Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.07.1998, Blaðsíða 16

Bæjarins besta - 29.07.1998, Blaðsíða 16
Bæjarins besta ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 SONY ATV AIWA PANASONIC Brottfluttir umfram að- flutta á Vestfjörðum voru 12 á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Alls fluttust 335 manns til Vestfjarða á þessu tímabili en 347 fluttust frá Vestfjörðum. Mest var sveiflan í Vest- urbyggð, þar sem fjölgaði um 45 manns, og í Bolung- arvík, en þar fækkaði um 42. Fyrir utan Vesturbyggð fjölgaði einungis í tveimur sveitarfélögum á Vestfjörð- um. Í Ísafjarðarbæ fjölgaði um 20 og í Kirkjubóls- hreppi um einn. Í Súðavík- urhreppi fækkaði um 11, í Bæjarhreppi um 6 og í Kaldrananeshreppi um 5. Í öðrum sveitarfélögum var fækkunin minni. Helsta ástæðan fyrir hinni miklu fækkun í Bolungarvík er brottflutningur Pólverja, sem þar störfuðu en misstu vinnuna, og var þar um stórar fjölskyldur að ræða. Margir þeirra munu í stað- inn hafa fengið störf í pláss- um sunnar á Vestfjörðum. Fækkaði um 12 Vestfirðir Kynslóðir koma og fara, synir taka við af feðrum, en samt er eins og tíminn standi kyrr í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi. Gamli báturinn Vigur-Breiður stendur á kambinum framan við bæjarhúsin, tilbúinn í sjóferð og alltaf eins og nýr, enda þótt enginn viti aldur hans með vissu. Á myndinni situr ungur drengur á þóftu í þessum eldforna báti og horfir út á sjóinn. Núverandi Vigurbændur eru fjórði ættliðurinn þar í beinan karllegg frá því að séra Sigurður Stefánsson settist þar að á öldinni sem leið. Öllu er vel við haldið í Vigur og ræktarsemin við liðinn tíma og söguleg verðmæti blasir við hvert sem gengið er. Þar lifir stórfjölskyldan af gæðum lands og sjávar eins og frá öndverðu. Allt hefur sinn tíma um ársins hring og lundinn er veiddur í Vigur á hverju sumri þegar sá tími rennur upp. Frásögn af lundaveiðinni í Vigur í máli en þó einkum í myndum er á bls. 12. Eldforn bátur en alltaf sem nýr Sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða af kröfu um ökuleyfissviptingu Sýslumaðurinn á Ísafirði, Ólafur Helgi Kjartansson, hefur mælt með því við ríkis- saksóknara, að áfrýjað verði til Hæstaréttar dómi Héraðs- dóms Vestfjarða frá því í síðustu viku, þar sem öku- maður var sýknaður af kröfu um sviptingu ökuleyfis. Öku- maðurinn var hins vegar dæmdur til að greiða 12 þúsund króna sekt en allur sakarkostnaður felldur á ríkis- sjóð, þar með talin málsvarn- arlaun verjandans, Tómasar Jónssonar hrl., 100 þúsund krónur. Ökumaðurinn var 5. júní sl. sviptur ökuleyfi til bráða- birgða í einn mánuð fyrir að hafa mælst á 67 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 35 km/klst. Hann ók í gegn- um Hnífsdal á leið til Ísafjarð- ar og taldi sig eiga eftir um 50-100 metra að umferðar- skilti þar sem 70 km hámarks- hraði tekur við. Hann kvaðst ekki véfengja hraðamælingu lögreglunnar, en umferð hefði verið lítil og engir gangandi vegfarendur og hann hefði því aukið hraðann á ný þegar út úr byggðinni í Hnífsdal kom. Í lögregluskýrslu um atvikið segir um aðstæður þegar meint brot var framið, að dagsbirta hafi verið, sólskin, yfirborð vegar þurrt, slétt og bundið slitlag. Ökumaðurinn vísaði kröf- unni um ökuleyfissviptingu til Héraðsdóms, sem komst að þeirri niðurstöðu þremur dög- um eftir sviptinguna, að hún skyldi felld úr gildi. Tveimur dögum síðar hafnaði ökumað- urinn sáttaboði lögreglustjóra um 20 þúsund króna sektar- greiðslu og sviptingu ökuleyf- is í einn mánuð og var málinu því vísað til Héraðsdóms Vest- fjarða, sem komst að fyrr- greindri niðurstöðu. Áður en málflutningur fyrir dómi hófst í síðustu viku fóru málsaðiljar á vettvang ásamt lögreglumönnum þeim sem mælinguna gerðu og tveimur rannsóknarlögreglumönnum. Aðstæður voru ljósmyndaðar og kvikmyndaðar og bæði bíll ákærða og bíll lögreglumann- anna staðsettir í samræmi við framburð þeirra. Talið var, að tæplega 170 metrar hefðu ver- ið frá þeim stað þar sem bíll ákærða var mældur og að merkinu sem sýnir hækkaðan hámarkshraða í 70 km/klst. Í dómi Héraðsdóms Vest- fjarða sl. fimmtudag, sem Jón- as Jóhannsson kvað upp, er greint frá reglugerðum um sektir og önnur viðurlög við umferðarlagabrotum og hvernig lögbundið hefur verið valdaframsal til dómsmála- ráðherra til að ákveða í reglu- gerð sektir allt að 100 þúsund krónum fyrir brot á umferðar- lögum. Dómurinn telur um- rætt valdaframsal ekki svo víðtækt að það bindi hendur dómstóla við ákvörðun refs- inga. Einnig kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu, að valda- framsal löggjafans til dóms- málaráðherra eigi sér ekki lagastoð og svipting ökuleyfis á grundvelli 101. gr. umferð- arlaga verði ekki studd ákvæðum reglugerðar sem sett var 14. maí sl. Í framhaldi af þessum dómi Héraðsdóms Vestfjarða segir sýslumaðurinn á Ísafirði, að við bráðabirgðasviptingu öku- leyfis verði framvegis miðað við hugtakið „mjög vítaverður akstur“ og hvert mál metið sjálfstætt. Eftir sem áður verði þó boðin sátt í málum sem þessum, en sé slíku boði hafn- að sé ekki önnur leið en að ákæra. Sviptingu muni því ekki verða beitt nema ótvírætt hafi verið um mjög vítaverðan akstur að ræða. Eins og áður segir var málskostnaður felldur á ríkis- sjóð og segir sýslumaður að það veki athygli sína, enda sé venjan sú, að sá sem sakfelld- ur er sé látinn bera kostnað af saksókn og málsvörn. Sýslumaður vill áfrýja Frá sviðsetningu hins meinta brots á vettvangi. F.v. Björn Ólafur Ingvarsson, lögreglumaður, Jónas Jóhannsson héraðsdómari, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður og Tómas Jónsson hæstaréttarlögmaður.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.