Bæjarins besta - 16.09.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
Þorbergur Kjartansson, Oddný dóttir hans (fjögurra ára, að
verða fimm) og spegilgljáandi Ariel/Matchless-mótorhjólið
frá 1945.
Hann hefur reyndar
ekki átt mjög mörg hjól
gegnum tíðina. Nú á
hann tvö bresk hjól,
Ariel-hjólið gamla og
annað yngra af gerðinni
Norton, en þriðja hjólið
er Honda CL árgerð
1973. Yngri hjólin eru
bæði sundurtekin í
bílskúrnum um þessar
mundir og bíða viðgerð-
ar og yfirhalningar. Ég
átti fyrst japanskt hjól af
gerðinni Suzuki TS 400,
en ég hafði meiri áhuga
á breskum hjólum og
fékk mér Norton-hjól og
hef verið mest á því. Það
er heppilegra til að
ferðast á en Ariel-hjólið,
sem er meira til spari.
Krakkarnir hafa gaman
af því að fara með mér á
hjólinu. Annars hef ég
alveg eins gaman af því
Mótorhjólið er sautján
árum eldra en eigandinn
Mótorhjól eru allmiklu sjaldséðari á
Ísafirði á seinni árum en í gamla
daga, þegar Matthías Bjarnason og
aðrir járnkarlar voru upp á sitt besta
og þeystu á fretandi vélfákum um
götur Ísafjarðar, sjálfum sér og ungum
stúlkum til yndisauka en eldri borg-
urum stundum til talsverðrar hrell-
ingar.
Á góðviðrisdögum um helgar
má þó stundum enn í dag sjá
mann á rauðu, fallegu og
fornlegu mótorhjóli á
fremur rólegri siglingu
um götur bæjarins.
Þetta er Þorbergur
Kjartansson, starfs-
maður hjá Íslands-
pósti á Ísafirði og
áhugamaður um
gömul mótorhjól.
Hann er 36 ára
að aldri en
sparihjólið
hans er
miklu
eldra,
eða
fimmtíu
og
þriggja ára gamalt,
smíðað árið 1945 í
Englandi, rétt í stríðs-
lokin.
Hjólið er af gerðinni
Ariel og mun hafa komið
mjög snemma hingað til
lands, en hluti af því er
reyndar úr hjóli af
gerðinni Matchless. Á
tímum innflutningshafta
á sjötta áratugnum hafa
menn trúlega orðið að
tjasla saman því sem til
var. Það var búið að
skeyta saman hluta úr
grindum og í rauninni
ómögulegt að gera það
upp sem original á
hvorn veginn sem var,
segir Þorbergur. Þegar
ég fékk hjólið var það í
því ástandi að um tvennt
var að ræða, nota það í
varahluti eða leggja
talsverða vinnu í að gera
það upp eins og það
hafði verið skeytt
saman.
Áhugi Þorbergs á
mótorhjólum vaknaði
ekki fyrr en hann var um
tvítugt. Þá prófaði ég
hjól í eigu mágs míns úti
í Þýskalandi, en hann
hefur fengist við að gera
upp gömul bresk hjól.
Umræddur mágur er
Þjóðverji, en Frauke
Eckhoff eiginkona
Þorbergs er þýsk að
uppruna. Þorbergur
sjálfur er úr Reykjavík en
hefur búið á Ísafirði
ásamt fjölskyldu sinni
síðustu tólf árin.
að stússa við þetta inni í
bílskúr. Hondan er með
350 cc mótor og Þor-
bergur er rétt byrjaður
að koma henni saman.
Þau hjól eru frekar ódýr
en varahlutirnir dýrir,
þannig að í raun og veru
borgar sig varla að gera
það upp, segir hann.
Ariel/Matchless-hjólið
er tveggja sæta með
350 cc mótor. Þorbergur
eignaðist það árið 1987.
