Jólablaðið - 20.12.1952, Blaðsíða 9
JÓLABLAÐIÐ
9
II lllllllll llll IIIIIIIIIIIIIII lllll IIII1J4J1IIIIIIIIIIII1111111111IIIIIIIIIIIIIIIII IIIIIIIIIHIIIIIII llllll 111II1 IHII!IIII IIIIIHllillll 111111111111111IH
| S e I j u m
| sparneytnustu miðstöðvarkatla,
| olíu- eða kolakynta,
| vönduðustu olíugeymana.
| VÉLSMIÐJAN ÞÓR H.F.
I Isafirði.
Einarsson skósmiður og skírði
hann Geir. Hann var lengi póst-
bátur. Fyrst um Eyjafjörð, tvö
sumur, og síðan nokkur ár hér um
ísafjarðardjúp. Vélbátaútgerð í
Patreksfirði varð aldrei jafn al-
menn og á hinum f jörðunum.
Hér að framan er stuttlega rak-
in útbreiðsla vélbáta á fyrsta tíma
bili þeirra. Næst verður sagt nokk-
uð frá stærri vélbátunum hér
vestra.
Pyrstu vélsmiðjur á Vestfjörðum.
Þess er áður getið, að J. H.
Jessen kom hingað í nóv. 1902, og
stofnsetti snemma næsta árs vél-
smiðju á ísafirði. Var þar ærið
verk að vinna, að setja nýjar vélar
í báta, en vélbilanir voru furðu fá-
tíðar fyrstu árin, þótt vélgæzlan
væri höfð sem hjáverk formanns-
ins. Vélarnar voru sterkar og
gangvissar, ef þær fengu næga
olíu og smuming. Þó breyttist
þetta nokkuð þegar vélategundum
f jölgaði, þótti þá bera meira á bil-
unum. Mörgum formanninum þótti
mikið ef aðgerðir eða annar kostn-
aður við motorvélina nam 50 kr.
á ári.
Fyrstu motorvélarnar hér á ísa-
firði og nágrenni vom frá Molle-
rupsverksmiðjunni í Esbjerg.
Munu samtals 30—40 motorvélar
hafa verið pantaðar þaðan. Brátt
komu Danmotorar til sögunnar. Þeir
þóttu mjög gangvissir, enda var
Dan elzta verksmiðjan í Dan-
mörku og hafði mesta reynslu. Svo
komu Alphamotorar, smíðaðir af
bræðrunum Houmöller í Friðriks-
höfn, og smátt og smátt komu
nýjar og nýjar vélategundir, sem
sennilega fer enn fjölgandi.
Vélsmiðja J.H. Jessen er fyrsta
og elzta vélsmiðja á íslandi. Hún
var fyrst til húsa í kjallara hús-
eignar Guðmundar Guðmundsson-
ar, skipasmiðs. Síðar keypti Jess-
en húseign Ásmundar Sigurðsson-
ar og byggði þar skúrbyggða vél-
smiðju, húsið er nú nr. 3 við Norð-
urveg, en vélsmiðjan var flutt
burtu og breytt í íbúðarhúsið
Nýjabæ við Seljalandsveg, eign
Sveins Jónssonar. Margir lærðu
vélsmíði hjá Jessen, t.d. Gunnlaug-
ur Fossberg, Gísli Jónsson, alþm.,
Hallgrímur Jónsson, yfirvélstjóri,
Þorsteinn Ámason o.fl.o.fl. Jessen
kvæntist Sigþrúði Guðmundsdótt-
ur, skipasmiðs. Hann var talinn
góður vélsmiður, vinsæll og virtur
mjög. Það var fyrir frumkvæði
ísfirzkra útgerðarmanna, að Jess-
en hóf vélsmiðjurekstur strax.
Gengu 15 þeirra í ábyrgð fyrir
stofnláni.
I Hnífsdal rak J. P. Clausen
vélsmiðju um tíma. Hann hafði
áður starfað við hvalveiðistöðina
á Dvergasteini í Álftafirði.
I Bolungarvík hóf Th. Thomsen
vélsmiðjurekstur. Hann flutti síð-
ar til Vestmannaeyja og hóf vél-
smiðjurekstur þar. Við brottför
Thomsens tók Friðrik Teitsson,
sem lærði hjá Thomsen, við vél-
smiðjunni, og rak hana mörg ár.
Nú reka útgerðarmenn í Bolung-
arvík vélsmiðjuna sem hlutafélag.
Forstjóri er Bernódus Halldórsson.
Á Suðureyri í Súgandafirði hef-
ir Guðjón Halldórsson, jámsmið-
ur, rekið litla vélsmiðju síðustu
áratugi, og annast ýmsar vélaað-
gerðir.
Á Flateyri í önundarfirði önn-
uðust þeir Svendsensfeðgar ýmsar
vélaviðgerðir, en mörg undanfarin
ár hefir Vilberg Jónsson rekið þar
vélsmiðju og annast vélaaðgerðir
fyrir heimaflotann og aðkomuskip.
