Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.01.1998, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 14.01.1998, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 3 Vestfirðir 91,8% Vestfirðinga í Þjóðkirkjunni Rúmlega 91,8% Vestfirð- inga eru í Þjóðkirkjunni samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Frétt blaðsins í síðustu viku um að 65% Vestfirðinga, 16 ára og eldri, væru í Þjóðkirkjunni var byggð á röngum upplýsing- um og var því að stærstum hluta röng. Eru kirkjunnar menn og aðrir lesendur blaðs- ins beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk frá Hagstofu Íslands um miðja síðustu viku eru 7.924 af 8,634 íbúum Vest- fjarða í Þjóðkirkjunni, eða 91,8%. Ellefu einstaklingar á Vestfjörðum eða 0,1% eru í Fríkirkjum, 246 einstaklingar eða 2,8% eru skráðir í Ka- þólsku kirkjuna og 173 ein- staklingar eða 2,0% eru í öðr- um skráðum trúfélögum. 201 einstaklingur eða 2,3% eru í óskráðum trúfélögum og 79 einstaklingar eða 0,9% eru utan trúfélaga. Þá kemur fram í frétt frá Hagstofunni að 428 erlendir einstaklingar hafi verið búsettir á Vestfjörðum 1. desember sl., en sá fjöldi svarar til 5,0% af heildar- íbúafjölda kjördæmisins. Ísafjarðarbær þarf að greiða 7,6 milljónir króna í biðlaun á tveimur árum vegna samein- ingar sveitarfélaga og í kjölfar þess að Kristján Þór Júlíusson lét af störfum sem bæjarstjóri þegar meirihluti bæjarstjórnar féll í nóvember. Þegar sameining sveitarfé- laganna sex átti sér stað áttu þrír starfandi sveitarstjórar rétt á biðlaunum og nam uppgjör við starfslokasamninga þeirra alls 4,6 milljónum króna. Jón- as Ólafsson, fyrrverandi sveit- arstjóri Þingeyrarhrepps fékk biðlaun í 6 mánuði og Halldór Karl Hermannsson, fyrrver- andi sveitarstjóri Suðureyrar- hrepps og Kristján Jóhannes- son, fyrrverandi sveitarstjóri Flateyrarhrepps fengu biðlaun í 4 mánuði. Auk þessa mun Kristján Þór Júlíusson fá biðlaun í 6 mán- uði frá 1. desember síðastlið- num. Starfslokasamningur hans mun hljóða upp á rúmar 3 milljónir króna. Á sama tímabili mun Ísafjarðarbær greiða þeim Jónasi Ólafssyni og Kristni Jóni Jónssyni laun fyrir að skipta með sér starfi bæjarstjóra fram að kosning- um. Greiðir 7,6 milljónir í biðlaun Ísafjarðarbær Aðalfundur Aðalfundur Básafells hf., Ísafirði, fyrir starfs- árið 01.01.1997 til 31.08.1997 verður haldinn fimmtudaginn 22. janúar 1998 kl. 13:30 að Hótel Ísafirði. Dagskrá samkvæmt 18. gr. samþykkta félagsins. Stjórnin. Ísafjarðarkirkja Mömmu- og pabbamorgnar eru á föstu- dögum milli kl. 10 og 12. Föstudaginn 16. janúar mun sr. Guðný Hallgrímsdóttir koma og flytja erindi um trúarþroska barna. Allir velkomnir. Samverurnar eru ætlaðar öllum börnum. Messa og altarisganga verða kl. 11:00, sunnudaginn 18. janúar. Ísafjarðarsókn. GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Óskum eftir að ráða forfallakennara við skólann fram til vors. Kennsla er einkum á miðstigi. Við leitum eftir áhugasömum kennara/ leiðbeinanda sem er röggsamur og ábyrgur í starfi. Boðið er upp á flutn- ingsstyrk og hagstæða húsaleigu. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í síma 456 3044. Skólastjóri. FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Félagsstarf aldraðra Hlíf, Torfnesi Ísafirði vantar starfsmann í hlutastarf í eldhús og sal. Upplýsingar gefur Elín Þóra Magnús- dóttir í síma 456 4076 eða á Hlíf. LEIKSKÓLINN Á FLATEYRI Starfsmaður óskast til starfa við leikskólann Grænagarð á Flateyri, eftir hádegi. Upplýsingar gefur Jenný í símum 456 7775 og 456 3327. Leikskólastjóri. ÍSAFJARÐARBÆR JANÚARTILBOÐ ́ 98 Sól & fegurð Túngötu 3 Ísafirði sími 456 5522 Nú er komið að þér! Það er frábært tilboð í gangi núna Þú færð: 5 tíma ljósakort og 10 tíma stratakort á aðeins kr. 10.000.- Auglýsingasíminn er 456 4560

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.