Jólablaðið - 20.12.1957, Side 3

Jólablaðið - 20.12.1957, Side 3
JÓLAHU GLEIÐING: FREISARINN KALLAR Boðskapur jólanna á erindi til allra. Grundvöllur hans er ákall Frelsarans. Komið til mín. Sérhver jólahátíð er fæðingarhátíð frelsarans. Hátíð, sem á að festa í brjósti barnsins og hinna eldri, það sem er dýrðlegt og ógleymanlegt. Jólahátíðin segir okkur frá mesta kærleiksverki föðursins himneska, að hann gaf okkur sinn eingetinn son, svo að hver, sem á hann trúir, glatist ekki heldur öðlist eilíft líf. Faðmur föður og sonar stendur opinn öllum, sem trúa vilja, svo við ekki glötumst heldur öðlumst eilíft líf. Almáttugur kærleiksfaðmur vill blessa þig og varðveita. Jólaboðskapurinn lætur englana yfir Betlehemsvöllum segja og lofsyngja . . . . Sjá! Ég flyt yður mikinn fögnuð. Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Drottinn Kristur i borg Davíðs. Þetta er boðskapurinn guðlegi og eilífi. Hann er okkur af himnum sendur. Hann á að vera leiðarljós, trú og vissa í allri vegferð okkar. Honum getur þú treyst af öllu hjarta. Hann getur þú elskað sem föður og frelsara. Hann er þér jafnan ná- lægur, og nálægastur þegar þér liggur mest á. Það er að eins eitt: Þú verður að trúa og treysta honum án hiks eða efa. Jólaboðskapurinn, fæðing Jesú, líf hans og kenning varðar þig þegar í þessu lífi meira en nokkuð annað. Án trúar, án vonar verður jarðlífið þér kalt og ömurlegt. Engin efnisleg gæði, þótt vera kunni eftirsótt, geta veitt þér frið og innri fögnuð, sem er nauðsynlegur til þess að líf þitt verði heilbrigt og fagurt. Án sambandsins við Guð er líf þitt sjúkt. Skuggar efasemda og vantrúar naga hug þinn. Eitra líf þitt. Oft reynir þú að höndla lífsgleði með því að leita hennar í glysi og glaumi heimsins. Stundum virðist þetta duga um stundarsakir. En það er aðeins blekking. Þegar þú hugsar alvarlega um líf þitt muntu viðurkenna, að þar var enga gleði að finna. Þvert á móti margs- konar vonbrigði, vaxandi svartsýni og lífsleiða. Veittu því vaxandi athygli birtu jólahátíðarinnar. Innri birtu jólanna, sem engan fölskva slær á allt frá fyrstu jólahátíð mannkynsins. Birta jólaljósanna er mikil og fögur. En það er fyrst og fremst hin innri birta, birta hjartnanna, sem gera jól- in sanna og heilaga hátíð. Birtan frá fæðingu, lífi og kenningu Jesú hefir allt af sama kraptinn. Hún eyðist ekki. Er ávallt ný og fullkomin. Kristur er fæddur til þess að frelsa þig. Gera þig hluttakanda eilífs lífs. Sumir, trúarveikir, álykta þannig, að það sé ekki alvara bak- við boðskapinn um eilíft líf, þann boðskap þurfi ekki að taka alvarlega. Því er samt ekki þann veg farið. Allan boðskap Krists verður að taka í alvöru og sannleika. Slíkt er nauðsyn- legt vegna okkar sjálfra. Sambandið við frelsara okkar verður að vera traust. Engar misfellur mega vera á því sambandi. Vegur föðursins og frelsarans er ekki veraldarvegur. Hann er ekki af þessum heimi. Vegur sérhvers kristins manns stefn- ir jafnan til himins. Það er hans framtíðarbústaður fyrir krapt og kærleika frelsarans. Jarðvistardagarnir eru ekki jafnt mældir og útdeildir. Sum- ir fá langan náðartíma, aðrir skamman. öll erum við börn sama himneska föðursins og frelsarans og eigum að vinna í víngarði hans meðan náðartíminn varir. Hæfileikum okkar eigum við að verja til þess, að láta sem mest gott af okkur leiða, í hvaða stétt eða starfi er við stöndum. Góðvild og hjálpsemi við aðra er okkur skylt að sýna náungum okkar og bræðrum, sem mestan kærleika í orði og verki. Með því að iðka sjálfur sem víðtækasta kærleiksþjónustu við meðbræður þína, opnast þér sífellt nýir dýrðarheimar, sem endurspegla kærleika Krists. Láttu orð hans, líf og kenningu vera lampa fóta þinna. Láttu engin vandkvæði, andleg eða efnisleg, skyggja á samband þitt við Krist. Það er sjálfsagt að hver og einn geri sitt til að leggja fram það sem auka má sanna gleði jólahátíðarinnar. En varist að gleyma eða láta glepjast svo af ytri gæðum, að jólaboðskapur- inn týnist, eða kall frelsarans heyrist ekki fyrir þruski og um- svifurn ytri gæða. Ef svo ber til glatar þú friði og fögnuði jól- anna. Það er mikill missir. Sá mesti skaði, sem þú getur vald- ið sjálfum þér. Það er alvara en enginn orðaleikur að gefast guði. Verða hans barn. Hlýða vilja hans. Lifa honum í verki og orði, en jafnframt er það helgasta og háleitasta hlutverkið, sem þér og öðrum getur hlotnast. Blessuð jólahátíðin á að minna þig rækilega á þetta. Hlýddu kalli frelsara þíns. Gefðu honum hjarta þitt í trú og von eins og þú gerðir sem barn. Þú segist hafa þroskast. Barnseðlið sé þér glatað. Hugur þinn sé fullur efasemda og vantrúar. Máske er það eins og þú segir, en mundu þá að viðurkenna að að þú ert villuráfandi barn í viðsjálum heimi, sem vill umfram allt ná þér í glys og glaum. Hafa þig að leiksoppi dutlunga. Aldrei er þér nauðsynlegra að hlusta eftir kalli Frelsarans: Ivomið til mín. Fylgdu honum, þá ertu öruggur. Taktu í út- rétta hönd Frelsara þíns; leitaðu í náðarfaðminn, sem biður þín útbreiddur. Finndu kærleiksylinn sem streymir um allan líkama þinn og veitir þér vellíðan og krapt. Sértu veikur í trúnni eða freistingar sækja þig heim þá ieit- aðu Frelsara þíns í hljóðri og einlægri bæn. Sé iðrun þín sönn mun hann veita þér viðtöku með gleði. Og hvernig sem ástend- ur mun hann þig ekki burtreka. Enginn á þvílíkan takmarka- lausan kærleika og slíkan fyrirgefningarmátt. Það mátt þú breyzkur sjálfur játa. Enginn er þér slíkur faðir og bróðir, sem Jesú. Hann skilur þig bezt allra. 1 dag er þér Frelsari fæddur. Hann fæddist sem fátækt barn. Var lagður í jötu vegna þess að hvorki móðir né barn fengu rúm í gistihúsinu. Gakk þú vinur frelsara þínum á hönd. Hann er þér einnig vinur og bróðir. Hann einn er nógu sannur og máttugur til þess að gefa þér frið og fögnuð. Haltu þessi bless- uð jól, sem guðs barn. Það verður þér og öllum eilíf sæla. Þá getur þú sagt af hjarta með englunum og fjárhirðunum á Betlehemsvöllum forðum: Dýrð sé guði í upphæðum. Friður á jörðu og velþóknan yfir mönnunum. Gleðileg jól!

x

Jólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.