Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.11.1998, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 11.11.1998, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 3 STUTTAR FRÉTTIR Vestfirðir Fallist á kæru félaga í Baldri Skattstjóri á Vest- fjörðum hefur fallist á kæru félaga í Verka- lýðsfélaginu Baldri til lækkunar á tekjuskatti og útsvari. Skattstjórinn breytti framtali kærenda til hækkunar sem nam upphæð verkfallsstyrks sem félagið greiddi þeim í verkfallinu vorið 1997, en félagið lítur svo á, að um sé að ræða endurgreidd félags- gjöld. Málinu er þar þar með ekki lokið þar sem skattstjóri hefur sent fé- lagsmönnum í Baldri fyrirspurnarbréf þar sem óskað er eftir nán- ari upplýsingum um eðli greiðslna í vinnu- stöðvun. Ísafjörður Háls-, nef og eyrna- læknir á HSÍ Háls-, nef- og eyrna- læknir verður starfandi á Heilsugæslustöðinni á Ísafirði dagana 26.- 28. nóvember nk. Þeim sem hafa hug á að nýta sér tíma lækn- isins er bent á að hafa samband í síma stöðv- arinnar 450 4511. Ísafjörður Kjúklingar á föstudögum SKG-Veitingar hafa ákveðið að bjóða uppá kjúklingaveislu í há- deginu á föstudögum í nóvember að Hótel Ísa- firði. Á meðan kjúklinga- veislan stendur yfir verður boðið uppá fjöl- breytta matseld á þess- ari vinsælu matvöru. Á föstudaginn kemur verður boðið upp á körfukjúkling, þá ind- verskan karrý-kjúkling og þá kjúklinga með sveppum og beikoni í rauðvínssósu. Verðinu er stillt í hóf eða aðeins kr. 1.000.- fyrir súpu, kjúklingaréttinn og kaffi á eftir. Sex fyrrverandi bæjarfulltrúar Ísafjarðarbæjar skrifa Athugasemdir við yfirlit bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar Á fundi bæjarstjórnar Ísa- fjarðarbæjar fimmtudaginn 5. nóvember sl. afhenti bæjar- stjóri Halldór Halldórsson bæjarfulltrúum yfirlit yfir kostnað við framkvæmdir við Grunnskólann á Ísafirði. Einn- ig var gerður samanburður á kostnaði við breytingar á Austurvegi 2 og svokallaðri Torfnesleið. Þetta yfirlit hefur að vísu ekki verið bókað, en þar sem bæjarstjóri fylgdi því eftir í svæðisútvarpinu og í sjón- varpinu daginn eftir verður að líta á það sem opinbert plagg. Þar sem í umræddu yfirliti eru villandi og sumstaðar bein- línis rangar fullyrðingar sjáum við sem mynduðum fyrri meirihluta í bæjarstjórn Ísa- fjarðarbæjar okkur tilneydd að koma leiðréttingum á fram- færi. Bráðabirgðalausnir Eins og lesendur eflaust muna var eitt meginverkefni síðustu bæjarstjórnar að taka á húsnæðisvanda Grunnskól- ans á Ísafirði. Til bráðabirgða var ákveðið að reisa færanlegt kennsluhús við hliðina á Íþróttarvallarhúsinu á Torfnesi og nota bæði húsin til kennslu yngstu árganganna, næstu þrjú árin meðan nýr Unglinga- skóli væri byggður á svæðinu og þar með leystur húsnæðis- vandi skólans til framtíðar. Kennsla í heimilisfræði skyldi færð inn í Skólagötu 10. Auk þessa voru ákveðnar nokkrar framkvæmdir við húsnæði á Eyrinni. Nýr meiri- hluti, sem tók við að loknum kosningum í vor, hafnaði Torfnesleiðinni og keypti í staðinn tvær efri hæðirnar í Kaupfélagshúsinu að Austur- vegi 2 og innréttaði þær fyrir skólann. Þá var byggður mikill rampur sem inngangur í húsið. Framkvæmdir við Skólagötu 10 og húsnæðið á Eyrinni var að mestu eins og gert hafði verið ráð fyrir af fyrri meirihluta. Villandi samanburður Bæjarstjóri segir í yfirliti sínu að í fjárhagsáætlun séu áætlaðar 54,5 mkr. til fram- kvæmda við Grunnskólann á Ísafirði. Þessi upphæð er hins vegar einungis framlag bæj- arins en gert var ráð fyrir 12,5 mkr. framlagi frá ríkinu á móti. Heildarupphæð til fram- kvæmda við Grunnskólann á Ísafirði er því áætluð 62,5 mkr. í fjárhagsáætlun 1998. Við gerð fjárhagsáætlunar var gert ráð fyrir að þessi upphæð dygði fyrir öllum fram- kvæmdum, þar með töldum innanstokksmunum. Þeir gleymdust því ekki eins og sumstaðar hefur verið haldið fram. Þá reiknar bæjarstjóri með að heildarkostnaður við Torf- nesleiðina hefði orðið rúmar 70 mkr. samanborið við 40 mkr. við Austurvegsleiðina. Í þessum tölum ber bæjarstjóri saman allar framkvæmdir við