Þá var að vísu rétt
hægt að setja það í
gang, en mótorinn var
þannig mixaður að hann
smurði sig ekki. Hann er
skráður um 17 hestöfl
og hjólið á að geta náð
110-120 km hraða, ef
mikið liggur við. Þor-
bergur kveðst samt ekki
hafa prófað það. Þetta
er ekki þannig hjól að
maður sé að flýta sér
mikið á því. Hjólið er
með svokallaðri magn-
ettukveikju, eins og áður
tíðkaðist, en ekki með
platínukveikju, og
sitthvað annað er með
fornlegum hætti.
Ekki veit Þorbergur hvað
hann hefur varið miklu af
tíma og peningum til að
gera gamla hjólið upp.
Ég hef stöðugt verið að
stússa eitthvað í því
Þorbergur Kjartansson á Ariel hjólinu.
Auk þess á hann annað breskt hjól af
Norton gerð og hjól af gerðinni Honda CL
árgerð 1973 með 350 cc mótor.
- sem þó er ekkert unglamb lengur
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI 1 • ÍSAFIRÐI
456 3940 & 456 3244 • Fax: 456 4547 • Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
Einbýlishús / raðhús
Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins
sýnishorn af söluskrá skrifstofunnar.
Allar frekari upplýsingar varðandi söluskrá
fasteigna eru veittar á skrifstofunni að
Hafnarstræti 1, 3. hæð.
Árholt 12 Úlfsá: 183,5 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum,
uppgert að mestu. Áhv. ca.
2,7 millj. Verð kr. 10,800,000,-
Fjarðarstræti 33: 176,5 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum.
Góður garður. Ekkert áhvíl-
andi. Verð kr. 8,500,000,-
Góuholt 1: 142 m² einbýlishús
í góðu standi á einni hæð ásamt
bílskúr. Áhv. ca. 5,8 millj.
Verð kr. 11,600,000,-
Góuholt 3: 140,7 m² einbýlishús
á einni hæð ásamt bílskúr. Áhv.
ca. 2,7 millj.
Verð kr. 12,000,000,-
Hjallavegur 19: 242 m² einb.-
hús á 2. hæðum ásamt innb.
bílskúr. Sér íbúð á n.h. Ýmis
skipti möguleg. Áhv. ca. 5 millj.
Verð kr. 11,500,000,-
Hlíðarvegur 31: 130 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Húsið er allt að
mestu uppgert . Mjög gott
útsýni Verð kr. 10,700,000,-
Lyngholt 8: 138 m² einb.hús á
einni hæð + 31 m² bílsk. Nýtt
parket ný málað Skipti
möguleg. Áhv. ca. 5,5 millj.
Verð kr. 10,800,000,-
Seljalandsvegur 48: 188 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Áhv. ca. 700 þús. Verð
kr. 12,700,000,-
Seljalandsvegur 72: 112 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum. Áhv.
ca. 4,3 millj. Verð kr. 8,500,000,-
Seljalandsvegur 84a: 85 m² ein-
býlishús á einni hæð, endur-
byggt 1992 Verð kr. 6,200,000,-
Tangagata 6a: 99.7 m² einbýlis-
hús á tveimur hæðum. Laust
fljótlega. Öll tilboð skoðuð. Áhv.
ca. 1,5 millj. Verð kr. 6,800,000,-
Tangagata 15b: 103 m² einb.hús
á 2 hæðum ásamt uppgerðum
geymsluskúr. Laust fljótlega.
Áhv. ca. 3,3 millj.
Verð kr. 6,200,000,-
Urðarvegur 13: 85 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt kjallara.
Skipti á stærri eign möguleg. Áhv.
ca. 3,2 millj.
Verð kr. 5,500,000,-
4-6 herbergja íbúðir
Engjavegur 21: 132,2 m² 4-5
herb. íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt kjallara.
Verð kr. 8,500,000,-
Engjavegur 31: 92,1 m²
4 herb. íbúð á n.h. í tvíb.húsi.
Mikið uppgerð, skipti á stærri
eign möguleg. Áhv. ca. 2,2 millj.
Verð kr. 5,500,000,-
Fjarðarstræti 11: 131 m² 4ra
herb. íbúð á efri hæð í tvíbýlis-
húsi. Áhv. ca. 3,8 millj.