Á Þingeyri í Dýrafirði er hin
landsþekkta vélsmiðja Guðmundar
J. Sigurðssonar & Co. Guðmund-
ur er fæddur þjóðhagi, og hefir um
40 ára skeið rekið vélsmiðju á
Þingeyri með miklum myndar-
skap. Fyrst í félagsskap við firm-
að Bræðurnir Proppé, en lengst af
á eigin spýtur. Vélsmiðja Guð-
mundar mun hafa fjölbreyttasta
nýsmíði á vélum og vélahlutum,
aðallega fyrir vélbáta. En vél-
smiðjan hefir einnig leyst af
hendi vandasamar smíðar fyrir
stærri, skip og getið sér gott orð
fyrir vandaða vinnu.
Á Bíldudal hefir Magnús Jóns-
son, vélsmiður, rekið vélsmiðju
í rúml 40 ár. Hann er Ámesingur
að ætt og uppruna, en fluttist til
Bíldudals að tilhlutan Péturs J.
Thorsteinsson, sem lét sér annt
um vöxt og viðgang vélbátaútvegs
í Arnarfirði, sem aðrar fram-
kvæmdir þar.
I Patreksfirði gekkst Pétur A.
Ólafsson fyrir því, að koma upp
vélsmiðju á Geirseyri. Miljónafé-
lagið svonefnda lét reisa vélsmiðju
á Vatneyri, sem síðan var stækk-
uð og endurbætt af Ólafi Jóhann-
essyni consúl og sonum hans.
Vélsmiðjan Þór h.f., sameign
útgerðarmanna á ísafirði og ná-
grenni, er stærsta vélsmiðjan ut-
an Reykjavíkur, og hefir góð skil-
yrði til þess að leysa af hendi
margvíslegt nýsmíði og aðgerðir á
vélum. Forstjóri Ólafur Guð-
mundsson.
--------o--------
HÁTIÐAMESSUR:
Isafjörður:
Aðfangadagskvöld kl. 8.
Jóladag kl. 2 e.h. Á Sjúkrahús-
inu kl. 3 e.h.
Sunnudaginn milli jóla og ný-
árs: Barnamessa kl. 11 f.h.
Gamlárskvöld kl. 8 e.h.
Nýársdag kl. 2 e.h.
Sunnudaginn eftir nýár: Elli-
heimilinu kl. 2 e.h.
Hnífsdalur:
Aðfangadagskvöld kl. 6 e.h.
Annan jóladag kl. 2 e.h.
Gamlárskvöld kl. 10 e.h.
= j
| GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT NÝTT Á R!
= Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
1 Vélsmiðja Guðm. J. Sigurðssonar & Co.,
| Þingeyri.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
lllllllll IIIII1111111111111111111111111111111111111111111111111111IIIII llllllllll III llltlllllll III tJlllllllllllllllllllltllllllllllllllllltllllllllllllllilll
Tilkynning
| frá Bókaverzlun Jónasar Tómassonar, Isafirði.
1 Það tilkynnist hér með að frá 1. janúar 1953 hefi
| ég selt Gunnlaugi Jónassyni verzlun mína á ísafirði
| og tekur hann frá þeim tíma við öllum skuldum
| hennar og innstæðum.
= Frá þeim tíma tekur hann einnig við umboði því,
| . sem ég hefi haft fyrir Bóksalafélag Islands og
i Happdrætti Háskóla Islands.
1 Jafnframt því að tilkynna þetta, vil ég nota tæki-
1 færið og þakka öllum viðskiptavinum mínum nær
1 og f jær áratuga greið viðskipti og góð skil. Vona ég
| að Gunnlaugur, sonur minn, njóti í framtíðinni
| slíkra vinsemda, sem ég hefi notið hjá viðskipta-
| mönnum mínum.
| Isafirði, 15. desember 1952
| JÓNAS TÓMASSON.
1 Eins og sjá má á ofanritaðri auglýsingu hefi ég
| keypt Bókaverzlun Jónasar Tómassonar frá 1. jan-
1 úar n.k., og mun frá þeim tíma reka hana á eigin
| ábyrgð en undir sama nafni og áður.
| Vona ég að verzlunin njóti áfram sama trausts
| og vinsælda sem ávalt hingað til og mun ég leitast
| við að hafa á boðstólum allar venjuleg ritföng og
skólavörur auk innlendra og erlendra bóka og
1 blaða.
| GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
| ísafirði, 15. desember 1952
I GUNNLAUGUR JÓNASSON.
lllllllll|llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliill|||||llllllllll|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||l|||||||||||||||||||||gi[|Illllll|llll|[|llllllllll[|ll|[||llllllllllllll|lllllllllllllllilllllllllllllUIIII - =||||||||||lll[lMllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllll||||||||||||||||||||||[|||||U|||