Jólablaðið - 20.12.1957, Side 6

Jólablaðið - 20.12.1957, Side 6
6 J ÓLABLAÐIÐ um útvegun lána og efnis til bygg- ingarframkvæmdanna. íshúsfélag Isfirðinga h.f. hefir á líðandi ári haldið áfram nýbygg- ingu, endurbótupm og breytingum á hraðfrystihúsi sínu. Hefir af- kastagetan meira en tvöfaldast og útbúnaður og vinnuskilyrði batn- að að sama skapi. Nokkurt at- vinnubótafé hefir fengist til þess- ara framkvæmda. Formaður fé- lagsstjórnar er Ragnar Ásgeirs- son, héraðslæknir. Framkvæmda- stjóri er Baldur Jónsson. Hraðfrystihúsið Norðurtangi h.f. framkvæmdastjóri Ingólfur Árna- son, framleiðir nú ís fyrir smærri og stærri fiskiskip. Er þetta einn þátturinn í því, að hér á ísafirði séu jafnan fáanlegar allar nauð- synjar fyrir fiskiskip. Áður þurfti að sækja héðan ís að mestu tii annara staða. Með stækkun eldri hraðfrysti- húsanna og nýbyggingu ísfirðings h.f. er hér fenginn ágætur frysti- húsakostur, sem getur afkastað miklu meira aflamagni en nú er á boðstólum. Verður það næsta spor- ið að stækka fiskiflotann. Hefir þegar verið sótt um tvo nýja tog- ara. Er sennilegt eftir því sem nú horfir að vélbátaútgerð ísfirðinga eflist á næstu árum. Opinberar framkvæmdir. Hér á ísafirði hafa opinberar framkvæmdir verið meiri á líðandi ári en oftast áður. Má þar fyrst nefna framkvæmdir hafnarsjóðs. Á hans vegum var steyptur öflug- ur veggur ofan á þann hluta stál- þilsins framan við hafnaruppfyll- inguna í Neðstakaupstað, sem hafði sigið. Er veggur þessi mikið mannvirki. Þá var nokkru ekið af uppfyllingu fyrir ofan nýja garð- inn. Með þessum framkvæmdum má heita lokið byggingu hafnar- innar í Neðstakaupstað. Geta þá 3—4 skip legið samtímis við hafn- argarðinn til fermingar eða losun- ar. Þá lét hafnarsjóður nú í haust gera rækilega við hafnarbryggj- una í Hæztakaupstað. Hún er stöð- ugt mikið notuð af fiskiskipum og farþegaskipum, þar sem hún ligg- ur miðsvæðis í bænum. Með aðgerð bæjarbryggjunnar var bætt úr brýnni þörf. Rafveita Isafjarðar og Eyrar- hrepps lét í sumar ljúka stækkun stöðvarhússins að Fossum í Skut- ulsfirði. Var þar sett upp 900 hestafla Dieselvél, sem verða á vara- og toppstöð fyrir ísaf jörð og nágrenni. Vélsmiðjan Þór h.f. ann- aðist uppsetningu vélarinnar. Mikil aðgerð fór fram á Sund- höllinni og allri þeirri byggingu. Einnig fór fram mikil aðgerð á Húsmæðraskólanum Ósk. Mjóar gangstéttir voru lagðar sumstaðar við aðalgötur og breið gangstétt við Túngötu. Götur voru víða lagfærðar og haldið áfram Engjavegi. Þar var erfið gatna- gerð. Þá voru gömlu Tangshúsin við hafnarbryggjuna rifin. Verður þar vonandi myndarlegt torg fljótlega. Bæjarsjóður festi kaup á not- uðum tækjum til grjótmulnings og gatnagerðar. Þau hafa enn ekki verið tekin í notkun hér. En öllum má ljóst vera, að götumar í bæn- um eru í ófremdarástandi, sem nauðsyn rekur til að úr verði bætt hið bráðasta. Austurvöllur var í sumar íklæddur fegursta blómaskrúði og veitti mörgum ánægjustund. Bæj- arstjóm lét einnig opna fyrir al- menning hluta af Eyrartúninu gamla (næst kirkjugarðinum). Voru þarna settir nokkrir setu- bekkir. Þarna var fjölsótt þegar gott var veður. Þótti ungum og gömlum gott að njóta þama sólar og sumars með grænum grösum. Fjöldi einstaklinga í bænum lét laga hús sín og mála. Fékk bærinn við það nýj- an klæðnað og nýtt andlit. Var það þörf og góð umbót. En betur má ef duga skal, því helzt ættu allir að vera eins hugar um að gera sem fallegast og vistlegast við heimili sín. Eins og áður unnu margir bæj- arbúar að því í sumar að græða tré og blóm við heimili sín. Þetta starf er enn ungt að ámm hér í bæ, en víða vel á veg komið. Sum- staðar ágætlega. Því sárara er að minnast þess mikla ágangs og eyðileggingar, sem sauðfé veldur á þessum viðkvæma gróðri. Má sjá sauðfé ganga sjálfala um götur bæjarins allt sumarið. Bæjarstjórn getur ekki lengur skotið sér und- an því að veita þessu þýðingar- mikla starfi nægilega vemd. Þeg- ar hún kemur- og það má ekki dragast verða áreiðanlega enn fleiri bæjarbúar, sem taka þátt í þessu gróður- og fegrunarstarfi. Miklar byggingar hafa verið í