Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.01.1998, Side 6

Bæjarins besta - 14.01.1998, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 Júlíus Halldórsson sálfræðingur kom til Ísafjarðar í fyrrahaust og hefur frá þeim tíma verið hér í fullri stöðu og með stofu á Heilsugæslu- stöðinni á Ísafirði, fyrstur manna í sínu fagi hér vestra, þótt aðrir sál- fræðingar hafi áður verið hér bú- settir og unnið að einstökum verk- efnum, einkum í tengslum við vest- firska skóla. Á þessum tíma hefur hann verið að byggja upp og móta þetta starf hér, en Vestfirðingum mun áður að öllum jafnaði ekki hafa verið mjög tamt að ganga til sál- fræðings og er það kannski ekki enn. Bæjarins besta fékk sálfræðinginn til að leggjast á bekkinn og leysa frá skjóðunni um sjálfan sig og starfið... Sálfræði „Ég er fæddur á Siglufirði fyrir 47 árum, rétt undir lok síldarævintýrisins gamla, og man vel eftir síðasta hluta þess. Þegar síldarbátarnir komu gengu menn um götur bæjarins, guðuðu á glugga á hvaða tíma sólarhringsins sem var og hrópuðu: Síld! Þá drifu allar konurnar sig af stað niður á plan og fóru að salta. Líklega hef ég ekki verið nema átta eða níu ára gamall þegar ég var farinn að gefa tunnur á síldarplani, eins og það var kallað. Við guttarnir á Siglu- firði byrjuðum snemma að vinna í þessu. Faðir minn gerði út trillu og eitt sumarið reri ég með honum, þegar færi gafst. Tólf ára gamall byrjaði ég svo að vinna í síldar- bræðslu. Þessi vinna á æsku- árunum var öll mjög skemmti- leg. Og ég held að við höfum bara haft gott af þessu, þó að kannski séu aðrar viðmiðanir í dag.“ Vinna barna og unglinga – Þú telur þá ekki að börn og unglingar bíði verulegan skaða á sálu sinni ef þau taka þátt í störfum hinna full- orðnu... „Nei, ég held ekki. Ef slíkt er innan skynsamlegra marka, þá er það bæði hollt og gott. Reyndar mæli ég ekki með að mikið sé verið að vinna á þeim tíma þegar skólinn starfar. Það er stundum of mikið vinnu- álag á unglingum sem vinna með skólanum. En það er kannski bara tímanna tákn, að mér finnst að unglingarnir nú þurfi að hafa miklu meiri peninga handa á milli en áður var.“ – Síldarævintýrinu á Siglu- firði lauk síðan fyrr en varði... „Já. Innan við fermingu fluttist ég með fjölskyldu minni til Hafnarfjarðar. Þá var komið atvinnuleysi heima og ekkert við að vera. Síldin hvarf og fiskurinn hvarf og þar með datt allt niður á Siglufirði. Á árunum eftir 1960 voru miklir fólksf lutningar þaðan og var ég að dóla veturinn 1986- 87. En við þetta fékk ég það mikinn áhuga á sálfræði að ég ákvað að skipta alveg yfir í hana og veturinn eftir fór ég í fullt nám.“ Lífið er ekki í bókunum „Ég lauk síðan BA-prófi í sálfræði árið 1990 og hafði reyndar ekki hugsað mér að gera neitt frekar í því. En það eru alltaf tilviljanirnar í lífinu sem ákveða að einhverju leyti hvað maður gerir og hvernig lífshlaupið verður, þó að maður hafi vissulega áhrif á það sjálfur líka. Ég er ekki að segja að örlögin stjórni manni alveg! En eftir að ég lauk BA- prófinu bauðst mér staða forstöðumanns í sambýli. Áður hafði ég unnið ein sjö ár á meðferðarheimili fyrir ein- hverfa. Það var mér mjög góður skóli og góður grund- völlur í sálfræðináminu. Enda er lífið ekki í bókum, heldur í raunveruleikanum. Best er að geta fléttað saman lífsreynsl- una og bóknámið. Á þessu sambýli starfaði ég síðan frá 1990 í fjögur ár. Þá var kominn annar tímapunktur í lífinu og dálítið los í hjónabandinu, þannig að við ákváðum að breyta til, flytjast til útlanda um einhvern tíma og kynnast lífinu þar.“ Til Árósa... „Við fluttumst til Danmerk- ur og ég fór í framhaldsnám í sálfræði við háskólann í Árósum. Þar lauk ég embætt- isprófi í fyrrahaust. Síðasti áfanginn var nokkuð harð- sóttur. Um það leyti sem ég var að byrja á lokaritgerðinni vorið 1996 vorum við að velta fyrir okkur framtíðinni að loknu náminu. Við höfðum bæði áhuga á því að fara eitthvað út á land, og því ekki þá alveg eins til Vestfjarða? Ég vissi raunar ekki alveg hvernig ég ætti að snúa mér í slíku, þannig að ég skrifaði bréf til bæjaryfirvalda á Ísa- firði og spurði einfaldlega hvort ekki vantaði sálfræðing hér á svæðinu. Ég bjóst svo sem ekki við að neitt sérstakt kæmi út úr því. En stuttu seinna fékk ég svar og þá var mér boðin staða hjá Fjórð- ungssjúkrahúsinu og Heilsu- gæslustöðinni. Ég tók því boði og síðan var farið að ræða hvenær ég gæti byrjað. Ég sá þá að ég yrði að taka mér tak, setja mér ströng tímamörk og ljúka lokaritgerðinni á met- tíma.