Börn og menning - 01.09.2000, Qupperneq 6

Börn og menning - 01.09.2000, Qupperneq 6
BÖRN OC ^ENN|N6 Um bækur og listina að lifa (Eða: Alvarlegt samtal við káta konu, Vilborgu Dagbjartsdóttur, skáld.) í vor sem leið hlaut Vilborg Dagbjartsdóttir viðurkenningu Barna og bóka fyrir störf sín og skáldskap íþágu barna. Afþessu tilefni spjallaði Guðrún Hannesdóttir við hana um ótta, ör- yggi, œvintýri ogfleira. Hræðslan við myrkrið í heiminum sprettur Hvað telurþú aðfenginni langri reynslu að styrki snemma upp í barnssálinni. Hvernig má stemma börn best og hvað eykur þeim færni og lífsþrótt stigu við henni? síðar á œvinni? Ég minnist þess af sjálfri mér, hvað ég kveið fyrir vetrarmyrkrinu. Það voru bara lampaljós og kertaljós heima, þar var aldrei rafmagn. Vetumir vom langir því Seyðisfjörður er þröngur, sólin hvarf og það varð ákaf- lega dimmt. Á haustin þegar fór að rökkva á kvöldin þá man ég eftir þessum kvíða og óttanum við myrkrið. Ég man eftir tilfinningunni þegar maður rétti fótinn fram yfir rúmstokkinn og var hræddur við eitthvað undir rúm- inu. Þetta er svo ríkt í öllum litlum krökkum, að vera óömgg og hrædd. Nú til dags em böm mik- ið ein, það em ekki mörg börn nema á örfáum heimilum. Ég var sjálf í stórum systkinahópi en eigi að síður minnist ég sérstaklega myrkfæln- innar og ég get alveg gert þá játningu að ég hef aldrei losnað við hana. Það er meðal annars vegna þess að þegar ég var að alast upp var það enn svo að margt fúllorðna fólkið var líka hrætt. Ottinn við drauga og forynjur var sterkur í menn- ingunni. Allar fmmstæðar þjóðir hræða böm með Grýl- um því það er margt sem þarf að passa sig á. Vandinn er að ganga ekki of langt í því. Bókmenntimar koma okkur oft til hjálpar. Margar sögur og ævintýri eiga sér rætur langt aftur í fortíðinni, jafnvel aftur í forsögulegum tíma og em sérstaklega til þess gerðar að þjálfa mannfólkið í að ráða við ótta sinn. Mörg ævintýrin eru alveg hrottaleg og lýsa píslum og andstyggilegum hlutum en svo endar alltaf allt vel. Hið góða sigrar og vitneskjan um það gefúr baminu öryggi. Skáldskapurinn og bókmenntimar em lífsnauðsyn og það að kenna bömum að tala, hugsa og njóta hlutanna gerist best gegnum bókmenntimar. Böm fá mjög snemma mikla þörf fyrir að tjá sig og að þeim sé sagt frá hlutunum vegna þess að allt er þeim nýtt. Það er hægt að sýna mjög litlu bami bók og segja því sögur strax á fyrsta ári. Það er ekkert sem gefúr bami meira öryggi en að taka það í fangið, sýna því bók og segja sögu. Það lærir að þekkja orðin og hlutina. Mörg böm vilja ekki vera skilin eftir ein og liggja í rúminu sínu og fara að sofa þótt þeim þyki vænt um rúmið sitt þegar þau em pínulítil. Að sitja hjá þeim, segja þeim einfalda sögu og syngja fyrir þau eða fara með vísu, gefur þeim öryggi sem fer með þeim inn í svefninn. Þetta myndar öryggisvenjur sem em þeim mikils virði. Margt fólk, jafnvel það sem er ekki mjög trúað, fer með bænir með bömunum fýrir svefninn til að skapa þeim öryggi. Eftir því sem bömin stækka og öðl- ast dýpri skilning og geta betur meðtekið sögur er mikil- vægara að þau fái stöðugt andlegt fóður, því öll okkar hugsun byggist í raun og vem á því sem við heyrum í æsku. Það em hlutir sem við gleymum aldrei. Öll hugs- un og sköpun veltur á því að við höfúm verið byggð upp á þennan hátt. Mannkynið hefúr þróað með sér aðferðir til að koma samhenginu í heimsmynd sinni til skila til næstu kynslóðar í gegnum goðsögur og ævintýri. Við eigum auðvitað okkar sérstaka arf, norræna menningar- arfinn sem er ótrúlega merkilegur einmitt af því hve tungumálið er gamalt. Þessum arfi getum við ausið af í goðsögum og fáum síðan sögur úr öðmm menningar- heimi með kristninni, úr Biblíunni. 4

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.