Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.09.1998, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 16.09.1998, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 11 Erfðafrelsi! Fátt ber hærra í umræðu fjölmiðla en hið títtnefnda gagnagrunns- frumvarp. Þar hafa línur skerpst mjög. Frumvarp til laga um gagna- grunn í heilbrigðismálum varð ekki útrætt á síðasta alþingi. Umræður innan þings og utan urðu mjög hatrammar. Doktor í læknavísindum, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, samdi frumvarp um einkarétt fyrirtækisins til þess að nýta sér og skrá heildstætt allar fyrirliggjandi upplýsingar um sjúklinga á Íslandi. Með því móti átti vinna við að leita uppi gen, sem valda ákveðnum sjúkdómum, að verða mun einfaldari. Sitt sýnist hverjum eins og alltaf er. Móðurfyrirtæki Íslenskrar erfðagreiningar heitir Decode Genetics og hefur dr. Kári fært umtalsvert fé til Íslands, til fyrirtækisins hér. Undirritaðir hafa verið samningar við Hoffman la Roche í Sviss. Þeir grundvallast á möguleika síðastnefnda fyrirtækisins til að nýta sér niðurstöður rannsókna dr. Kára við lyfjaframleiðslu. Þegar samningar voru undirritaðir við hátíðlega athöfn var forsætisráðherra, Davíð Oddson, viðstaddur. Hann hefur tekið ótvíræða afstöðu með einkarétti Íslenskrar erfðagreiningar til að nýta gagnagrunninn. Íslenskir læknar hafa ekki verið jafn uppveðraðir. Nú senda hvorir öðrum skeytin í fjölmiðlum, Læknafélag Íslands og forsætisráðherra. Árangurinn er enginn að sjálfsögðu og skilningur almennings hefur ekki aukist á umfangi og eðli málsins eða deilna um það. Ýmis rök hafa verið færð fram með og á móti gagnagrunnsfrumvarpinu. Hvað svo sem sagt verður að öðru leyti er þetta frumvarp nýstárlegt á Íslandi og mörg sjónarhornin, sem þarfnast könnunar. Einstaklingsfrelsi Hver á upplýsingarnar í sjúkra- skrám? Getur alþingi sett lög um það að ákveðin fyrirtæki úti í bæ, hversu háleit sem markmið þeirra annars eru, fái einkarétt til að nýta sér slíkar upplýsingar? Hver er réttur einstaklingsins og frelsi hans varðandi viðkvæmar upp- lýsingar um heilsufar og sjúk- dóma? Hér er stórt spurt og ekki auðvelt um svör. Eitt er þó deginum ljósara. Hver maður á rétt á því að viðkvæmar upplýsingar um einkalíf hans beri ekki fyrir annarra augu en þeirra sem lögum samkvæmt höndla um hans mál, það er heimilislækna og sérfræðinga í læknastétt. Með þeim síðast nefndu er við þá eina átt, sem annast sjúklinginn. Kannski er gallinn við allt þetta mál sá, að heilbrigð- isþjónusta á Íslandi er ríkisrekinn. Hún er í raun rekin á sósíalískum grunni. Ríkið hefur tekið að sér eins og það er gjarnan nefnt, að sjúkratryggja alla Íslendinga og jafnframt að skaffa læknisþjónustuna. Þótt einhver gjöld séu greidd fyrir þjónustuna eru þau svo smávægileg að hlutfallið á milli veittrar þjónustu og endurgjalds er í hrópandi ósamræmi. Þannig er læknis- og heilsugæsla miðstýrð á Íslandi. Ríkisrekin þjónusta heldur utan um allar upplýsingar í kerfi sem sennilega hefur ekki verið skráð í hinn margnefnda miðlæga gagna- grunn af einni ástæðu fyrst og fremst. Íslenska ríkið hefur einfaldlega ekki séð ástæðu til þess sennilega vegna kostnaðar. Nú er greinilega hægt að hafa umtalsverðan hagnað upp úr krafsinu. Þá er bitið á það agnið. En hinu má ekki gleyma að frá vísindalegu sjónarmiði er eftir miklu að slægjast. Handan við hornið kynnu að leynast lausnir á ýmsum sjúkdómum sem hrjáð hafa mannkynið. Íslenskt þjóðfélag er smátt, örsmátt á mælikvarða jarðar, og tiltölulega arfhreint. Þó gæti verið fróðlegt að sjá hvort ekki er of mikið úr þeim þætti gert. Ekki má gleyma þeirri staðreynd