“ ...og Ísafjarðar „Það varð að samkomulagi, að ég kæmi hér til starfa 9. september 1996. Þá hafði ég fimm mánuði til stefnu. Ég ákvað þá að flytjast heim til Íslands og vinna að ritgerðinni þar, enda var ég búinn með alla skylduáfanga í náminu og var því ekki lengur bundinn við Árósa. Ég kom mér fyrir í kjallaraherbergi í Reykjavík og sat þar næstu mánuði og skrifaði, ásamt því sem ég var í verklegri þjálfun á geðdeild Landspítalans. Og þetta stóðst allt á endum. Ég fór út í lok ágúst til þess að útskrifast. Sú athöfn fór fram á miðvikudegi í Árósum. Á fimmtudegi ók ég þaðan og til Kaupmannahafnar og náði á Kastrupflugvöll rétt í tæka tíð til að skila af mér bílnum og koma mér í flugvélina til Íslands. Á föstudagsmorgni lagði ég af stað til Ísafjarðar og við komuna hingað beið mín íbúð með öllu mínu hafurtaski í kössum, sem starfsmenn spítalans höfðu verið svo elskulegir að koma þangað. Helgin fór í það að taka upp úr kössunum og koma sér fyrir. Á mánudegi mætti ég svo í vinnuna.“ – Þú vinnur víðar en á Heilsugæslunni á Ísafirði... „Þar er að vísu minn aðal- vinnustaður, núna reyndar á hinni nýju sameinuðu stofnun á norðanverðum Vestfjörðum sem heitir Heilbrigðisstofn- unin Ísafjarðarbæ. Þar er ég í fullu starfi, en síðan hef ég verið lánaður í ýmis verkefni, ef þannig má að orði komast. Undanfarið hef ég unnið í forföllum á Skólaskrifstofu Vestfjarða. Það hefur verið mjög spennandi og skemmti- legt starf. Líka hef ég verið að kenna dálítið í Framhalds- skólanum. Svo tek ég bara að mér þau verk sem á mitt borð koma með einhverjum hætti.“ Starf í mótun „Vissulega er þetta starf mitt hér ennþá í mótun og ekki á neinum hefðum að byggja hér á Vestfjörðum. Það er nýmæli að hér sé sálfræð- ingur í fullu starfi við heilsu- gæsluna og sjúkrahúsið. Þeir sálfræðingar sem hér hafa ver- ið og hingað hafa komið hafa aðallega unnið í tengslum við skólana. Það tekur tíma að byggja þessa starfsemi upp og sanna sig. Til dæmis er hreint ekki sama hvort fólk er að fara til læknis eða til sálfræðings. Það er ekkert mál að fara til læknis og enginn fyrirverður sig fyrir það. Aftur á móti gætir þess kannski dálítið varðandi heimsóknir til sálfræðings.“ Vestfirðingar með hauspoka? – Koma menn kannski til þín með hauspoka...? „Ég segi það nú ekki, en mig grunar að fólki þyki þetta erfiðara en að fara til læknis. Í rauninni á það alls ekki að vera þannig. Hér virðast margir misskilja þetta svolítið. Þó að einhver fari í viðtal til sálfræðings, þá fylgir því engin yfirlýsing um að sá hinn suður.“ Ísafjörður og Siglufjörður – Það er sitthvað líkt með staðháttum á Siglufirði og Ísa- firði og naumast viðbrigði fyr- ir þig að koma hingað í faðm fjalla blárra... „Já, ég er alinn upp í fjalla- hring og hér minnir margt á Siglufjörð. Kubbinn hér við Skutulsfjörð hefur svipaða afstöðu og Hólshyrnan í Siglufirði. Skálarnar og hvilft- irnar í fjöllunum, skörðin og dalirnir minna á umhverfið heima. Þegar ég kom hingað snemma í september fyrir rúmu ári voru hér stillur hvern einasta dag. Ekki blakti hár á höfði og fjöllin spegluðust í sjávarfletinum. Þetta minnti mig allt mjög á Siglufjörð í gamla daga og mér fannst ég með nokkrum hætti vera kominn aftur til upprunans.“ Úr vaktavinnu í sálfræði – Af hverju fórstu í sál- fræði? „Ég hygg að það sé nú bara tilviljun, eins og svo margt í lífinu. Ég fór ekki í sálfræðina fyrr en ég var orðinn 36 ára gamall. Ég lauk reyndar stúd- entsprófi á venjulegum tíma en fór ekki í neitt framhalds- nám að svo stöddu. Ástæður þess að ég tók upp þráðinn og fór í háskóla má að nokkru leyti rekja til þess að ég stundaði vaktavinnu og var mikið á næturvöktum. Við slíkar aðstæður kemst að jafnaði nokkur óregla á dag- legt lífsmynstur. Ég svaf ekki mikið á daginn þó að ég væri að vinna á nóttunni, svaf kann- ski fram undir hádegi og var síðan á einhverju róli eftir það. Konan mín varpaði því fram, hvort það væri ekki sniðugra fyrir mig að fara í einhvern áfanga uppi í háskóla í staðinn fyrir að sitja heima iðjulaus og drekka kaffi allan daginn. Ég gerði það og tók fyrst áfanga í uppeldisfræði, sem var reyndar sameiginlegur kúrs með sálfræðinni. Í þessu

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.