Börn og menning - 01.09.2000, Síða 5

Börn og menning - 01.09.2000, Síða 5
BÖRN 06 /AEN|N|N6 Sigurbjörg Þrastardóttir: Mér finnst... ...vænt um bækur því þær er hægt að faðma. Ég faðma stundum bækur og ég á tveggja ára systurson sem faðmar líka stundum bæk- ur. Allir geta nefnilega verið með. Og bókum þykir gott að vera knúsaðar. Sá stutti, systursonurinn, er að læra að lesa en hann veit það ekki sjálfur. Ekki ennþá. Eins og er hefur hann mestan áhuga á myndunum en hann hefur líka áhuga á bókunum sem slíkum. Sem hlutum. Bækur eru nefni- lega þeirrar náttúru að þær þjálfa ekki bara lesskilning, þær þjálfa líka form- og fegurðarskyn og kenna bömum að fara með hluti. Fletta varlega, þreifa á homum, banka í harðspjöld. Litli bókaormurinn var ekki gamall þegar hann var farinn að fletta bókum gætilega með litlu fmgmnum sínum og frá upphafi hefur honum verið inn- rætt virðing fyrir bókum. Hann hefur lært að varðveita bækumar sínar vel og veit hvar hægt er að ganga að þeim vísum. Nýja heimilistölvan kann að vera í viðgerð og sjónvarpið er stundum í fríi en bækumar eru alltaf á sínum stað. Það er heldur ekki hægt að knúsa tuttugu og ijögurra tommu skjá. Svo er líka öðmvísi hljóð í bókum en í hinum af- þreyingartækjunum á heimilinu. Bækumar hafa alvöm rödd. Stundum er það röddin í mömmu eða pabba, stundum rödd litla bókaormsins sem er samhliða að læra að tala. Hann veit sennilega innst inni að prentið er fyrst og fremst geymsluform hinnar munnlegu frásagnar og þar er Nóbelshöfundurinn Gunter Grass honum sam- mála. „Ég geng um gólf, mæli setningamar af munni fram og móta þær þannig. Aðeins að því loknu em þær þess verðar að vera settar á blað,“ sagði Grass á pallborði í Norræna húsinu fyrir skömmu og minnti á að munnleg sagnahefð væri hin sanna rót bókmenntanna. Þannig kynna bækur margvíslega tjáningu fyrir litlu bókafólki; skrif, tal og teikningu. Þessi tjáningarform tekur smáfólkið svo sjálflt upp þegar fram líða stundir og hjalið heyrir fortíðinni til. Eftir því sem lesandinn eldist hallar að vísu smám saman á myndimar - þær eru sjald- séðar í fagurbókmenntum fyrir fullorðna - en hlutur þeirra virðist þó vera að vænkast með aukinni samvinnu rithöfunda og listamanna. Þegar ég las til dæmis bókina Klettur í hafi - ljóð Einars Más við myndir Tolla - leið mér sem snöggvast eins og litlum krakka með Vísna- bókina í höndunum. Falleg ljóð og fallegar myndir og ég stalst til þess að faðma bókina. Annars má jafnvel halda því fram að við séum öll eins og böm þegar við lesum bækur. Við þreifúm á homum, bönkum í harðspjöld og veltum fyrir okkur bókinni sem fagurfræðilegum hlut. Svo opnum við bók- ina gætilega í óþreytandi leit að uppgötvunum, félags- skap, ævintýmm eða innblæstri, rétt eins og talandi eða hjalandi böm. Því auðvitað er það lesturinn sjálfur sem skiptir höfuðmáli, til viðbótar við annars konar gagn sem af bókum má hafa. „I gegnum bækur get ég orðið þús- und manns án þess að hætta að vera ég sjálfúr,“ sagði C.S. Lewis um ímyndunaraflið en þáttur bóka í þjálfún hugarflugs verður seint metinn til fulls. í bæklingi sem mér áskotnaðist í vor á bamabóka- messu á Ítalíu, vom sautján helstu ástæðumar fyrir út- gáfu bamabóka raktar og skýrðar. Fyrsta ástæðan var einmitt þjálfun ímyndunaraflsins en einnig var bent á hvemig bækur geta kynnt ólíka menningarheima og dregið úr fordómum, aukið vitneskju bama um heiminn, þjálfað þau í að setja sig í annarra spor og æft þau í að greina á milli góðs og ills. Fleira var tínt til en eitt áttu allar sautján ástæðumar sameiginlegt. Þær gátu allar gilt um bækur fýrir fullorðna líka og sýndu þannig ffam á það sem ég hef lengi haff gmn urn: Bækur fyrir böm em alveg eins og bækur fýrir fullorðna. Þær efla málvitund, þjálfa ímyndunarafl, skerpa form- og fegurðarskyn og segja okkur fleira um heiminn en okkur hefur dreymt um að vita. Þær hafa alvöm rödd og hjálpa okkur að finna okkar eigin rödd. fnni í þykkum bókum má líka pressa fjögurra laufa smára til þess að gefa minnstu lesendunum og leyfa þeim að óska sér. Bækur gera allt þetta og margt fleira. En fyrst og síð- ast em þær vinir sem endast ævilangt og þótt ekki væri nema þess vegna er ætíð ástæða til þess að knúsa þær. Greinarhöfundur er skáld og blaðamaður. 3

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.