Grunnskólann á Ísafirði og framkvæmdir við Austurveg 2, að frátöldum öðrum fram- kvæmdum við Grunnskólann. Þarna ætlum við að séu um mistök að ræða í samanburð- inum hjá bæjarstjóranum. Nýtanlegt til framtíðar Þegar þáverandi meirihluti leitaði að bráðabirgðalausn á húsnæðisvanda Grunnskól- ans á Ísafirði var kappkostað að sem allra flest af því sem gert væri mætti nýtast síðar meir. Þess vegna var ákveðið að Félagsmiðstöðin myndi fara inn í Íþróttarvallarhúsið þegar framtíðarskólahúsnæði risi og allar framkvæmdir við það miðaðar. Lausa kennslu- húsið átti að nota fyrir Byggðasafn í framtíðinni og það teiknað með þá notkun í huga. Við samanburð á Torfnes- og Austurvegsleiðinni er nauðsynlegt að taka mið af því hvernig fjárfestingarnar nýtast til framtíðar. Til að fá sem skýrastan samanburð á þessum tveimur leiðum er best að sleppa öðrum fram- kvæmdum við Grunnskólann enda er kostnaður við þær sá sami hvor leiðin sem farin hefði verið. Mismunur á þessum tveim- ur leiðum eru því rúmar 40 mkr. eða sem samsvarar bygg- ingu nýs fótboltasvæðis með búningsaðstöðu samkvæmt kostnaðaráætlun Sjálfstæðis- manna fyrir kosningarnar í vor. Það skal þó tekið fram að fyrir bráðabirgðaaðstöðuna á Torfnesi var ekki nauðsynlegt að færa íþróttasvæðið. Kostnaður við breytingar Bæjarstjóri telur að kostn- aðurinn við Austurveginn geti enn hækkað um 10% þegar endanlegar tölur liggja fyrir. Kostnaður við breytingarnar á Austurvegi 2 átti að vera að hámarki 30 milljónir, en yrði samkvæmt því um 60 mkr, eða um 100% hækkun frá áætlun. Þetta sýnir hversu varhugavert er að kaupa gam- alt. Það er dýrt að gera upp og breyta gömlu húsnæði eins og bent var á í umræðum um kaup á Norðurtangahúsunum. Í þessari grein höfum við aðeins gert samanburð á kostnaði við þessar tvær um- ræddu leiðir. Annars konar samanburð, svo sem á að- gengi, öryggi barna, leiksvæði og kennsluhúsnæði getur hver dæmt um fyrir sig. Guðrún Á. Stefánsdóttir. Jónas Ólafsson. Kolbrún Halldórsdóttir. Kristinn Jón Jónsson. Sigurður R. Ólafsson. Smári Haraldsson. Auglýsingar og áskrift sími 456 4560 fulltrúar minnihlutans óttumst hins vegar að sökum þess hve miklum kostnaði hefur verið varið í þessa bráðabirgðalausn þá muni hér komin hin endan- lega lausn meirihlutans í hús- næðismálum Grunnskólans á Ísafirði. Reyndar er til enn verri endir á þessari hringa- vitleysu þ.e. að við endum aftur í Norðurtangaleið og þá verður nú fyrst ástæða fyrir alla að kætast! Í viðtölum bæj- arstjóra í fjölmiðlum heyrðu glöggir hlustendur hann í tvígang minnast á þau húsa- kynni. Hafi kostnaðaráætlanir vegna Austurvegsleiðar farið úr böndum þá fullyrðum við að það vanmat á kostnaði er barnaleikur miðað við þá möguleika sem Norðurtanga- lausnin býður upp á hvað slíkt varðar. Í forsendum bæjar- stjóra vegna breytinga á fjár- hagsáætlun er gert ráð fyrir að endanlegur kostnaður vegna Austurvegar nemi allt að 57 milljónum, og vel að merkja hér vantar inn í kaup- verð húsnæðis að Austurvegi 2 sem er 15 milljónir auk vaxta, þannig að glöggir les- endur sjá að samanlagt stefnir heildarkostnaður í tæpar 80 milljónir á bráðabirgðalausn meirihlutans. Ef litið er til hagkvæmni er ljóst að bráðabirgðalausn okk- ar á Torfnesi hefur mikla yfir- burði enda hefði nýbygging ásamt breytingu á Vallarhúsi nýst annars vegar sem safna- hús og hins vegar til félagsað- stöðu unglinga eins og ráðgert hafði verið. Hins vegar er full- komlega óljóst hvert söluverð húsnæðisins að Austurvegi 2 verður í einhverri framtíð þeg- ar framtíðarlausn núverandi meirihluta lítur dagsins ljós, hafi einhver trú á að sá dagur rísi. Það verður því fróðlegt að sjá hvort sú almenna ánægja sem bæjarstjóri full- yrðir að sé meðal bæjarbúa með lausn þá er nú liggur fyrir endist þegar staðreyndir máls- ins liggja endanlega fyrir. Fulltrúar K-lista í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, Bryndís G. Frið- geirsdóttir, Sigurður R. Ólafsson, Sæmundur K. Þorvaldsson, Lárus G. Valdimarsson.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.