sumar á Isafirði. Lokið var að utan við nýtt Lands- bankahús. Er það tveggja hæða hús úr steinsteypu, og stendur við Pólgötu og Hafnarstræti (horn- hús). Þetta er myndarleg bygg- ing, sem kemur til að setja svip á bæinn. Byggingarfélag sjómanna hefir í sumar komið sex íbúðum undir þak. Auk þess steypt grunn og kjallara að öðrum sex íbúðum. Byggingar þessar standa við Hlíð- arveg, upp og inn af Gildrunesi, eða nánar tiltekið rétt fyrir innan hið gamla. Slunkaríki, sem eldri Is- firðingar munu kannast við. Fag- urt er þarna og víðsýnt út til Skut- ulsfjarðarmynnis og inn til dala. Áður var talið skriðuhætt þarna. lllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllKlllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllll! Sendum kærar kveðjur heim á fomar slóðir og | óskum öllum fsfirðingum = gleðilegra jóla og gæfuríkrar framtíðar. | fsfirðingafélagið í Reykjavík. -flllillliliillillllllllllllliilllliiiiliiiliilliliiliiliiliiiiilllliiliiiiiliiiiiiiiiiiiiilllliiliillliillllllllliliilliiniiii) i iini;iiiiii!iiiiiiii!i Óskum félögum og öðrum iðnaðarmönnum gleðilegra jóla og gæfuríkrar framtíðar. Iðnaðarmannafélag fsfirðinga. 5!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiH]Hliiiliiiiniiiiiiiiiii[iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiii:i:niiniiini:i'HiiiiiiiiiiniHMiiiiiiii!ii!iiiniiiiiiiiiiiiiiniin | GLEÐILEG JÖL! GÆFURfKT NÝTT ÁR! | Þökkum viðskipti á líðandi ári. - H.f. Smjörlíkisgerð fsafjarðar. r'iintiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiuiiiiiiiiiiiniiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiniiiiiiiiiiiiinini | GLEÐILEG JÓL! GÆFURfKT NÝTT ÁR! | Samvinnufélag Isfirðinga. ^’IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIII | GLEÐILEG JÖL! GÆFURIKT NÝTT ÁR! Þökkuin viðskipti á líðandi ári. Yacuum Oii Company. | Aðalumboð: H. Benediktsson & Co. Umboðið á fsafirði: Tr. Jóakimsson. SlllllllllllllllllHlllllllllllllllllllllllllllllllllllinilllHllllllllllllllllllllllllllllillllll'llllllllllillllllllllllllblllllllllllllHIIIIIIIIIIIII 1 GLEÐILEG JÓL! GÆFURIKT NÝTT ÁR! | Þökkum viðskipti á líðandi ári. | Verzlun Matth. Sveinssonar. 1 Rakarastofa Áma Matthíassonar. SlHIUlllIlllllllllllllllllllllllllHllllllllIIIIilllllllllHllllllllIIIIIIIIIlllIllllllllIlllllIIIIUIIIIIIlllllHlllllllllllllllIllllllllllIlllIllllllll | GLEÐILEG JÓL! GÆFURfKT NÝTT ÁR! [ Umboð Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna | Afgreiðsla Ríkisskip, fsafirði. = fllllllllllllilllil!lllllliliIllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllll1llllllllilli1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIK!IKnilillllflKIIIillllllllillillllllll I GLEÐILEG JÓL! GÆFURÍKT NÝTT ÁR! = Leikfélag Isafjarðar. = 'IIIIIIIIÍIIIilllillillllllllilill!lllilllKilllllillllllllllllllllllllilllllllKIIIIIIIIII:llllillilllllllllllilllllillllllllllllIIIIKIIIIIIIIIillllllilli9 1 GLEÐILEG JÓL! GÆFURfKT NÝTT ÁR! Þökkum viðskipti á líðandi ári. | Guðmundur Sæmundsson og synir. Í'iiii:iiniiii!iiiiiiiiii[!iiiiiniii]iiiiiiiiiiiiiii;iiiiiniiiin[|iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiii]niii:niiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i 1 GLEÐILEG JÓL! GÆFURfKT NÝTT ÁR! 1 Beztu þakkir til starfsfólks okkar á liðnu ári. 1 Harðfiskstöðin h.f. siinimiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiiiiiiiiiiniiiimiiiiiMiiii | GLEÐILEG JÓL! GÆFURÍKT NÝTT ÁR! | Þakka viðskiptin á líðandi ári. - Helgi Þorbergsson, vélsmiður. ininiiiininiiiiiiiiiiniiiuiiiiuiinHiiiiiiiiiiiiiiiiininiiiiiiinimiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmmm illllllllllllllllllllUlllllllllllllllinillllllllllllHllllllKnillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllUllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllinilillllHKIIIlllllllllNI ;ilHIIIIIIIIIIIIIUIIII!IIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllli:illllllllllllllllllllllllllllllllllllllUIIUIIIIIIIIIII!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllUIIIIIIIIIIIII”

x

Jólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.