Bæjarins besta - 29.07.1998, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 11
Styðjum
Auðun
Undanfarin ár hefur
Golfklúbbur Ísafjarðar átt
marga unga og efnilega
golfleikara, sem gefið
hafa vonir um að Ísfirð-
ingar myndu eignast golf-
menn í fremstu röð á
landsvísu. Af ýmsum
ástæðum hefur þetta ekki
tekist. Að komast í frem-
stu röð á landinu krefst
gríðarlegra æfinga, sjálfs-
afneitunar og ekki síst
fjármuna. Hingað til hafa
golfmenn okkar ekki haft
aðstæður, tíma eða fjár-
muni til að ná svo langt.
Í dag eigum við ungan
golfleikara, Auðun Ein-
arsson, sem er kominn í
röð þeirra bestu á land-
inu. Hann er nú með 3,3 í
forgjöf og keppir í stiga-
mótum landsforgjafar-
kylfinga og hefur staðið
sig mjög vel.
Á glæsilegu 20 ára
afmælismótu Golfklúbbs
Ísafjarðar, sem jafnframt
var minningarmót um
Einar Val Kristjánsson,
setti Auðunn glæsilegt
vallarmet á 62 höggum,
sem er átta höggum undir
pari vallarins og bæting
frá eldra meti um átta
högg. Leikur Auðuns
þessa tvo hringi verður
að teljast frammistaða á
heimsmælikvarða.
Auðunn hefur bæði
vilja og metnað til að ná
upp á toppinn, en til að
það verði mögulegt þarf
hann að fá góðan stuðn-
ing að heiman, bæði með
því að við Ísfirðingar
fylgjumst vel með árang-
ri hans og einnig þurfum
við að styðja hann fjár-
hagslega, því það er úti-
lokað fyrir ungan og
eignalítinn mann að fjár-
magna keppnisferðir út
um allt land.
Golfklúbbur Ísafjarðar
hefur stofnað afreks-
mannasjóð, sem hefur nú
það hlutverk að styðja
Auðun fjárhagslega til að
stunda íþrótt sína og gefa
honum með því
möguleika til að ná ennþá
lengra í golfíþróttinni.
Áætlað er að hægt verði
að greiða útlagðan kostn-
að að verulegu leyti á
keppnisferðum sumarsins
og jafnvel safna til að
greiða einhvern hluta
æfingarferðar í haust eða
vetur. Í haust verður
haldinn fundur með
Auðuni og öllum styrkt-
araðilum þar sem Auð-
unn gerir grein fyrir ár-
angri sínum í sumar og
framtíðaráformum.
Golfklúbbur Ísafjarðar
er með reikning númer
600481 í Íslandsbanka í
þessu skyni. Þeir sem vilja
styrkja Auðun geta lagt
framlag sitt inn á þennan
reikning eða haft sam-
band við Tryggva Guð-
mundsson, formann G.Í.
eða Sigurjón Guðmunds-
son, gjaldkera, sem taka
einnig við framlögum.
Með fyrirfram þökk,
Tryggvi Guðmunds-
son, formaður G.Í.
Auðunn Einarsson og Lára Hannesdóttir voru sigursæl á 20 ára afmælismóti Golfklúbbs Ísafjarðar sem haldið var um síðustu helgi.
Tuttugu ára afmælismót G.Í. og minningarmót um Einar Val
Auðunn bætti vallarmetið um átta högg
Um síðustu helgi hélt
Golfklúbbur Ísafjarðar
tveggja daga opið afmælis-
mót í tilefni af 20 ára afmæli
klúbbsins. Mótið var einnig
minningarmót um Einar Val
Kristjánsson, sem var ein
helsta driffjöður klúbbsins
frá upphafi og þar til hann
lést fyrir tæpum tveimur ár-
um. Þátttakendur í mótinu
voru 57 og meðal þeirra var
forseti Golfsambands Ís-
lands, Hannes Guðmunds-
son, eiginkona hans Ingi-
björg Halldórsdóttir (dóttir
Dúdda Hall og Láru) og
Lára dóttir þeirra, auk fjölda
annarra aðkominna kepp-
enda.