Verð kr. 6,800,000,-
Hafnarstræti 6: 158 m² 6 herb.
íbúð á 3ju hæð. Skipti á minni
eign möguleg
Verð kr. 7,500,000,-
Hjallavegur 8: 128,5 m²
4 herb. íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi. Áhv. ca. 2.8 millj.
Laus 1. janúar 1998. Verð kr.
6,900,000,-
Hnífsdalsvegur 27: 182 m²
glæsileg íbúð með parketi og
harðv.innr. Einnig 415 m²
iðnaðar- og viðg.húsnæði ásamt
lagerhúsnæði. Tilboð
Sólgata 5: 102 m² 6 herbergja
íbúð á tveimur hæðum í
norðurenda í tvíbýlishúsi. Áhv.
ca. 3,5 millj. Verð kr. 5,000,000,-
Sólgata 8: 101,7 m² 3 - 4 r a
herb. íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi
ásamt helmingi kjallara og
rislofts. Áhv. ca. 850 þús.
Verð kr. 7,000,000,-
Stórholt 9: 164,3 m² 6 herb. íbúð
á 1.h.t.v.+kjallara m/sér inn-
gangi. Hægt að ganga í garð af
svölum. Áhv. ca. 3,8 millj.
Verð kr. 8,000,000,-
Stórholt 13: 123 m² 4ra herb.
íbúð á 3ju hæð í fjölbýli ásamt
bílskúr. Verið er að gera íbúðina
upp. Áhv. ca. 567 þús.
Verð kr. 7,800,000,-
Túngata 18: 89,2 m² 4ra herb.
íbúð í fjölb.húsi í góðu standi.
Húsið allt uppgert. Mögul.sk. á
minni. Áhv. ca. 3,5 millj.
Pólgata 6: 55 m² risíbúð í
fjölbýlishúsi, ásamt geymslu í
kjallara. Mikið endurnýjuð. Góð
kjör í boði. Verð kr. 3,900,000,-
Sólgata 8: 80 m² íbúð í góðu
standi á neðri hæð í fjölbýlishúsi.
Áhv. ca. 3 millj.
Verð kr. 5,800,000,-
Stórholt 7: 76 m² íbúð á 1. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Ásamt
sér geymslu.
Verð kr. 4,800,000,-
Stórholt 11: 80 m² íbúð í góðu
standi á 3. hæð til hægri í
fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu.
Áhv. ca. 2,5 millj.
Verð kr. 5,800,000,-
Túngata 21: 84,9 m² íbúð á 1.
hæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr.
Áhv. ca. 3,8 millj.
Verð kr. 6,500,000,-
Aðalstræti 20: 94 m² íbúð á 4.
hæð til hægri í fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu. Áhv. ca. 1,7
millj. Verð kr. 5,900,000,-
Hlíf II, Torfnesi: 50,4 m² íbúð
á 2. hæð í Dvalarheimili
aldraðra. Áhv. ca. 3,9 millj.
Verð kr. 6,200,000,-
Urðarvegur 78: 73,2 m²
íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Áhv. ca.
2,7 millj. Verð kr. 5,400,000,-
Pólgata 5a:
121m² nýlega uppgerð 4ra herbergja íbúð
á n.h. í þríbýlishúsi ásamt bílskúr og 1/2 kjallara.
Íbúðin er laus strax
Verð kr. 6,300.000,-
Verð kr. 6,900,000,-
Túngata 21: 77,8 m² 4ra herb.
risíbúð á 3ju hæð í þríbýli. Inng.
sameiginl. m/2. hæð. Nýlega
viðgert þak. Áhv. ca. 600 þús.
Verð kr. 5,600,000,-
Austurvegur 1: 103,4 m² skrif-
stofuhúsnæði á 3. hæð. Fallegt
útsýni. Laust fljótlega. Verð
kr. 5,500,000,-
Atvinnuhúsnæði
3ja herbergja íbúðir
2ja herbergja íbúðir