyti frá veðurat-
hugunarstöðvum, s.s. frá
Æðey, þannig að þar megi geta
um veðurfyrirbrigði sem vald-
ið geta vindhvörfum ef þeirra
verður vart.
Í niðurstöðum rannsóknar-
innar sem kynnt var á föstu-
dag, kemur fram að Metró
flugvélin lenti í gríðarmiklu
upp- og niðurstreymi, meira
en skilgreint er sem mjög mik-
il ókyrrð eða allt að 35 til 57
hnútar þar sem sveiflan milli
upp- og niðurstreymis varð
að meðaltali á 7,5 sekúnda
fresti. Vélin fór þrjár dýfur og
í þeirri stærstu missti hún
2.244 feta flughæð, um 680
metra á 13 sekúndum. Þar af
voru 1.866 fet á aðeins sjö
sekúndum en áætlað er að um
500 fet af þessari lækkun hafi
stafað af mjög miklu niður-
streymi með meðalvindhraða
upp á rúma 42 hnúta. Vind-
hviðurnar sem flugvélin varð
fyrir skiptu um stefnu eða átt
nokkrum sinnum og eins
sveiflaðist hröðunarálag og
fór mest í mínus 1,25G í plús
4,23G sem er staðlað gildi
fyrir hröðun vegna aðdráttar-
afls jarðar.
Í skýrslu Veðurstofunnar
eru helstu niðurstöður að mjög
hlýtt hafi verið við Ísafjarðar-
djúp fram eftir þessum degi
en kaldara loft hafi streymt að
þegar skil nálguðust úr austri.
Fjöll norðan við Djúpið hafi
lokað fyrir aðstreymið meðan
vindur var hægur en kaldara
loftið gæti að nokkru leyti hafa
streymt yfir loftið sem fyrir
var og þannig valdið verulega
staðbundinni ókyrrð. Um
klukkan 15 var orðið nógu
hvasst til að loft fór að streyma
yfir fjöllin og fjallabylgjur
tóku að myndast. Næstu
klukkustundir hafi skilyrði
verði þannig að bylgjurnar
hafi brotnað rétt neðan við þá
hæð þar sem draga fór úr
vindi. Vitað sé að brotnandi
bylgjur geti valdið mikilli
ókyrrð. Þá segir í skýrslunni
að líklegt sé að uppstreymis-
og ókyrrðarsvæði sem mynd-
ast hafi af framangreindum
orsökum hafi fallið saman og
kvikan því orðið sterkari en
hvor ástæðan fyrir sig gaf
tilefni til.
Í skýrslu Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa kemur fram að
öll gögn og öll skírteini hafi
verið í fullu gildi hvað varð
áhöfn og flugvél. Niðurstöður
rannsóknarinnar eru byggðar
á gögnum úr flugrita vélar-
innar, ratsjárupplýsingum frá
Bolafjalli og frásögn flug-
manna auk gagna frá Veður-
stofu Íslands.
i Í i i
í i
Útsala!
Útsalan hefst fimmtudaginn 15. janúar
30-70%
afsláttur
Nýtt
korta-
tímabil