Börn og menning - 01.09.2000, Page 11

Börn og menning - 01.09.2000, Page 11
BÖRN OC MENN|N6 Verða trúarbrögðin aðskilin frá öðrum mýtum? Taka ekki allar þjóðir sínar mýtur og upphefja þœr í trúarbriigð til að magna þau upp til skilningsauka og huggunar? Við stöndum nú gagnvart því að hér er komin löggilt ásatrú í landinu. En mýtur, töfrahyggja og ýmis fjöl- gyðistrú er allt annað en þau trúarbrögð sem byggjast, eins og til dæmis kristin trú, á því kærleikssambandi sem fólk hefúr við sinn guð. Það er geysilega mikill munur á því. Hér er um að ræða mjög sterkar tilfinningar. Við emm með þjóðkirkju og kristindómur er kenndur í skólunum og samfélaginu. I sósíalísku ríkjunum var trúarbrögðunum hafnað og þau kölluð ópíum fyrir fólkið. Maður hélt að sósíalisminn, kommúnisminn, hefði átt að geta mótað sitt fólk af svo sterku siðferði að nægði til að allir „breyttu eins og menn“. En það virðist að upp komi þvílíkur sori og skelfíng að ekki er hægt að hugsa það til enda. Og hvers vegna? Af hverju er mönnum ekki nóg að læra heimspeki og stjómmálakenningar? Það er eins og þurfi eitthvað fleira. Þú heldurþá ekki að siðfræðikennsla ískólum geti komið ístað trúarbragðakennslu? Marxísk díalektík og sú siðfræði sem þar var dugði ekki. Auðvitað væri æskilegast að við hefðum samfélag sem byggt væri á mannréttindasáttmálanum og þeim sáttmálum sem Sameinuðu þjóðimar em búnar að koma sér upp og síðan siðfræði sem byggist á þekkingu á sögu mannkynsins. En við höfúm ekki enn þennan grundvöll. Og börn hafa þörf fyrir huggun í sorg, öryggi í bœn og helgisiði.. ? Það er ekkert annað sem býður upp á það sem gerist með kærleikssambandi við höfúnd allra hluta, hver sem hann er, hvað sem hann heitir. Það veitir lotningu fyrir sjálfu lífínu. Það er eitt af því sem er svo erfitt: að horfa upp á ungt fólk sem tekur líf sitt. Ég hef lent í því að ræða við hópa sem halda því fram að fólk eigi rétt á því. Ef menn vilji ekki lifa þá sé það þeirra mál. En ég hef spurt á móti - það var strákahópur sem ég var að tala við - hvenær gafst þú þér lífið? Þetta er ekki þitt líf, foreldrar gefa þér lífið og síðan er þitt líf samspil allra þeirra sem þú hefúr lifað með. Enginn á einn sitt líf. En auðvitað finnst sumum að allir hafi hafnað þeim. Þetta eru af- skaplega erfiðir hlutir en ég held að það sé haldreipi í því að vekja hjá fólki lotningu fyrir því að lífið í sjálfú sér er öllu æðra. Hvað er best til þess fallið að vekja þessa lotn- ingu? Guð. Ég veit ekki hvað hann er en ég held að ef Guð er til þá hljóti skepnan, þá á ég við allt sköpunarverkið, að rata til hans. Það þarf ekki ótal milliliði. Hvað hefur þú sjálflœrt aflöngum samvistum við börn? Einkum það hvað skiptir miklu máli að koma til dyr- anna eins og maður er klæddur. Það á að segja bömum satt, svara einlægum spurningum þeirra og tala við þau í einlægni á móti. Ég hef lært hvað hægt er að hafa mik- il og náin samskipti við börn, hvað þau em opin fyrir því að deila reynslu með öðmm. Það er svo þakklátt starf þegar manni tekst að hitta á þær óskastundir að geta sagt þeim eitthvað sem skiptir þau máli. Guðrún Hannesdóttir Barnabœkur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur Alli Nalli og tunglið. Myndskreytt af Sigríði Bjömsdóttur. 1959 Sögur afAlla Nalla. Myndskreytt af Friðriku Gestsdóttur. 1965 Sagan af Labba pabbakút. Myndskreytt af höfundi. 1971 Alli Nalli og tunglið. 2. útg. Myndskreytt af Gylfa Gíslasyni. 1976 Langsum og þversum. 1979 og 1982 Tvær sögur um tunglið. 1981 Sögusteinn : tekið saman, þýtt, endursagt og fmm- samið af V. D. Myndskreytt af Önnu Cynthiu Leplar. 1983 Bogga á Hjalla. Myndskreytt af Önnu Cynthiu Leplar. 1984 Barnanna hátíð blíð : sögur, söngvar og fróðleikur um jólin. Myndskreytt af Hlín Gunnarsdóttur. 1993 Vilborg hefur einnig þýtt fjölmargar bækur fyrir böm, meðal annars eftir Astrid Lindgren og Mariu Gripe. 9

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.