Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 21.10.1998, Blaðsíða 1
Smart Lanett Peer Gynt Miðvikudagur 21. október 1998 • 42. tbl. • 15. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Ljóninu • Skeiði • Sími 456 4070Ljóninu • Skeiði • Sími 456 3464 Rúnturinn náði kringum jörðina Viðtal við heimshornaflakkarann Auðun Braga Valdimarsson 6 Vorum að taka upp samkvæmiskjóla og jakka FYRIR ÁRSHÁTÍÐINA! Forathugun vegna ofanflóðavarna í Bolungarvík Niðurstöður væntanlegar í janúar Á vegum umhverfisráðu- neytisins er um þessar mundir unnið að forathugun varðandi hugsanlega gerð snjóflóða- varna í Bolungarvík, eins og allmiklu víðar um landið. Verkið hefur tafist nokkuð vegna anna hjá ráðgjöfum ráðuneytisins, sem eru Verk- fræðistofan Hnit í Reykjavík ásamt norskum sérfræðing- um, en búist er við að niður- stöður liggi fyrir fljótlega eftir áramótin. Umrædd forathugun beinist að því, hvort rétt sé að gera einhverjar flóðavarnir undir Traðarhyrnu og þá með hvaða hætti, en framhaldið er síðan í höndum bæjaryfirvalda. Hugsanlegt væri að einhverjir garðar yrðu gerðir ofan við byggðina og yrðu þeir þá jafnframt hannaðir sem hluti af útivistarsvæði og gróður- vin. Til bráðabirgða eru svæði í Bolungarvík á rýmingarkorti Veðurstofunnar, en engin svæði þar hafa að öðru leyti verið skilgreind sérstaklega sem hættusvæði. Í manna minnum hefur aðeins einu sinni fallið spýja niður að efstu byggð. Óvíst er hvenær fram- kvæmdir kæmust á dagskrá, ef ákveðið yrði að ráðast í gerð einhverra varnarmann- virkja í Bolungarvík. Bolungarvík séð úr lofti á sólbjörtum vetrardegi. Gaman á sleðunum – en hætturnar margar og geta leynst víða Snjórinn kom í síðustu viku og þá voru sleðarnir teknir upp úr geymslum og út úr bílskúrum eftir sumardvalann. Það er gaman að renna sér á sleða og brekkur eru víða morandi af krökkum á sleð- unum sínum. En hætturnar í lífinu eru margar og geta leynst víða. Margir krakkar hafa undan- farið verið að renna sér í brekkunni ofan við Hlíf á Ísafirði og þá er eins gott að vera góður að stoppa í tæka tíð áður en óhöpp verða. Að ekki sé talað um sleðabrekku eins og Hallabrekkuna, þar sem ferðin getur endað undir bíl á Túngötunni.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.