að ættir eru vel skráðar. Flestir ,,arfhreinir” Íslendingar munu vera skyldir í 10 lið. Enda var fólksfjöldi samkvæmt manntali 1703 liðlega 50 þúsund og í ,,stórubólu” 1707 til 1708 féllu um 16 þúsund manns, um þriðjungur þálifandi Íslendinga. Eftir Móðuharðindin 1783 til 1786 voru Íslendingar tæplega 40 þúsund. Mannfjöldi nú er um 274 þúsund. Tiltölulega auðvelt er er að rekja Íslendinga saman. Leitin að gölluðu genunum, er óvíða auðveldari og hún er spennandi. En eru það nóg rök? Alþingi Forsætisráðherra hefur lýst sinni skoðun. Íslensk erfðagreining skal fá einkaleyfið. Læknar og vísindamenn hafa marga fyrirvara. Forsætisráðherra hefur lýst því áliti sínu að nú séu upplýsingar úr sjúkrakrám illa varðar, dæmi séu þess að þær liggi á glámbekk. Læknar una þessu illa. Almenningur unir því illa ef satt er. En réttlætir lausung í meðferð viðkvæmra upplýsinga úr sjúkraskrám, ef sönn er, að veita einkaaðila upplýsingar úr þeim, um alla sem þar eru skráðir? Svarið hlýtur að verða nei. Einstaklingurinn hlýtur að verða sá, sem tekur ákvörðun um það hvort sjúkraskrá hans verði opnuð öðrum en honum sjálfum og þeim lækni sem annast hann og er bundinn trúnaði. Það er fráleitt að það verði gert með nokkrum öðrum hætti en þeim, að viðkomandi gefi um það yfirlýsingu með afgerandi hætti. Ekki dugar að líta á þögn sem samþykki. Ríkið hefur tekið að sér almenna heilbrigðisþjónustu fyrir Íslendinga. Það þýðir engan veginn að einhver hluti ríkisvaldsins geti tekið ákvörðun um að opna óviðkomandi aðgang að þessum upplýsingum. Gildir það jafnt um alþingi, stjórnsýsluna og dómsvaldið. Fylgst verður með alþingismönnum við afgreiðslu frumvarpsins. Sú spurning vaknar hvort ekki vær nær að breyta núverandi fyrirkomulagi sjúkratrygginga og veita sjúklingum val á því hvert þeir leita læknisþjónustu. -Stakkur. Gestir skoða skurðstofuna á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Það er Hörður Högnason hjúkrunarforstjóri sem er til leiðsagnar. Heilbrigðisstofnunin Á fjórða hundrað gestir á opnu húsi „Alveg meiriháttar“, sagði Birgir Jónsson matreiðslu- meistari á sjúkrahúsinu á Ísafirði um opna húsið sem Heilbrigðisstofnunin í Ísafjarðarbæ gekkst fyrir á Ísafirði og Flateyri á laugardaginn. Yfir þrjú hundruð manns komu á sjúkrahúsið og heilsugæsluna á Ísafirði og var örtröð fólks að komast í ýmiskonar líkamsprófanir og skoða tæki og tól. Gestunum var síðan boðið var upp á veitingar. Um kvöldið gerði starfsfólkið sér dagamun, snæddi saman átján rétta austurlenska máltíð sem Árý Hinriksson og tvær aðrar konur af erlendu bergi brotnar elduðu og fóru síðan í óvissuferð um Ísafjörð og til Súðavíkur. „Svona dagur er ákaflega mikils virði til þess að efla sam- stöðu starfsfólksins og stuðlar að góðum starfsanda“, sagði Birgir. „Það eru allir alveg í skýjunum eftir þetta. Annars er ég hálfhræddur um að mannskapurinn sé að vona að ég fari í nokkurra mánaða frí og erlendu konurnar þrjár sjái um eldamennskuna í staðinn.“ Ólafur Gunnarsson læknir kannar ástand hjartans í einum gestanna... ... og Guðrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur kannar hér heyrn Guðbjarts Ólafssonar. Birgir Jónsson matreiðslumeistari á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði hafði í nógu að snúast á laugardaginn enda gestir á fjórða hundraðið á opnu húsi stofnunarinnar. Kristinn Birgisson bókari hjá Heilbrigðisstofnuninni og Guðjón Brjánsson framkvæmdastjóri höfðu um margt að ræða við þau Einar Odd Kristjánsson og Sighvat Björgvins- son alþingismenn Vestfirðinga og eiginkonu Einars Odds, Sigrúnu Gerðu Gísladóttur.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.