Bæjarins besta - 29.07.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
Tveir lundar sitja á kletti rétt við Holubúð, gamla verbúð í
Vigur.
Björn Baldursson er hér búinn að koma sér fyrir á hentugum
stað og bíður færis.
Nú er óheppinn lundi kominn í háfinn...
Lundaveiði
í Vigur
Lundaveiðin er stunduð í
Vigur ár hvert með
hefðbundnum hætti,
enda er sjálfsagt að lifa
af því sem landið gefur
eins og gert hefur verið
frá ómunatíð. Í með-
fylgjandi myndasögu er
Björn Baldursson, annar
Vigurbænda, á lunda-
veiðum ásamt hund-
inum Lappa. Hundurinn
kemur að vísu lítið við
sögu í þessum veiði-
skap nema sem félagi
og vinur. Haglabyssan
sem Björn hefur með-
ferðis er ekki notuð til að
skjóta lundann, heldur til
að fæla hann upp svo
að hægt sé að fanga
hann í háfinn.
Björn tekur hann… …og snýr hann eldsnöggt úr hálsliðnum.
Þeir félagarnir Björn og Lappi að leggja af stað heim til
bæjar með fenginn.
Bringan rifin úr hamnum… …og nú vantar bara pottinn eða pönnuna eða grillið.
Niðjamót bræðranna
Alberts og Magnúsar
Jónssona
Niðjamót bræðranna Al-
berts Jónssonar og Magnúsar
Jónssonar, sem kenndur var
við Gjörfidal í Ísafirði, var
haldið í Reykjanesi dagana
10.-12. júlí. Þeir bræður voru
fæddir að Hamri á Langadals-
strönd en fluttust þaðan ungir.
Magnús fluttist að Lágadal
og síðan að Gjörvidal, þar sem
hann lést í hárri elli. Albert
fluttist til Ísafjarðar og gerðist
járnsmiður þar. Hann byggði
húsið að Sundstræti 33 og rak
þar smiðju, sem Jón sonur
hans tók við síðar.
Albert eignaðist tólf börn
með Guðnýju eiginkonu sinni
og komust átta þeirra til full-
orðinsára. Flest þessara barna
hafa búið á Ísafirði og ennþá
býr Herdís Albertsdóttir í hús-
inu Sundstræti 33. Einu niðjar
Magnúsar á Ísafirði eru Heið-
ar Guðmundsson og börn
Guðrúnar Jónsdóttur frá
Múla. Þeir bræður voru hag-
leikssmiðir á járn og tré og
margir afkomendur þeirra
einnig.
Niðjamótið var haldið í
minningu þess, að á þessu ári
eru 150 ár liðin frá fæðingu
Alberts og frá fæðingu Magn-
úsar á næsta ári. Farið var í
Gjörfidal, rústir gömlu bæj-
anna skoðaðar og saga stað-
arins rifjuð upp. Að loknu
sameiginlegu borðhaldi í
Reykjanesi var stiginn dans.
Mótið þótti takast með af-
brigðum vel, enda var veðrið
mjög gott og aðstaða til móts-
halds af þessu tagi til fyrir-
myndar í Reykjanesi.
Alli Kalli mætti auðvitað
með mandólínið.
Páll Magnússon frá Akureyri og fjölskylda. Gott að viðra sig á tröppunum. Þórey Alberts yngri, Albert
Sigurðsson faðir hennar, Jónína Sanders, Jón Benediktsson
og Sigríður Sanders.
Niðjar Jónínu Alberts.
Elstu ættingjarnir, þær
systur Herdís og Margrét
Alberts.
Unga fólkið setti svip á sam-
komuna. Hér er beðið eftir
matnum.