Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.01.1998, Síða 2

Bæjarins besta - 14.01.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Magnús Hávarðarson Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Leiðari Vestfirðir 12,5 milljóna ríkisstyrkir Á fjárlögum ríkisins sem afgreidd voru fyrir hátíð ljóss og friðar eru ráðgerð 3ja milljóna króna fjárveiting til skógræktarverkefnisins Skjólskógar á Vestfjörðum. Er þetta í fyrsta skipti sem þetta þarfa verkefni fær fjárveitingu frá ríkisvaldinu. Þá fékk flugminjasafnið að Hnjóti á Örlygshöfn 9,5 milljóna króna fjárveitingu til áframhald- andi uppbyggingu safnsins. Ísafjarðarbær Íþróttamaður ársins Stefnt er að því að kjör Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar fyrir árið 1997 fari fram í næstu viku, að sögn Björns Helgasonar, íþrótta- og æskulýðsfulltúra Ísafjarðarbæjar. Aðildarfélög Íþróttabandalags Ísafirðinga skiluðu tilnefn- ingum sínum á mánudag og munu aðstandendur kjörsins funda um nöfnin um næstu helgi. Íþróttamaður Ísafjarðar- bæjar fyrir árið 1996 var Arnór Þ. Gunnarsson. Ísafjarðarbær Mengunarmælingar í Funa Í byrjun desember voru lagðar fram niðurstöður meng- unarmælinga sem gerðar voru í útblæstri sorpbrennslunnar Funa 26. október. Mælingarnar voru framkvæmdar af Iðntæknistofnun og voru sýni tekin úr útblæstri eftir vot- hreinsibúnað. Niðurstöður voru: Ryk 110 mb/ m3, Kolmón- oxíð (CO) minna 1,0 mg/m3, Vetnisklóríð (HCI) 20 mg / m3 og lífrænt kolefni 1,7 mg/m3. Allt undir mörkum. Fjöldi togara leitar vars í fyrstu brælu vetrarins Nær allir rækjubátar í Bolungarvík hafa verið frá veiðum frá áramótum Fjöldi togara leitaði vars í Ísafjarðarhöfn á mánudag vegna brælu á Vestfjarða- miðum. 10-12 vindstig voru á miðunum á mánudag en veður tók heldur að lægja í gær og héldu þá flestir togaranna til veiða á ný. Auk þeirra togara sem komu til hafnar á Ísafirði biðu fjölmargir aðrir af sér veðrið undir Grænuhlíð. Páll Pálsson landaði 80 tonnum af blönduðum afla á mánudag, Stefnir landaði 40 tonnum af blönduðum afla og Framnes landaði 40 tonnum af rækju. Þá komu Júlíus Geirmundsson, Baldvin Þor- steinsson, Akureyrin, Snorri Sturluson og Sunna inn vegna veðurs. Þrátt fyrir brælu héldu tveir rækjubátar frá Ísafirði til veiða á mánudag, Bára ÍS sem kom með 1,5 tonn og Valur sem kom með 1,3 tonn. Slæm skilyrði hafa verið til veiða í Ísafjarðardjúpi frá áramótum og má sem dæmi nefna að aðeins tveir af tíu rækjubátum Bolvíkinga hafa komist til veiða undanfarna 14 daga, Páll Helgi ÍS sem hefur farið í nokkra róðra og Hafrún ÍS sem hefur komist í einn róður. Frá Bolungarvíkurhöfn. Aðeins tveir rækjubátar hafa komist til veiða frá Bolungarvík frá áramótum vegna ótíðar. Sex heilbrigðisstofnanir sameinaðar á Vestfjörðum Heilbrigðisstofnunin, Ísafjarðarbæ Um síðustu áramót voru sex heilbrigðisstofnanir á norð- anverðum Vestfjörðum sam- einaðar undir einn hatt. Um er að ræða Sjúkraskýlið á Þingeyri, Heilsugæslustöðina á Þingeyri, Öldrunarstofnun Önfirðinga á Flateyri, Heilsu- gæslustöðina á Flateyri, Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa- firði og Heilsugæslustöðina á Ísafirði. Hinni