Börn og menning - 01.09.2000, Page 10

Börn og menning - 01.09.2000, Page 10
BÖRN oc /aEN|N|N6 þýða sé eitthvað gott fyrir bömin. Það er óskaplega mikill vandi að velja rétt efni fyrir réttan aldurshóp. Það verður líka að gæta sín á því að í stómm hópi á sama aldri getur verið eitt bam, sem mun- ar allt upp í tveimur, þremur ámm á í þroska. Þetta er svo bundið við þroska. Það sem litla bamið hefur gaman af er allt annað en það sem stærri krakkar og elstu krakkamir hafa gaman af. Segðu mér frá trúarbragðakennslu og reynslu þinni af henni... Bömum þykir óskaplega gaman að tala um Guð. Eg kenndi kristinfræði og það mátti aldrei hrófla við kristin- fræðitímanum, þeim fannst hann svo skemmtilegur. Þau lærðu meðal annars boðorðin og við ræddum mikið um þau. Ég kom með steintöflur, það var afgangur frá því að verið var að gera gólfíð í húsinu hans Þorgeirs. Við höfðum þær íyrir lögmálstöflur til að geta skrifað lög- málið á steintöflur eins og Móses gerði forðum. Við ræddum mikið um gildi lögmálsins, til dæmis um boð- orðið að enginn geti gert mynd af Guði. Nú er sagt að maðurinn sé skapaður í Guðs mynd og ég spurði þau hvort ég gæti þá teiknað mynd af Guði á töfluna, Guð í bláum kjól með svona trefil og gleraugu? Þeim fannst það náttúrlega alveg fráleitt. Guð gat ekki verið eins og ég - það var alveg óhugsandi! Hann var sko ekki eins og ég og alls ekki í bláum kjól! Þau höfðu óljósa hugmynd um það að Guð væri gamall maður, kannske með grátt skegg og svona. Ég spurði þá: Hvar hafið þið séð mynd af Guði? Er mynd af honum í kirkjunni? Nú skulið þið bara fara og gá hvort þið finnið einhversstaðar mynd af Guði og segja mér svo frá. 1 næsta tíma spurði ég svo hvort þau hefðu fúndið mynd af Guði en þau höfðu þá bara fundið mynd af Jesú í kirkjunni. Það er vegna þess, sagði ég, að boðorðið segir að það megi ekki gera mynd af Guði. Af því að Guð er óhugsanlegur og ef við gerum mynd af honum þá erum við að gera mynd af einhverju takmörkuðu. Guð er alls staðar. Hvemig gæti hann verið það ef hann er bara eins og kona í bláum kjól? Og þau skildu að Guði er miklu fremur hægt að líkja við and- rúmsloftið, himin eða haf. Bömum finnst mjög merki- legt að ræða svona hluti. Þeim er þetta alvörumál... Já. Ég var einu sinni klöguð fyrir að hafa kristnað bam. Móðirin varð afskaplega reið yfir því og það vildi enginn hlusta á hana. Hún fór til skólastjórans og hann sagði að þetta væri ráðuneytismál. Hún fór niðrí ráðu- neyti og þegar hún sagði hver kennarinn væri- það var litið á mig sem ægilega kommakerlingu á þessum tíma - þá fóm þeir að hlæja. En þannig var að þetta bam kom frá útlöndum og var afskaplega hrætt og einmana. Við vomm að læra kristinfræði eins og átti að gera og efhið heillaði hana alveg og henni fannst það skemmtilegt. Spumingin er þessi: Getum við sleppt því að kynna bömum trúarbrögð? Ef við gemm það á hvaða grundvelli á þá að byggja? Ef böm fá ekki fræðslu um trúarbrögð geta þau líka hvenær sem er staðið berskjölduð gagnvart því að lenda síðar í einhverjum söfnuði sem er stórhættu- legur. Það hefúr oft gerst og það er mikið framboð af ýmsum varasömum söfnuðum eins og til dæmis vís- indakirkjunni og alls kyns heimsendasöfnuðum. Böm verða að fá ffæðslu um trúarbrögðin. Þrá mannsins til að skilja hvemig allt varð til og hvað verður, hún er rík. Margir virðast beinlínis fá þessa trúarþörf í vöggugjöf. 8

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.