Mótið fór fram í blíð-
skaparveðri báða keppnis-
dagana og var fjöldi áhorf-
enda viðstaddur. Við loka-
hring mótsins var löng röð
áhorfenda meðfram 18.
flötinni, enda hafði kvisast
að Auðunn Einarsson (son-
ur Einars Vals) væri á góðri
leið með að setja nýtt
vallarmet, en vallarmetið
var 70 högg, þ.e. par vallar-
ins, sem Arnar Baldursson
setti fyrir mörgum árum.
Auðunn átti eftir langt pútt
til að ná fugli á 18. holu og
Þrír efstu í karlaflokki án forgjafar. F.v. Gunnsteinn Jónsson
(3), Auðunn Einarsson (1) og Ragnar Þór Ragnarsson (2).
Þrír efstu í karlaflokki með forgjöf. F.v. Auðunn Einarsson
(2), Haukur Eiríksson (1) og Birgir Karlsson (3).
Þrjár efstu í kvennaflokki með og án forgjafar. F.v. Ingibjörg
Halldórsdóttir (2), Lára Hannesdóttir (1) og Guðríður Sig-
urðardóttir (3).
setti hann púttið niður með
miklum tilþrifum, kúlan small
af krafti í miðjan holubakk-
ann, hoppaði nokkra senti-
metra upp í loftið og datt síðan
niður í holuna. Fagnaðarlætin
sem fylgdu voru slík að ætla
hefði mátt að menn væru
staddir á alþjóðlegu stórmóti.
Það kom líka í ljós að árangur
Auðuns var slíkur að fremstu
kylfingar heims hefðu ekki
þurft að skammast sín fyrir
slíkan golfleik.
Auðunn fór hvorn hring á
31 höggi, eða samtals 62
höggum, sem er átta höggum
undir pari vallarins og bæting
á vallarmeti um átta högg.
Þetta er ótrúlegur árangur, sem
staðfestir rækilega að Auðunn
er kominn í hóp allra fremstu
kylfinga landsins. Úrslit móts-
ins urðu annars sem hér segir:
Í karlaflokki án forgjafar sigr-
aði Auðunn Einarsson GÍ á
133 höggum, annar varð
Ragnar Þór Ragnarsson GKG
á 151 höggi og þriðji varð
Gunnsteinn Jónsson GK á 152
höggum. Í karlaflokki með
forgjöf sigraði Haukur Eiríks-
son GÍ á 121 höggi, annar
varð Auðunn Einarsson GÍ á
123 höggum og þriðji varð
Birgir Karlsson GGL á 130
höggum. Í kvennaflokki án
forgjafar sigraði Lára Hannes-
dóttir GR á 208 höggum, önn-
ur var móðir hennar Ingibjörg
Halldórsdóttir GR á 212
höggum og þriðja varð Guð-
ríður Sigurðardóttir GÍ á 246
höggum. Sama röð var í
kvennaflokki með forgjöf,
Lára varð fyrst á 154 höggum,
Ingibjörg varð önnur á 156
höggum og Guðríður varð
þriðja á 190 höggum.
Á mótinu voru í boði glæsi-
leg verðlaun fyrir holu í höggi.
Á 6/15 holu Toyota bifreið og
á 7/16 holu, utanlandsferð
með Flugleiðum. Engum
tókst að krækja í þessi verð-
laun. Fyrir högg næst holu á
6/15 braut var gasgrill frá
Hafnarbúðinni á Ísafirði og á
7/16 braut var golfkylfa frá
Gunnari Sigurðssyni / golf-
vörum. Auðunn Einarsson
hlaut bæði þessi verðlaun og
fór því þeim klyfjaður verð-
launum. Mótið tókst í alla
staði vel og var Golfklúbbi
Ísafjarðar til mikils sóma.
Golfklúbbur Ísafjarðar og
börn Einars Vals eru ákveðin í
að gera mót sem þetta að
árlegum viðburði í framtíð-
inni.
Börn Einars Vals Kristjánssonar, Atli, Eyþór, Sigríður og Auðunn.