nýju stofnun hefur verið gefið nafnið Heil- brigðisstofnunin, Ísafjarða- rbæ. Í fréttatilkynningu frá stofn- uninni segir að ekki sé gert ráð fyrir umtalsverðri breyt- ingu á daglegri strafsemi þeirra þjónustugreina sem hér eiga í hlut, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Þess í stað er fyrst og fremst stefnt að stjórnunarlegri hagræðingu og aukinni skilvirkni. Sameiginleg stjórnsýsla framangreindra sex sjálfstæðu eininga hefur verið flutt á skrifstofu Heilbrigðisstofn- unarinnar að Torfnesi á Ísa- firði. Sameiginleg stjórnsýsla sex heilbrigðisstofnana á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið flutt að skrifstofu Heilbrigðis- stofnunarinnar, Ísafjarðarbæ að Torfnesi á Ísafirði. Ögrun við þjóðina Allt bendir til að kjara- deila sjómanna og útvegs- manna sé komin í illleysan- legan hnút. Vandséð er hvernig hann verður leystur. Reyndar er farið að ía að því að höggva verður á hnútinn með lagasetningu þótt erfitt sé að sjá fyrir að slík íhlutun leysi nokkurn vanda. Þegar deilur af þessu tagi eru uppi virðast allir hafa áhyggjur þótt af mismunandi toga séu spunnar. Áhyggjur forsætisráðherra leyndu sér ekki í áramótaávarpi hans og yfirskyggðu nýársgjöfina til þjóðarinnar; hærri laun, lægri skatta, strax á morgun. ,,Einn skuggi hvílir þó yfir kjaramálunum. Flest bendir til að deilur útgerðarmanna og sjómanna endi í illindum og verkföllum. Það gæti leitt til þess að milljarða verðmæti sigli fram hjá íslensku þjóðinni í orðsins fyllstu merkingu. Þetta er ómöguleg staða. Við hljótum öll að gera kröfur til þeirra, sem ábyrgð bera, að þeir leysi þennan hnút áður en út í fenið er komið. Þeir hafa af eðlilegum ástæðum afnot af auðlindum sjávar í kringum landið. Þeim eru ekki önnur skilyrði sett, en að þær séu nýttar vel og skynsamlega í þjóðar þágu. Það er mikil ögrun við þjóðina ef mál skipast svo, að hagsmunaaðilum í sjávarútvegi tekst ekki að standa við þau sanngjörnu skilyrði.” Áhyggjur forsætisráðherra eru skiljanlegar. Það er laukrétt að mikil verðmæti eru í húfi. Og vissulega fylgir ábyrgð verkföllum, sem alltaf eiga að vera það síðasta, sem gripið er til. En það leynist fleira í orðum ráðherrans, sem vert að að huga að og það vakna spurningar: Hver erum við þessi ,,öll”, sem gerum kröfur? Og hverjir eru ,,þeir” sem ábyrgð bera og hverjir bera ekki ábyrgð? Hverjir hnýttu hnútinn, sem er að draga okkur út í fenið? Er úr vegi að spyrja: Hver væri staðan í samninga- málum sjómanna og útvegsmanna ef forsætisráðherra og liðsmenn hans á hinu háa Alþingi hefðu ekki hnýtt þá hnúta í fiskveiðistjórnuninni, sem augsýnilega eru eitt helsta ásteytingarefni deilunnar? ,,Við öll” erum síður en svo sammála því að það séu ,,eðlilegar ástæður” fyrir því að einstaklingar og fyrir- tæki braski með auðlindir sjávar í skjóli stjórnvalda jafn ótæpilega og raun ber vitni og sem ráðherrann og meðreiðarsveinar hans leggja blessun sína yfir með því að lyfta ekki litla fingri til að uppræta ósómann. Það skyldi þó aldrei vera að það séu fleiri en ,,hagsmunaaðilar í sjávarútvegi” sem eru að ögra þjóðinni? s.h.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.